Fréttablaðið - 28.06.2005, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 28.06.2005, Blaðsíða 26
Dýr mistök Það er kunnara en frá þurfi að segja að einföld fljótfærnismistök eru misafdrifarík. Þau voru nokk- uð afdrifarík mistökin sem taivanskur verðbréfa- miðlari gerði og hálffimmfréttir KB banka greindu frá. Hann settir inn fyrir slysni kauppöntun upp á fimmtán milljarða króna. Félagið sem hann starfar hjá, Fubon Securities, sendi frá sér tilkynningu þar sem kom fram að verðbréfamiðlarinn hefði verið nýr og ekki þekkt kerfin sem félagið notar. Hann hafi ætlað að setja inn öllu hóflegri pöntun, en ruglast á reitum í stressi með þessum afleiðingum. Kauptilboðið hleypti talsverðu lífi í hlutabréfamark- aðinn í Taívan og hækkaði vísitalan um eitt prósent vegna þessa. Upphæðin hefði sennilega hleypt enn meira lífi í markaðinn hér, því eins og KB banki greinir frá hefði upphæðin dugað til að kaupa Marel eins og það leggur sig. Fram kom í til- kynningu að verðbréfamiðlarinn væri ekki lengur við störf hjá verðbréfafyrirtækinu. Tískubanki Mosaic Mistök urðu einnig í tilkynningakerfi Kauphallar Íslands í gær. Þau voru reyndar smávægileg og afleiðingarnar engar. Mosaic Fashions lét vita af kynning- arfundi þar sem uppgjör fyrsta ársfjórðungs verður kynnt. „Stewart Binnie stjórnarformaður og Ric- hard Glanville fjármálastjóri Mosaic Fashions hf. munu kynna afkomu bankans og svara spurningum,“ sagði í tilkynningunni, en Mosaic er náttúrlega ekki banki heldur tískukeðja. Önnur til- kynning birtist skömmu síðar þar sem þessari missögn hafði verið kippt í liðinn. MESTA HÆKKUN ICEX-15 4.126 KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ] Fjöldi viðskipta: 196 Velta: 2.177 milljónir +0,30% MESTA LÆKKUN MARKAÐSFRÉTTIR... Kynningarfundur á vegum Mosaic Fashions verður haldinn á Grand Hótel í dag þar sem af- koman á fyrsta ársfjórðungi verð- ur kynnt. Greiningardeild Landsbankans hefur gefið út nýtt verðmat á hlutabréfum í Actavis. Sam- kvæmt matinu ættu bréfin að kosta á bilinu 36,2 til 41 krónu. Væntingavísitala atvinnulífsins í Þýskalandi hækkaði í júní eftir að hafa lækkað fimm mánuði þar á undan. Frá þessu sagði í Hálf fimm fréttum KB banka. Hlutabréf í Lundúnum lækk- uðu í gær. FTSE vísitalan stendur í 5.044 stigum og lækkaði um 0,70 prósent í gær. Í Þýskalandi lækk- aði Dax um 0,93 prósent og í Japan lækkaði Nikkei vísitalan um 1,06 prósent. 18 28. júní 2005 ÞRIÐJUDAGUR Peningaskápurinn… Actavis 40,90 +1,24% ... Atorka 5,85 -0,85% ... Bakkavör 38,90 +0,26% ... Burðarás 15,30 +1,32% ... FL Group 15,50 +0,65% ... Flaga 3,90 -2,26% ... Íslandsbanki 13,35 – ... KB banki 532,00 +0,19% ... Kögun 59,60 – ... Landsbankinn 17,20 +0,58% ... Marel 58,00 -0,85% ... Og fjarskipti 4,05 – ... Samherji 12,10 – ... Straumur 12,30 – ... Össur 79,50 - Burðarás 1,32% Actavis 1,24% Mosaic 1,04% Flaga -2,26% Atlantic Petroleum -1,64% Atorka -0,85% HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Umsjón: nánar á visir.is Hlutabréf lækka í verði í kjölfarið. Olíuverð hefur náð nýjum hæðum og náði verðið hátt í 61 Banda- ríkjadal á tunnu í gær. Hækkan- irnir koma í kjölfar meiri óróleika við Persaflóa og væntinga um minna framboð á olíu. Forseti Írans hefur sagt að hann hyggist halda á lofti kjarnorkuáætlun landsins. Hækkandi olíuverð hægir á hagvexti og hlutabréfaverð í heiminum lækkar. Hlutabréf lækka í verði vegna þess að vænt- ingar um afkomu fyrirtækja versna. Hlutabréfavísitölur í Bandaríkjunum hafa lækkað tvo daga í röð og er það helst rakið til óvissu um vaxtabreytingar og hækkana á olíuverði. Olíuverð hefur hækkað um 12 prósent á síðustu tveimur vikum og um 40 prósent frá því janúar. -dh Hæsta ver› olíu Sumar SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580 Tjaldaland er við hliðina á Glæsibæ ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U TI 2 87 71 06 /2 00 5 30 uppsett tjöld til sýnis! Valencia Plus 5 manna Fjölskyldu- kúlutjald með stóru og rúmgóðu fortjaldi (1,9 m lofthæð). Sumartilboð 19.990 kr. Verð áður 24.990 kr. Queensland 6 manna Fjölskyldu- braggatjald sem opnast á tvo vegu. Stórt fortjald með dúk (2 m lofthæð). Sumartilboð 34.990 kr. Verð áður 39.990 kr. Út fyrir sitt hlutverk Stjórn SPH telur að FME gangi of langt með dreifibréfi til stofnfjáreigenda. Þar er óskað eftir svör- um um hvort stofnfjáreigendur hafi átt viðskipti með stofnfé. Stjórnin vill ræða beint við FME. Stjórn Sparisjóðs Hafnarfjarðar ætlar að senda Fjármálaeftirlit- inu (FME) svör vegna bréfs sem það sendi öllum stofnfjáreigend- um á föstudaginn þar sem meðal annars er óskað eftir svörum frá stofnfjáreigendum um hvort þeir hafi átt viðskipti með stofnfé. Þetta kemur fram í bréfi sem stjórnin sendi öllum stofnfjáreig- endum á sunnudaginn. Lögmaður stjórnarinnar gekk á fund FME í gærmorgun. Stjórnin telur að FME hefði átt að ræða beint við hana í stað þess að senda bréf til allra stofnfjár- eigenda. Hún bendir á að framsal með stofnfjárbréf í SPH verði að fara í gegnum stjórnina og hygg- ist aðili eignast virkan eignarhlut í fjármálafyrirtæki skuli leita eft- ir samþykki FME fyrir fram. Jafnframt segir í bréfinu að stjórnin skuli vísa öllum málum til FME þegar einhver óskar eftir því að eignast virkan eignarhlut í sparisjóði. Stjórn SPH telur að FME sé komið út fyrir þær valdheimildir sem stofnunin hafi lögum sam- kvæmt, sem opinber eftirlitsaðili, þar sem hún hafi aðeins heimildir gagnvart fjármálafyrirtækjum en ekki einstaklingum. Páll Pálsson, stjórnarformaður SPH, finnst þessi vinnubrögð FME mjög sérstök og telur að stofnunin fari langt út fyrir vald- svið sitt með bréfinu. Stjórn SPH er sá aðili sem FME á að ræða við, enda kosinn af meirihluta stjórn- fjáreigenda og fer með umboð þeirra. - eþa PÁLL PÁLSSON, STJÓRNARFORMAÐ- UR SPH Telur að FME gangi allt of langt með dreifibréfi sínu til stofnfjáreigenda. Eftirlitið ætti að ræða beint við stjórnina sem hefur umboð frá eigendunum. OLÍUVERÐ Í NÝJUM HÆÐUM Óróleiki við Persaflóa í kjölfar kjörs nýs forseta í Íran.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.