Fréttablaðið - 28.06.2005, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 28.06.2005, Blaðsíða 20
Trúlofunarhringir hafa verið auglýstir til sölu ofan við skúrdyr í Kleppsholtinu í ára- tugi. Þegar þeim dyrum er lokið upp kemur í ljós lítið og heimilislegt verkstæði með öllum græjum og gróskumik- illi blómarækt í glugga. Eyjólfur situr við vinnuborðið á verkstæðinu við Hjallaveg 25 og býr sig undir að bræða saman málma. Blandan verður 14 karöt. Það er algengasti styrkleikinn og nú eiga að standa tölustafirnir 585 á smíðinni í stað 14 áður. Það er sam- kvæmt Evrópustaðli. Austurlenskir vilja þó heldur 18 karata hringi, að sögn Eyjólfs. „Það er bæði hægara og fljót- legra að smíða úr 18 karata gulli því það er miklu mýkra. En hringirnir verða dýrari og er hættara við að spænast upp,“ segir hann. Eyjólfur tekur að sér verk fyrir einstaklinga, meðal annars smíði trúlofunar- og giftingarhringja, en er ekki með vörur sínar í verslun- um. Yfirleitt er tveggja daga af- greiðslufrestur á hringjum. Þegar hann er spurður hvort það sé ekki sérstök tilfinning að handfjatla stöðugt dýra góðmálma og eðal- steina svarar hann: „Jú, það er auð- vitað gaman en ég vildi samt alveg skipta um vinnu á tíu ára fresti. Maður verður samdauna því sem maður er að gera og kann ekkert annað.“ Ekki kveðst hann hafa safn- að auði með gullsmíðinni enda gæti hann þess að bjóða sanngjarnt verð. Hann hefur verið með verkstæðið við Hjallaveginn frá því 1981 og stundum hefur verið ös. „Það hafa komið sex pör á dag og ég hef þurft að smíða nánast jafnóðum. Samt er þetta nú ekki alveg eins og í fisk- búð!“ bætir hann við hlæjandi. Skipulagning Samkvæmt bandarískum rannsóknum skipulegga þrjátíu prósent brúða brúðkaupin sín í sjö til tólf mánuði.[ ] Bónorð borið upp í Kairó og brúðkaupið í stofunni heima Séra Pálmi Matthíasson gaf Ragnar og Angelu saman í stofunni heima hjá foreldrum Ragnars. Ragnar Páll Ólafsson og Ang- ela Jeanine Mumm gengu í það heilaga í vetur. Þau ákváðu að hafa athöfnina lát- lausa og giftu sig í stofunni heima hjá foreldrum brúð- gumans. Ragnar Páll Ólafsson, dagskrár- gerðarmaður á Rás tvö, kynntist konu sinni Angelu Jeanine Mumm fyrir tæpum tveimur árum síðan. Þau urðu fljótt ástfangin og giftu sig 19. mars síðastliðinn. „Við náð- um strax rosalega vel saman og okkur fannst sjálfsagt að taka þetta skref. Við elskum hvort annað og viljum eyða ævinni saman og stofna fjölskyldu,“ segir Ragnar, sem þessa dagana er einn í kotinu því Angela er í framhaldsnámi í tann- lækningum í Bandaríkjunum. Að- skilnaðurinn verður þó ekki langur því Ragnar flytur til Bandaríkjanna á næstunni. Þar sem fjölskylda Angelu átti ekki heimangengt fannst skötu- hjúunum kirkjubrúðkaup ekki ganga upp og voru um tíma að hugsa um að fara til sýslumanns. Að lokum ákváðu þau að halda brúð- kaupið heima í stofu og sjá svo sannarlega ekki eftir því. „Við feng- um séra Pálma Matthíasson til þess að koma heim í hús foreldra minna og athöfnin fór fram þar,“ segir Ragnar. „Húsið er stórt og við breyttum stofunni í litla kapellu. Röðuðum upp stólum og kveiktum á kertum. Þetta var ofboðslega falleg athöfn þótt allt væri smátt í sniðum. Tæplega fjörutíu gestir mættu í veisluna. „Þetta heppnaðist allt mjög vel og fólk skemmti sér kon- unglega. Þegar athöfninni var lokið röðuðum við upp langborðum í stof- unni og svo var setið til borðs og borðaður dýrindis matur frá Kokk- unum. Við fengum líka Ragga Bjarna og Þorgeir Ástvalds til þess að taka nokkur lög. Það vakti gríð- arlega lukku og stemningin var frá- bær,“ segir Ragnar og þvertekur fyrir það að veislur þurfi að vera stórar og fjölmennar til að vera skemmtilegar. „Þetta var bara of- boðslega falleg og rómantísk veisla. Við kveiktum á óteljandi kertum og þegar kvöldaði og fór að dimma skapaðist notaleg stemning í stof- unni. Brúðardansinn var á sínum stað og gestirnir dönsuðu dálítið í stofunni.“ Þar sem hjónin verða á faralds- fæti milli Íslands og Bandaríkjanna er ekki stefnt á brúðkaupsferð. „Eiginlega fórum við í brúðkaups- ferðina áður en við giftum okkur. Í desember í fyrra fórum við Egypta- lands og þar bað ég hennar form- lega þótt brúðkaupið væri löngu ákveðið,“ segir Ragnar, en bónorðið bar hann upp í fallegu musteri í Kairó. thorgunnur@frettabladid.is Samkvæmt gamalli trú á brúðurin á að skera fyrstu sneiðina á brúðkaup- stertunni því annars á hún í vændum barnlaust hjónaband. Enn betra þykir ef brúðguminn leggur hönd sína yfir hennar þegar hún sker tertusneiðina. Brúðkaupsgestir fylgjast jafnan grannt með þessari athöfn. Þá er ráð að hafa tertuna nægilega stóra eða nægilega margar tertur því löngum verið talið ills viti ef brúðkaupsgest- irnir fá ekki allir bita af tertunni. Eyjólfur notar sjöfalt stækkunargler við fínustu vinnuna. Úti á stéttinni er nokkurs konar brúðar- bekkur og að sögn Eyjólfs kemur fyrir að fólk tyllir sér á hann og trúlofar sig. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL MBýr til trúlofunarhringi innan um blómin Allir verða að fá bita af brúðartertunni ÞAÐ ER GAMALL OG GÓÐUR SIÐUR AÐ BJÓÐA UPP Á TERTU MEÐ KAFFINU. Stólum var raðað upp í stofunni og henni breytt í eins konar kapellu. Eftir athöfnina var slegið upp langborðum í stofunni og bornar fram gómsætar kræsingar. Það er gamall siður að brúðgumi færi brúði sinni morgungjöf þegar hjónin vakna eftir brúðkaupsnótt- ina. Morgungjöfin var upprunalega gjöf brúðgumans til brúðarinnar en ekki tíðkaðist að brúðurin gæfi bónda sínum slíka gjöf. Þar sem gjöfin er oftast kölluð morgungjöf er líklegt að hún hafi upprunalega verið afhent morguninn eftir brúð- kaupsnóttina og ýmsir telja að gjöf- in hafi þá verið eins konar borgun fyrir meydóm brúðarinnar. Fyrr á öldum var algengt að kon- ur fengju allt frá litlu fingurgulli upp í heilt höfuðból í morgungjöf og ekki var óalgengt að samið væri skriflega um gjöfina í kaupmálan- um. Frá síðustu öld eru til dæmi um að konur hafi fengið hest, kind, armband, hring eða borðbúnað í morgungjöf en á síðari árum er al- gengast að um skartgripi sé að ræða. Þótt uppruni siðarins sé ef til vill ekki í samræmi við hjónabandshug- myndir nútímamanna er morgun- gjöf fallegur siður sem sjálfsagt er að halda við. Á tímum jafnréttis hefur líka færst í aukana að brúður- in gefi brúðgumanum gjöf enda fátt rómantískara en að skiptast á gjöf- um morguninn eftir brúðkaupið. Heimild: Árni Björnsson, Merk- isdagar á mannsævinni. Nú til dags er algengast að skartgripir séu gefnir í morgungjafir. M YN D /G ET TY Fallegur siður að morgni Það er hefð fyrir því að eiginmaður færi eiginkonu sinni gjöf morguninn eftir brúðkaupið.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.