Fréttablaðið - 28.06.2005, Blaðsíða 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Lífsaugað
Þriðjudagskvöld 22-24
Mikil eftirspurn er eftir svonaefni og því svörum við að sjálf-
sögðu með viðeigandi framboði.
Eitthvað á þessa leið mælti sjón-
varpsstjóri þegar hann gerði stoltur
grein fyrir þeim hæðum sem einka-
stöðvar hafa nú náð með samningum
við Leikstrákaveldið eða Playboy.
Þjóðin tekur andköf því enn einni
eftirspurninni er fullnægt með
glæsilegu framboði og um mann fer
hrollur yfir þeim mikla metnaði sem
einkennir slíka dagskrárgerð.
OG NÚ ná „rannsóknarblaðamenn“
nýjum hæðum við vinnu sína. Starf-
ið felst í því að sitja fyrir þekktum
landsmönnum – helst þegar þeir
halda að þeir njóti einkalífs. Það
felst líka í því að hlusta á raunir ör-
væntingarfullra einstaklinga sem
eru viti sínu fjær af sorg og óham-
ingju eftir persónulegar hremming-
ar – hlusta, skrifa hjá sér og birta.
Starfið felst líka stundum í því að
færa í stílinn, teygja orð og toga,
selja uppblásin orð. Enginn stenst
stækkunarglerið og síst hefði maður
áhuga á að sjá svo nákvæmar sögur
af einkalífi einstakra ritstjóra eins
og sést hafa undanfarið um fólk sem
stendur á krossgötum í lífi sínu.
Stundum þurfa blaðamenn að hafa
þrek til þess að þegja líkt og þeir
þurfa að þora þegar aðrir þegja,
eins og slagorðið segir.
BARNAHÓPURINN stækkar
sem horfir opinberlega á fyrirmynd-
ir sínar og forsjármenn dregna
tjöruborna og fiðraða í gegnum for-
arsvað slúðurblaða. Þessi börn
sækja ekki rétt sinn til einkalífs –
jafnvel þótt starfandi sé umboðs-
maður barna. Slorblaðasnápar og
papparassar starfa á stundum í
skjóli þess að fórnarlömb þeirra eru
oftar en ekki minni máttar og krefj-
ast ekki friðhelgi fyrir dómstólum.
NÝLEGA gekk ungt par í það heila-
ga í faðmi sinna nánustu. Brúðurin
stóð í óþarfa samningaviðræðum við
Blaðrað og bullað um að blaðið léti í
friði þessa heilögu einkaathöfn.
Tókst það eftir talsvert þóf. Íslensk
blaðamannastétt er skipuð fagfólki
með metnað og ábyrgð. Meðal þeirra
starfa þó nokkrar slúðurskjóður frá
Leiti sem færi betur að sitja áfram
við eldhúsborðið yfir sterku kaffi og
öskubakka og súpa sínar hveljur sín-
ar þar. Það vilja þær þó alls ekki
gera þar sem þær telja sig vera að
anna mikilvægri eftirspurn.
BAKÞANKAR
KRISTÍNAR HELGU
GUNNARSDÓTTUR
Eftirspurnin