Fréttablaðið - 28.06.2005, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 28.06.2005, Blaðsíða 8
1Hvað heitir formaður Skógræktar-félags Íslands? 2Hverjir fengu rauða spjaldið í leikFylkis og FH á Íslandsmóti karla í fótbolta? 3Hversu mikið safnaðist í Neyðarhjálpúr norðri? SVÖRIN ERU Á BLS. 30 VEISTU SVARIÐ? 8 28. júní 2005 ÞRIÐJUDAGUR Í mál við ríkið vegna nýrra laga um fasteignasölur: Málssókn undirbúin af krafti DÓMSMÁL Unnið er hörðum hönd- um að því að undirbúa málssókn nokkurra manna, sem eiga og reka fasteignasölur, á hendur rík- inu, að sögn Halldórs Backmans héraðsdómslögmanns. Stefnt er að því að málið verði tekið fyrir í héraðsdómi í september. Umræddir einstaklingar telja, að í nýjum lögum um fast- eignasölur felist brot á ákvæð- um stjórnarskrárinnar um eignarétt og atvinnufrelsi. Með gildistöku laganna er gert skylt að þeir sem eiga og reka fast- eignasölur verði að afla sér lög- gildingarréttinda. Eins og komið hefur fram í Fréttablaðinu upp- fylla ekki allir þau skilyrði sem þarf til að sækja löggildingar- nám en þar er meðal annars krafist stúdentsprófs. Þá kveða nýju lögin á um að sé fasteignasala stunduð í nafni fé- lags skuli fasteignasalinn eiga meirihluta í því. Halldór segir þetta þýða, að eigendur sem séu án löggildingar verði að selja fyr- irtæki sín. Sú sala geti ekki farið fram nema innan þröngs hóps og með þessu sé verið að gera um- ræddar fasteignasölur nánast verðlausar. Um sé að ræða hreina eignaupptöku að mati umbjóð- enda sinna. -jss Hrun Framsóknarflokks í nor›urkjördæmunum Framsóknarflokkurinn tapar meira en tuttugu prósentustiga fylgi í nor›austurkjördæmi samkvæmt könnun. Flokkurinn fékk besta kosningu í flessu kjördæmi í sí›ustu kosningum og fjóra flingmenn. STJÓRNMÁL Framsóknar- flokkurinn tapar rúmlega tuttugu prósenta fylgi í norðausturkjördæmi sam- kvæmt könnun Gallup frá því í byrjun mánaðarins. Flokkurinn mælist nú með 12,3 prósenta fylgi en í síð- ustu alþingiskosningum hlaut hann 32,8 prósent. Hefur hann því tapað 20,5 prósentustiga fylgi í kjör- dæminu frá því í kosning- unum ef marka má könnun Gallup. Samfylking mælist með mest fylgi í kjördæminu eða 31 prósent og eykur fylgi sitt úr 23,5 prósent- um, Sjálfstæðisflokkur fengi 29 prósent en hlaut 23,5 prósent í kosningum, Vinstri-grænir fengju 23,7 prósent og fengu 14,1 pró- sent í kosningum og Frjálslyndir mælast með 3,4 prósent en höfðu 5,6 prósent í síðustu kosningum. Alls tóku 144 afstöðu í norð- austurkjördæmi en könnunin var hluti af þjóðarpúlsi Gallup og mældi afstöðu til stjórnmála- flokka á landsvísu í síðasta mán- uði. Vera má að lítið úrtak í hverju kjördæmi endurspegli ekki nægj- anlega vel afstöðu til stjórnmála- flokkanna í hverju kjördæmi fyr- ir sig. Í könnun Gallup mældist fylgi Framsóknarflokksins í sögu- legu lágmarki en flokkurinn tapar mestu fylgi í norðaust- urkjördæmi þegar litið er til allra kjördæma. Í norðvesturkjör- dæmi bæta Vinstri- grænir og Samfylkingin við sig verulegu fylgi. Vinstri-grænir fá sam- kvæmt könnuninni 16,1 prósent en fengu 10,6 prósent í kosningu og Samfylking fengi 32,4 prósent en hlaut 23,2 prósent í alþingiskosn- ingum. Framsóknar- flokkurinn mælist með 11,9 prósent en hafði 21,7 prósent í kosning- um og Frjálslyndi flokk- urinn mælist með 10,6 prósent fylgi en fékk 14,2 prósent í síðustu kosningum. Alls tóku 103 einstak- lingar afstöðu í norðvesturkjör- dæmi. Úrtakið í könnun Gallup var 2.344 manns fyrir landið allt og svarhlutfall 61 prósent. hjalmar@frettabladid.is Þensla í Noregi: Húsnæ›isver› fer hækkandi NOREGUR Talsverð þensla hefur ver- ið á norskum fasteignamarkaði undanfarin misseri. Íbúðaverð hækkaði að jafnaði um 4,1 prósent á milli fyrsta og annars ársfjórðung þessa árs en hefur síðan 1993 hækkað um 103,7 prósent. Á sama tíma hefur vísitala neysluverðs ein- ungis hækkað um fjórðung. Lágir vextir og traustur efnahagur eru sagðar orsakir verðhækkananna. Terje Hansen hagfræði- prófessor sagði í viðtali við Aften- posten að til þess að slá á þensl- una mætti afnema vaxtabætur, því þá myndi spurn eftir lánsfé dragast saman. Ólíklegt er þó að pólitísk samstaða náist um það. ■ SADDAM HUSSEIN Hefur verið í fangelsi síðan 2003 en var þá búinn að skrifa skáldsögu sem nú á að gefa út. Skáldsaga Saddams: Bönnu› í Jórdaníu JÓRDANÍA Jórdanir hafa bannað út- gáfu á nýrri skáldsögu eftir Saddam Hussein. Yfirvöld óttast að bókin, sem fjallar um araba sem vinnur sigur yfir erlendum aðkomumanni, gæti haft skaðleg áhrif á samskipti Jórdaníu við nýja valdhafa í Írak. Búið er að prenta tíu þúsund eintök af bókinni, sem bíður nú dreifingar í öðrum löndum arab- íska heimsins. Dóttir Saddams, búsett í Jórdaníu, stendur fyrir útgáfunni, en bókin hafði beðið útgáfu í upplýsingamálaráðu- neyti Husseins þegar innrásin var gerð í Írak fyrir tveimur árum. ■ GAY PRIDE Mikið verður eflaust um dýrðir þegar Gay Pride-gangan verður farin í Jer- úsalem, þvert á vilja margra borgara. Gay Pride í Jerúsalem: Samkynhneig›- ir fá a› ganga ÍSRAEL, AP Gay Pride-gangan verð- ur farin í Jerúsalem þrátt fyrir að borgarstjórinn þar hafi bannað hana. Þetta er niðurstaða ísraelsks dómstóls sem að auki dæmdi borgarstjórann til þess að greiða skipuleggjendum hátíðarinnar andvirði tæpra fimmtíu þúsund íslenskra króna í sekt úr eigin vasa. Hommar og lesbíur hafa deilt við strangtrúaða gyðinga og múslima, sem vilja ekki sjá Gay Pride í þessari helgu borg. Óhætt er að fullyrða að samstaða náist ekki á hverjum degi milli þessara tveggja hópa. ■ Reykjagarður hf. · Fossháls 1 · 110 Reykjavík · Sími 575 6440 · 110 Reykjavík · Bréfasímar: 575 6490 · www.holta.is Reykjagarður hf www.holta.is Upplýsingar um vöruúrval Reykjagarðs og uppskriftir er að finna á heimasíðu fyrirtækisins www.holta.is FASTEIGNAVIÐSKIPTI Ný lög um fasteigna- sölur setja þrengri skorður um skilyrði sem menn verða að uppfylla til að mega ann- ast fasteignaviðskipti.                     !"# $%  !"#           & 

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.