Fréttablaðið - 02.07.2005, Side 2
2 2. júlí 2005 LAUGARDAGUR
Þingmenn samþykktu vantraust á stjórnina að beiðni Schröders:
Óskar eftir endurn‡ju›u umbo›i
ÞÝSKALAND, AP Þýska stjórnin er fall-
in, ári áður en kjörtímabil hennar
rennur út. Gerhard Schröder kansl-
ari óskaði í gær eftir og fékk van-
traust þingsins sem gerir honum
kleift að efna til nýrra kosninga.
Schröder hyggst óska eftir end-
urnýjuðu umboði til að fara með
stjórn landsins, nokkuð sem gæti
reynst honum erfitt þar sem mikill-
ar óánægju gætir með slæmt at-
vinnuástand og staðnaðan efnahags.
Þýsk lög heimila einungis að efnt sé
til nýrra kosninga ef samþykkt er
vantraust á sitjandi stjórn og því fór
Schröder þess á leit við þingmenn
að þeir samþykktu vantraust á
stjórn sína. 296 þingmenn lýstu van-
trausti á stjórnina en 151 vildi að
hún sæti áfram.
Schröder vísaði til slaks gengis
Jafnaðarmannaflokks síns í fylkis-
kosningum sem rökstuðnings fyrir
nýjum kosningum.
Angela Merkel, leiðtogi Kristi-
legra demókrata, sagði Schröder
ófæran um að stjórna Þýskalandi,
mikið atvinnuleysi og lítill hagvöxt-
ur um nokkurra ára skeið væru til
marks um það. ■
DÓMSMÁL Paul Geoffrey Gil, sem
er einn þremenninganna sem
þeytti skyri yfir ál-ráðstefnugesti
14. júní síðastliðinn, hlaut í gær
tveggja mánaða skilorðsbundinn
dóm í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Til frádráttar refsingunni kemur
þó gæsluvarðhald hans frá 15. til
18. júní. Skaðabótakröfu Flug-
leiðahótela ehf. sem hljóðar upp á
tæpar þrjár milljónir króna var
hins vegar vísað frá þar sem hún
myndi valda töf og óhægræði á
málinu, eins og segir í dómnum.
Guðjón Arngrímsson upplýs-
ingafulltrúi FL group segir
menn þar á bæ ekki vilja tjá sig
að svo stöddu um dóminn þar
sem mál Paul hefði verið klofið
frá máli hinna tveggja og uns
þeir hefðu hlotið sinn dóm væri
málinu ólokið. Hann segir hins
vegar ljóst að fyrirtækið hafi
orðið fyrir skaða og eðlilega
ættu menn von á að fá hann
bættan.
Paul vildi ekkert tjá sig um
málið að afloknum dómi. Hann uni
dómnum en einnig ber honum að
greiða tvöhundruð þúsund krónur
í sakarkostnað.
-jse
Vissu ekki um
fréttatilkynningu
Fulltrúar fl‡ska bankans Hauck & Aufhäuser heyr›u fyrst af opinberri um-
ræ›u um bankann á Íslandi sí›astli›inn mi›vikudag. Tilkynning frá fl‡ska
bankanum var send fjölmi›lum sí›asta mánudag.
EINKAVÆÐING Fulltrúi þýska
bankans Hauck & Aufhäuser
segist fyrst á miðvikudag hafa
heyrt af því að opinber umræða
um bankann ætti sér stað á Ís-
landi, þegar Fréttablaðið óskaði
eftir símaviðtali við Peter Gatti,
fyrrum stjórnarmann í Eglu og
framkvæmdastjóra og meðeig-
anda Hauck & Aufhäuser. Þetta
sagði fulltrúi Gatti þegar
Fréttablaðið leitaði eftir viðtali
við hann eða aðra forsvarsmenn
bankans í höfuðstöðvum hans í
Frankfurt í Þýskalandi. Þá sagði
fulltrúi Gattis að honum væri
ekki kunnugt um að nokkur
fréttatilkynning hefði verið
send út á vegum bankans til Ís-
lands.
Kristinn Hallgrímsson, lög-
maður Eglu sagði í viðtali við
Fréttablaðið á fimmtudag að
þýski bankinn hafi ákveðið að
senda frá sér yfirlýsingu í kjöl-
far samtala forsvarsmanna Eglu
við forsvarsmenn þýska bank-
ans þar sem þeir síðarnefndu
voru upplýstir um þá umræðu
sem hefur átt sér stað í fjölmiðl-
um hérlendis, þar sem eignar-
hald þeirra á hlutum í Eglu hef-
ur verið dregið í efa.
Í íslensku fréttatilkynning-
unni sem birtist fjölmiðlum á
mánudag segir að hlutabréf
þýska bankans Hauck &
Aufhäuser í Búnaðarbankanum
og síðar KB banka hafi verið bók-
uð í ársreikningi bankans meðan
þau voru í eigu hans og er hún
sögð yfirlýsing Peter Gatti. Í
ensku tilkynningunni kemur
hinsvegar fram að hlutur þýska
bankans í Eglu hafi verið færður
í reikningsskil bankans. Engar
leiðréttingar hafa verið sendar
vegna þessa misræmis í þýðingu
framkvæmdarstjóra Eglu, Guð-
mundar Hjaltasonar. Fréttatil-
kynningin var send út á bréfsefni
bankans, sem starfsmaður At-
hygli segist hafa fengið í hend-
urnar frá forsvarsmönnum Eglu
hf.
Guðmundur Hjaltason vildi
ekki tjá sig um málið og ekki
náðist í Kristin Hallgrímsson.
hjalmar@frettabladid.is
Lögreglan í Reykjavík:
Vara› vi›
innbrotum
LÖGREGLUFRÉTTIR Mjög mikilvægt er
að ganga vel frá húsum sínum þeg-
ar farið er í frí, segir Arinbjörn
Snorrason aðalvarðstjóri hjá Lög-
reglunni í Reykjavík. Fyrstu helg-
ina í júlí leggja margir land undir
fót og er mikilvægt að tryggja sig
gegn innbrotum.
„Faglegir þjófar kíkja eftir atrið-
um eins og uppsöfnuðum pósti og
tómum sorptunnum,“ segir Arin-
björn. Hann bætir við að einfalt geti
verið fyrir fólk að verja sig gegn
innbrotsþjófum með hjálp frá ná-
grönnum og ættingjum. ■
Önnur mesta ferðahelgin:
Vi›búna›ur
hjá lögreglu
LÖGREGLUFRÉTTIR Fyrsta helgin í júlí
hefur verið önnur stærsta ferða-
helgi sumarsins. Lögreglan er með
aukinn viðbúnað á nokkrum stöðum
þar sem búist er við mannmergð,
auk herts umferðareftirlits í tengsl-
um við umferðarátak Umferðar-
stofu.
Að sögn lögreglunnar á Hvols-
velli eru allir tiltækir lögreglumenn
á vakt. Bæði verður aukið umferð-
areftirlit, almennt eftirlit svo og
fíkniefnaeftirlit. Á Höfn er lögregl-
an í viðbragðsstöðu með aukinn
mannskap en strax hafa menn verið
teknir fyrir ölvunarakstur. ■
SPURNING DAGSINS
Stefán, er R-listinn eins og lax-
inn, erfitt a› sleppa honum?
„Það er langbest að sleppa þeim sem eru
í útrýmingarhættu, en R-listinn hefur
hingað til verið sterkur stofn.“
Stefán Jón Hafstein, borgarfulltrúi Reykjavíkurlist-
ans og laxveiðimaður, telur að lax sé í útrýminga-
hættu því veiðimenn hafi ekki tekið tilmælum
nógu alvarlega um að sleppa stórlaxi.
KEPPINAUTAR Á ÞINGI Gerhard Scröder og Angela Merkel keppast á næstu mánuðum um hylli kjósenda fyrir væntanlegar kosningar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
PAUL GEOFFREY GIL OG ARNA ÖSP MAGNÚSARDÓTTIR Paul gengur út úr dómssal í gær
en Arna Ösp veitti honum liðsfylgd. Hennar biður þó ennþá dómur og spurning er hvort
skaðabótakröfu Flugleiðahótela verði þá vísað frá.
Manndráp í Mosfellsbæ:
Ákæra birt
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari birti í
gær karlmanni á þrítugsaldri
ákæru fyrir stórfellda líkamsárás
aðfaranótt 12. desember síðastlið-
inn. Karlmaður á sextugsaldri
beið bana í árásinni sem átti sér
stað á veitingahúsinu Ásláki í
Mosfellsbæ.
Árásarmanninum er gefið að
sök að hafa kýlt manninn með
krepptum hnefa með fyrrgreind-
um afleiðingum. Þess er krafist að
ákærði verði dæmdur til refsingar
og einnig er krafist átján milljóna
króna samanlagt í miskabætur. -bs
Skaðabótakröfu Flugleiðahótela vísað frá:
Dæmdur fyrir skyrslettingar
HAUCK & AUFHÄUSER Höfuðstöðvar Hauck & Aufhäuser. Látlaus fjögurra hæða bygging í
Keisaragötu í Frankfurt.
LÖGREGLUFRÉTTIR
SLAPP ÓBROTINN EFTIR TÓLF
METRA FALL Með ólíkindum er að
ungur verkamaður hafi sloppið
óbrotinn eftir að hafa fallið tólf
metra niður. Að sögn lögreglu var
hann að störfum á svölum nýbygg-
ingar í Garðabæ við að ganga frá
timbri þegar hann féll niður á
steinplötu. Drengurinn, sem fædd-
ur er árið 1988, fór úr lið, fékk
áverka í andliti og brákuð bein en
slapp að öðru leyti ómeiddur.
FYRIR FRAMAN RÁÐUNEYTIÐ Sprengju-
sveitarmenn gerðu sprengjuna á líki til-
ræðismannsins óvirka.
Tilræði í ráðuneyti:
Árásarma›ur
féll í valinn
TYRKLAND, AP Tyrkneskir lögreglu-
menn skutu karlmann í dóms-
málaráðuneytinu þar sem hann
reyndi að tendra sprengju sem
hann bar á sér. Maðurinn lagði á
flótta en var skotinn fyrir utan
ráðuneytið þar sem hann lá særð-
ur á jörðinni og reyndi að sögn að
sprengja sig í loft upp.
Lögregla hefur borið kennsl á
tilræðismanninn sem sagður er
hafa verið félagi í marxískri bylt-
ingarhreyfingu sem stjórnvöld í
Tyrklandi hafa bannað. Maðurinn
er sagður hafa skipulagt tvær
árásir, eina á brúðkaup sonar for-
sætisráðherrans 2003 og aðra á
ráðherrafund Nató í fyrra. ■