Fréttablaðið - 02.07.2005, Side 6
6 2. júlí 2005 LAUGARDAGUR
Fjórmenningar dæmdir í fíkniefnamáli:
Ræktu›u kannabis í haughúsi
DÓMSMÁL Þrír karlmenn og ein
kona á fimmtugsaldri voru í gær
í Héraðsdómi Reykjavíkur
dæmd í skilorðsbundið fangelsi
fyrir að eiga og rækta kannabis-
plöntur í haughúsi undir fjósi á
sveitabæ í Ölfusi. Húsleit var
gerð árið 2003 og fundust þá 671
kannabisplanta, ásamt 203
grömmum af maríjúana og 224
grömmum af kannabisstönglum.
Auk þess ræktaði fólkið 300 aðr-
ar plöntur sem gáfu af sér að
minnsta kosti 1.500 grömm af
maríjúana.
Hjónin á bænum lögðu til
húsnæði og önnuðust daglega
umhirðu plantanna. Þau hafa
ekki sætt refsingu áður. Konan
var dæmd í 45 daga skilorðs-
bundið fangelsi en maðurinn
fjóra mánuði. Hinir mennirnir
tveir lögðu til 20 kannabisplönt-
ur, gróðurlampa og hitablásara,
en alls voru tólf gróður-
húsalampar notaðir við ræktun-
ina. Báðir eiga nokkurn sakafer-
il að baki. Annar þeirra hlaut sjö
mánaða dóm en hann var einnig
ákærður fyrir að hafa í vörslu
sinni sextán grömm af kókaíni.
Hinn var að auki ákærður fyrir
að eiga haglabyssu án skotleyfis
og hlaut hann sex mánaða fang-
elsisdóm.
- rsg
Skýrsla um öryggismál á tímum kalda stríðsins:
Engir danski ofurnjósnarar
DANMÖRK Ríkisstjórnum austan-
tjaldsríkjanna tókst ekki að fá
háttsetta danska embættismenn
til að njósna fyrir sig á tímum
kalda stríðsins. Þetta kemur fram
í nýrri skýrslu sem kynnt var í
vikunni.
Út er komin skýrsla Dönsku
rannsóknarstofnunarinnar í al-
þjóðarannsóknum (DIIS) um ör-
yggismál í Danmörku á tímum
kalda stríðsins. Þar kemur fram
að á árunum 1972-88 voru 26 Dan-
ir á mála hjá austur-þýsku leyni-
þjónustunni Stasi en enginn þeirra
er talinn hafa haft aðgang að upp-
lýsingum sem snertu öryggi rík-
issins.
Leyniþjónustur Sovétmanna og
leppríkja þeirra eru sagðar hafa
gert ítrekaðar en árangurslausar
tilraunir til að fá háttsetta danska
embættismenn til liðs við sig,
bæði úr stjórnsýslunni og úr hern-
um. „Engir danskir ofurnjósnarar
voru til á tímum kalda stríðsins,
eins og þekktist til dæmis í Vestur-
Þýskalandi,“ sagði Svend Aage
Christiansen, aðalhöfundur
skýrslunnar, í viðtali við Berl-
ingske Tidende. -shg
Vi›ræ›ur hefjast
í næstu viku
VARNARMÁL Davíð Oddsson utanrík-
isráðherra segir að á vegum ís-
lenskra stjórnvalda fari sjö til tíu
manna nefnd til fundar við fimmt-
án manna viðræðunefnd Banda-
ríkjamanna til að ræða framtíð
varnarsamningsins við Banda-
ríkjamenn. Fundirnir verða í Was-
hington næstkomandi miðvikudag
og fimmtudag. Viðræðunefnd
Bandaríkjamanna er búin að sam-
ræma sjónarmið milli ráðuneyta
utanríkismála og varnarmála með
ákveðnum atbeina Hvíta hússins.
„Þetta er mjög þýðingarmikið,“
segir Davíð. „Fram kemur í þeim
gögnum sem við höfum að gert er
ráð fyrir því að þessir samninga-
fundir verði byggðir á þeim sam-
tölum sem ég átti við Bandaríkja-
forseta, fyrrverandi utanríkisráð-
herra og síðan núverandi utanríkis-
ráðherra. Þannig að ég er mjög
ánægður með að það sé grundvöll-
urinn sem á er byggt. Ég vonast til
þess að málið komist á hreyfingu á
þessum fundum en býst ekki við
því að fyrsti fundurinn leiði til nið-
urstöðu.“
Davíð Oddson vill ekki ræða
efni fundanna nánar og segir það
ekki hollt vegna viðræðnanna. „En
ég held að óhætt sé að segja að við
byggjum á því að varnarsamning-
urinn verði í heiðri hafður. En jafn-
framt verður að ræða breytingar
sem orðið hafa í tilverunni og að-
lögun að þeim.“
Nefnd á vegum Bandaríkja-
manna, sem fjallar um fækkun her-
stöðva innan- og utanlands, hefur
lagt til að varnarsamningurinn við
Íslendinga verði lagaður að breytt-
um öryggisaðstæðum í kjölfar
kalda stríðsins. „Við höfum túlkað
það svo að eðlilegt sé að laga sig að
því hættumati sem menn horfa á
hvarvetna í heiminum á hverjum
tíma. Við teljum að við höfum þeg-
ar gert það. Um leið verðum við að
líta til þess að grundvallar varnar-
viðbúnaður sé til staðar í samræmi
við það sem varnarsáttmáli ríkj-
anna á að tryggja.“
Davíð telur ekki óeðlilegt að Ís-
lendingar horfi til þess að taka
nokkurn þátt í þeim kostnaði sem
nú falli til vegna þess að hlutur al-
menns flugs gagnvart herflugi hafi
breyst. „Á móti kemur að Banda-
ríkjaher er með þennan flugvöll og
hefur leyfi til þess að taka hann ef
vá stendur fyrir dyrum og fara þá
með stjórn flugvallarins gersam-
lega. Þannig að menn hljóta að taka
einnig tillit til þess sem menn ræða
og athuga varðandi kostnað og
dreifingu kostnaðar, segir Davíð.
johannh@frettabladid.is
Kínverskir borgarstarfsmenn:
Skilji› bindin
eftir heima
KÍNA, AP Í fyrsta sinn hafa borgaryf-
irvöld í Peking beðið opinbera
starfsmenn um að sleppa bindinu og
mæta í vinnuna í léttum og þægileg-
um fatnaði í stað jakkafatanna sem
þeim er skylt að klæðast. Með því
vilja yfirvöld draga úr þörfinni á
loftkælingu í skrifstofubyggingum
svo sporna megi við orkuskorti.
Mikil uppbygging í atvinnulífi
Kína á undanförnum árum, ekki síst
í iðnaði, hefur leitt til orkuskorts í
mörgum borgum. Borgaryfirvöld í
Peking hafa fyrirskipað að loftkæl-
ing sé spöruð en komu til móts við
starfsmenn með leyfi til léttari
klæðaburðar. ■
Pappírsiðnaður:
Sjö vikna
deilu loki›
FINNLAND, AP Sjö vikna verkfalli
starfsmanna í pappírsiðnaðinum
og verkbönnum af hálfu vinnu-
veitenda lauk í gær þegar verka-
lýðsforkólfar og atvinnurekendur
samþykktu þriggja ára kjara-
samning.
Deilan hefur haft mikil áhrif.
24 þúsund manns fóru af launa-
skrá 18. maí og talið er að Finnar
hafi tapað andvirði 118 milljóna
króna á því að útflutningur féll
niður meðan engin starfsemi var í
pappírsverksmiðjum landsins.
Starfsmenn sneru aftur til
starfa í gær og búist er við því að
allt verði komið á fullt í næstu
viku. ■
Nýr talsmaður neytenda:
Gísli skipa›ur
NEYTENDAMÁL Gísli Tryggvason hef-
ur verið skipaður talsmaður neyt-
enda. Viðskiptaráðherra skipar í
embættið sem er
tilkomið vegna
breytinga á laga-
ramma um sam-
keppnismál. Frá
árinu 1998 hefur
Gísli verið fram-
k v æ m d a s t j ó r i
Bandalags há-
skólamanna en
hann er lögfræðingur ásamt því að
hafa lokið meistaraprófi í við-
skiptafræði og stjórnun frá Háskól-
anum í Reykjavík.
Tólf aðrir umsækjendur voru
um stöðuna, þar á meðal Jóhannes
Gunnarsson sem hefur verið for-
maður Neytendasamtakanna nær
óslitið í tuttugu ár. ■
Ferð þú í tjaldferðalag
í sumar?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefur þú neytt ólöglegra
eiturlyfja?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
57%
43%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
KANNABISPLÖNTUR Fjórmenningarnir
höfðu klætt haughúsið að innan, lagt
þangað vatn og rafmagn og komið fyrir
loftræstingarbúnaði og hitablásurum.
GÍSLI TRYGGVASON
Ölvunarakstur:
Beinbrotinn
eftir bílveltu
LÖGREGLUFRÉTTIR Farþegi beinbrotn-
aði þegar ökumaður um tvítugt
missti stjórn á fólksbifreið norðan
Akrafjalls á Vesturlandsvegi við
Borgarnes. Bifreiðin valt. Lögregl-
an grunar ökumanninn og farþeg-
ann um að hafa verið undir áhrifum
áfengis.
Mennirnir ungu voru báðir flutt-
ir með sjúkrabíl undir læknishend-
ur á Akranesi. Ökumaðurinn slapp
óbrotinn. Bifreiðin er ónýt. Hún var
flutt burt með kranabíl. - gag
LÖGREGLUFRÉTTIR
UMFERÐAREFTIRLIT Í SKAGAFIRÐI
Fimmtán hraðaksturskýrslur
voru gefnar út af lögreglunni á
Sauðárkróki í fyrradag. Umferð-
arátak hófst þar fyrr í vikunni og
hafa tugir manna verið stöðvaðir
síðan. Enginn af þessum fimmtán
ökumönnum var tekinn fyrir
ofsaakstur heldur mældist hrað-
inn hæstur um 120 kílómetrar á
klukkustund.
SJÚKRAFLUTNINGAR Á HÖFUÐ-
BORGARSVÆÐINU Mikill erill var
hjá slökkviliðinu í Reykjavík í
gær. Mjög mikið var um sjúkra-
flutninga og allir bílar úti þegar
mest lét. Engin stórslys voru
heldur voru sjúkrabílarnir að
flytja hjartveika og aðra á
sjúkrahús.
ANKER JØRGENSEN Jørgensen var forsæt-
isráðherra Danmerkur á árunum 1972-73
og 1972-82
Skoðanakönnun:
Forsetinn
ekki vinsæll
FRAKKLAND, AP Einungis fimmti
hver Frakki er sáttur við frammi-
stöðu Jacques Chirac Frakklands-
forseta, samkvæmt nýrri skoð-
anakönnun sem birt var í Le Fig-
aro. Sjö af hverjum tíu eru hins
vegar ósáttir við forsetann og
störf hans.
Nicolas Sarkozy innanríkisráð-
herra nýtur mestra vinsælda sam-
kvæmt könnuninni, 51 prósent að-
spurðra er sátt við störf hans. Sar-
kozy fer ekki leynt með að hann
sækist eftir forsetaembættinu
næst þegar verður kosið um það,
árið 2007.
Dominique de Villepin forsæt-
isráðherra nýtur stuðnings 39
prósenta Frakka en býr við and-
stöðu 49 prósenta þeirra. ■
JACQUES CHIRAC 70 prósent Frakka eru
ósátt við forseta sinn.
NOREGUR
ÚTRÁS RAFORKURISA Ríkisrekna
raforkufyrirtækið Statkraft í Nor-
egi hefur keypt 24 raforkuver í
Svíþjóð og Finnlandi af sænska
fyrirtækinu Sydkraft fyrir and-
virði 37 milljarða íslenskra króna.
Kaupin koma í kjölfar yfirlýsingar
fyrirtækisins um að reisa raforku-
ver í Þýskalandi fyrir 31,5 millj-
arða íslenskra króna.
Utanríkisrá›herra b‡st ekki vi› a› ni›ursta›a um framtí› Bandaríkjahers á
Keflavíkurflugvelli fáist á fyrsta fundi um varnarsamninginn. Breytingar á
samningnum séu e›lilegar í samræmi vi› aukin umsvif farflegaflugs.
DAVÍÐ ODDSSON UTANRÍKISRÁÐHERRA: „Ekki óeðlilegt að Íslendingar horfi til þess að
taka nokkurn þátt í þeim kostnaði sem nú fellur til vegna þess að hlutur almenns flugs
gagnvart herflugi hafi breyst.“