Fréttablaðið - 02.07.2005, Qupperneq 10
Mælir me› ska›abótamáli
„Lögreglurannsókn efnahags-
brotadeildar Ríkislögreglu-
stjóra hefur nú staðið stans-
laust, eftir því sem í veðri er lát-
ið vaka, allt frá 28. ágúst 2002
eða í tvö ár og níu mánuði án
þess að sakborningum hafi verið
gerð formleg grein fyrir gangi
málsins og hugsanlegum rann-
sóknarlokum. Þótt margt sé
óljóst um umfang og eðli þessar-
ar lögreglurannsóknar, gagn-
semi hennar og líklegan árang-
ur, má þó fullyrða að hún tekur
sífellt á sig nýjar myndir með
nýjum sakarefnum, jafnóðum og
eldri sakarefni eru skýrð eða
hrakin af hálfu Baugs Group hf,
stjórnenda félagsins, lögfræð-
inga og endurskoðenda.“
Þannig ritar Jónatan Þór-
mundsson lagaprófessor í nýrri
lögfræðilegri álitsgerð sinni um
Baugsmálið, sem hófst með hús-
leit efnahagsbrotadeildar Ríkis-
lögreglustjóra fyrir nærri þrem-
ur árum.
Úrskurðurinn um húsleitar-
heimildina hvíldi á ásökunum
Jóns Geralds Sullenberger um
að Jón Ásgeir Jóhannesson
stjórnarformaður Baugs og
Tryggvi Jónsson forstjóri hefðu
dregið sér fé frá félaginu.
Jónatan Þórmundsson hefur
margt við lögreglurannsóknina
að athuga í álitsgerð sinni, en
tekur fram að við margs konar
hindranir sé að glíma. Hann
nefnir einkum þá leynd sem
hvílir yfir rannsókninni af hálfu
Ríkislögreglustjóra.
Skemmtibáturinn í Flórida
Eftir að hafa rakið ein-
kenni auðgunarbrota
snýr lagaprófessorinn
sér að því að rekja sak-
argiftir og segir þær
einfaldlega ótraustar.
Annars vegar voru Jón
Ásgeir og Tryggvi
sakaðir um að
hafa með til-
búnum og
r ö n g u m
reikningum
látið Baug
hf. greiða
hátt í 500
þ ú s u n d
bandaríkja-
dali til
kaupa á
skemmtibáti
í Bandaríkj-
unum. Þenn-
an bát voru
þeir sagðir eiga
persónulega í fé-
lagi við áðurnefnd-
an Jón Gerald.
Í öðru lagi voru sakargiftir
þær að stjórnendur Baugs hefðu
gefið út tilhæfulausan reikning í
nafni Nordica Inc á Baug, sem
síðar hefði verið gjaldfærður
hjá félaginu án þess að nokkur
verðmæti kæmu fyrir þá upp-
hæð. Fjárhæð þessa reiknings
nam tæpum 600 þúsund banda-
ríkjadölum.
Um þetta segir Jónatan Þór-
mundsson: „Niðurstaða mín um
báða liði þessara sakargifta er
því sú að sakfellingargrundvöll-
ur sé nánast óhugsandi, ef til
málshöfðunar kæmi út af þess-
um viðskiptum. Til þess standa
sakarefnin á of veikum grunni
og sönnun óhugsandi gegn rök-
studdum skýringum og skjal-
festum gögnum sakborninga.
Þar að auki voru (og eru) hags-
munir hinna kærðu stjórnenda
og félagsins svo samofnir, að
það verður að teljast afar lang-
sótt refsiréttarlega séð að stilla
þessum aðilum upp sem gerend-
um og brotaþolum. Hvorki hlut-
hafar, lánardrottnar né aðrir
viðskiptamenn hafa, svo að vitað
sé, kvartað yfir meðferð fjár-
muna, ráðstöfunum stjórnenda
né yfirleitt upplifað fyrirtækið
Baug Group hf. sem fórnarlamb
í einhverjum fjárhagslegum
hráskinnaleik. Eina undantekn-
ingin, sem hér sannar regluna,
eru staðhæfingar fyrrum við-
skiptafélaga og kæranda máls-
ins.“
Önnur sakarefni
Sakarefnin eru fjölmörg önnur.
Þau tengjast bankaábyrgðum,
hugsanlegum umboðssvikum,
kaffiviðskiptum í Færeyjum,
viðskiptum með hluti í eignar-
haldsfélögunum Gaumi Holding
og A-Holding, sakarefni varð-
andi viðskiptareikninga,
greiðslukort og persónuleg út-
gjöld, lánveitingum til stjórn-
enda og hluthafa Baugs Group.
Í flestum tilvikum telur Jón-
atan Þórmundsson mikinn
vafa á að sekt verði sönn-
uð.
Litlar líkur á sakfellingu
Jónatan Þórmundsson
lagaprófessor telur að
litlar líkur séu á sak-
fellingu fyrir auðg-
unarbrot en mikl-
ar líkur séu til
þess að blásið
verði til máls-
sóknar við
b i r t i n g u
á k æ r u .
Fyrir því
s e g i r
h a n n
þ r j á r
ástæður.
Í fyrsta
lagi verði
samkrull lögreglu og ákæru-
valds í málum að þessu tagi til
þess að sami aðili, jafnvel sami
einstaklingur taki ákvarðanir
um rannsóknaraðgerðir. „Með
þessu fyrirkomulagi heyrir
sjálfstætt mat ákæruvalds sög-
unni til. Ákæruvaldið verður þá
gegnsýrt af einhliða rannsókn-
arsjónarmiðum án raunverulegs
endurmats sakarefna með stoð í
112 gr. laga nr. 19/1991.“
Í öðru lagi telur Jónatan hætt
við því að umfang ákæru ráðist
að nokkru af löngu rannsóknar-
ferli, miklu skjalamagni og
tímafrekum bókhaldsathugun-
um. „Ákæran gæti því mótast af
tímaþáttum og sýndarárangri
fremur en líklegum horfum á
sakfellingu.“
Í þriðja lagi segir Jónatan
orðrétt: „Allt rannsóknarferlið
bendir óneitanlega til óvenju
mikils ákafa og hörku rann-
sóknara að ná „árangri“ í mál-
inu og talsvert hefur vottað
fyrir vafasamri afstöðu rann-
sóknara til grundvallarregln-
anna um sönnunarbyrði ákæru-
valds og um sakleysi grunaðs
manns uns sekt hans er sönnuð.“
Höfða skaðabótamál
Jónatan Þórmundsson pró-
fessor hugleiðir í álitsgerð
sinni réttarúrræði og
réttarkröfur sem sak-
borningar í Baugsmál-
inu gætu gripið til. Á
grundvelli þeirrar
álitsgerðar hefur
stjórn Baugs Group hf. ákveðið
að krefja íslenska ríkið um
skaðabætur vegna þess tjóns
sem fyrirtækið telur sig hafa
orðið fyrir af völdum lögregl-
unnar.
Um réttarúrræðin og réttar-
kröfurnar segir Jónatan meðal
annars, að unnt sé að lögsækja
ríkið til heimtu skaðabóta vegna
tjóns af völdum ólöglegra lög-
regluaðgerða og óhæfilegra tafa.
Hann telur þann kost vænstan að
höfða almennt skaðabótamál og
segir orðrétt í lok álitsgerðarinn-
ar: „Búast má við, að lögreglu-
rannsókninni yrði þá hraðað og
henni lokið fyrr en ella. Jafn-
framt mundi slík málssókn sýna
ákveðinn styrk félagsins út á við
og staðfesta þá ímynd,
sem ég hef á þess-
ari stundu, að
f y r i r t æ k i ð
Baugur Group
hf. sé fremur
f ó r n a r l a m b
l ö g r e g l u a ð -
gerða en lög-
brota af hálfu
s t j ó r n e n d a
sinna.“ ■
Samtökin ‘78 hafa í áratugi barist
fyrir rétti samkynhneigðra á Íslandi.
Samtökin starfa sem hagsmunasam-
tök gagnvart þjóðfélagi og stjórn-
völdum og inn á við sem félagssam-
tök samkynhneigðra á Íslandi.
Skipta samtökin máli fyrir sam-
kynhneigða á Íslandi? Ég segi að
þau skipti miklu máli. Í grunninn
erum við hagsmunasamtök fyrir
lagalegum úrbótum og sýnileika. Þar
að auki rekum við þjónustumiðstöð
og bókasafn á Laugavegi 3. Á vett-
vangi félagsins starfa svo ýmsir hóp-
ar eins og ungmennahópur og trúar-
hópur.
Hefur staða samkynhneigðra
batnað undanfarið? Staðan hefur
gjörbreyst undanfarin ár, viðhorf al-
mennings og öll löggjöf og slíkt. Við
lifum samt ekki í fullkomnum heimi
og það er ekki komið að því að
samtökin fari að leggja sig niður, þó
það hljóti að vera hið endanlega
markmið.
Hvað er á döfinni hjá samtökun-
um? Að halda áfram á sömu braut.
Við vonum að við fáum að sjá laga-
frumvarp á næsta þingi þar sem
sambúðarmálin verða jöfnuð. Það
sem á vantar til að ná sama rétti og
hjónabönd gagnkynhneigðra þarf að
verða leiðrétt. Eins vantar mikið upp
á fræðslumál í skólakerfinu og at-
vinnulífinu.
HRAFNKELL TJÖRVI STEFÁNSSON
framkvæmdastjóri Samtakanna ‘78.
Vantar enn
upp á fræ›slu
SKIPTA SAMTÖKIN ‘78 MÁLI?
SPURT & SVARAÐ
10 2. júlí 2005 LAUGARDAGUR
Dr. Tan Sun Chen, utanríkisráðherra Tævan er
í heimsókn á Íslandi. Þótt utanríkisráðherrann
sé hér í einkaerindum hafa starfsmenn kín-
verska sendiráðsins tjáð yfirvöldum andstöðu
sína við heimsóknina vegna þess að mjög
stirt er á milli ríkisstjórnanna tveggja. Tævan
er lítil eyja úti fyrir ströndum Kína.
Hvers eðlis er samband Tævana og
Kínverja?
Tævan er lítil eyja úti fyrir ströndum Kína. Ríkis-
stjórn Kínverja viðurkennir ekki Tævan sem sjálf-
stætt ríki heldur hefur lýst því yfir margoft að eyjan
sé órjúfanlegur hluti Alþýðulýðveldisins Kína. Tæv-
an heldur fram sjálfstæði sínu og rúmlega það, því
enn er í fullu gildi krafa stjórnvalda um alger yfir-
ráð yfir öllu Kínaveldi og kalla Tævanir landið sitt
Lýðveldið Kína. Annað nafn yfir eyjuna er Formosa
sem er portúgalska og þýðir falleg eyja.
Hvert var upphaf deilnanna?
Upphaf deilnanna má rekja til þess þegar rík-
isstjórn Lýðveldisins Kína hrökklaðist til eyjar-
innar eftir að kommúnistar sigruðu heri
hennar árið 1949. Um langt skeið deildu rík-
isstjórnirnar tvær um hvor færi fyrir Kína á al-
þjóðavettvangi og átti Tævan miklu fylgi að
fagna, sérstaklega vegna stuðnings frá Banda-
ríkjunum. Tævan átti meðal annars sæti Kína í
Sameinuðu þjóðunum fram til ársins 1971 en
var þá útilokað.
Hver er staða Tævan á alþjóðavett-
vangi?
Tævan á enn í diplómatískum samskipt-
um við tuttugu og þrjú ríki. Flest eru
þessi ríki mjög lítil. Það stærsta er
Gvatemala, en það minnsta Túvalú ef frá
er talið Vatíkanið. Tævan heldur úti
sendiráðum í öllum þessum löndum en
stjórnvöld í Bejing hafa lagt mikinn
þrýsting á ríki heimsins um að slíta al-
þjóðlegum samskiptum við Tævan. Þessi
stirðleiki hefur þó ekki haft áhrif á efna-
hagslíf í Tævan en landið er eitt það rík-
asta í Asíu.
Krefjast algerra yfirrá›a yfir öllu Kínaveldi
FBL GREINING: TÆVAN
fréttir og fró›leikur
SVONA ERUM VIÐ
ÚRSKURÐIR SIÐANEFNDAR BLAÐA-
MANNAFÉLAGS ÍSLANDS 1985-2004
Mjög alvarlegt brot
Alvarlegt Brot
Ámælisvert
Ekki brot
62
4
23
29
HEIMILD: HAGSTOFAN
Úrskurðir samtals 118
Jónatan fiórmundsson prófessor í refsirétti segir a› málssókn sakborninga í Baugsmálinu gegn ríkinu
gæti s‡nt styrk Baugs út á vi› og sta›fest flá ímynd a› fyrirtæki› Baugur Group sé fremur fórnarlamb
lögreglua›ger›a en lögbrota af hálfu stjórnenda sinna.
JÓHANN HAUKSSON
BLAÐAMAÐUR
FRÉTTASKÝRING
ÁKÆRAN Í BAUGSMÁLINU
JÓNATAN ÞÓRMUNDSSON PRÓFESSOR Í REFSIRÉTTI Samkrull lögreglu og ákæru-
valds verður til þess að jafnvel sami einstaklingur getur tekið ákvarðanir um rannsóknar-
aðgerðir. „Með þessu fyrirkomulagi heyrir sjálfstætt mat ákæruvalds sögunni til.“
JÓN ÁSGEIR
JÓHANNESSON
Lagaprófessorinn telur
litlar líkur á að hann
verði sakfelldur.
TRYGGVI JÓNSSON
Tryggvi var forstjóri Baugs
á þeim tíma sem húsleit
var gerð í ágúst 2002.
Hann er einn þeirra sex
sem ákærðir eru.
MEÐ HEIMINN Í HENDI Ung táta leikur
sér að risalíkani af jarðarkringlunni við
Eiffel-turninn í París. Jörðin er bundin
þannig saman að hún sameinar norður-
og suðurhvel jarðar.