Fréttablaðið - 02.07.2005, Side 18

Fréttablaðið - 02.07.2005, Side 18
Rökke í steininn Norski athafnamaðurinn Kjell Inge Rökke, aðaleig- andi Aker Seafoods, hefur verið dæmdur í 120 daga fangelsi, en þar af eru 90 skilorðsbundnir, auk sakarkostnaðar. Dóminn fær hann fyrir að hafa mútað embættismanni til að veita honum sænsk skipstjórnarréttindi og siglt snekkjunni Cel- ina Bella án skírteinis. Rökke sagði við blaðamenn meðan á réttarhöldunum stóð að hann vildi heldur dúsa í fangelsi en að hlusta á rausið í lögfræðingum. Nú hefur kappanum líklega orðið að ósk sinni. Hann ætti því að hafa tíma til þess í steininum að lesa undir pungaprófið. Íslendingaálag á Norður- löndum Varla líður sá dagur að ekki komi einhver frétt af kaupum Íslendinga á erlendum fyrir- tækjum. Maersk var keypt í vikunni og heimsferðir keyptu tvær ferðaskrifstofur. Danir einkanlega hafa verið að klóra sér í hausnum yfir þessu öllu saman og hafa blaðamenn haft samband við marga hér heima til að leita skýringa á þessu öllu saman. Hin hliðin á pen- ingnum er sú að kaupslýslumenn á Norðurlöndunum fá glýju í augun þegar Íslendingar eru annars vegar. Ís- lenskir fjárfestar eru farnir að kvarta undan því að verðhug- myndir seljenda fyrirtækja hækki um fimmtán prósent um leið og Íslendingar birtast. Margir hafa því þurft að sýna hörku og þolinmæði til að ná álaginu niður aftur. Gárungar eru farnir að kalla þetta son- álagninguna á skandinavísk fyrirtæki. MESTA HÆKKUN ICEX-15 4.150 KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ] Fjöldi viðskipta: 261 Velta: 12.301 milljónir +0,40% MESTA LÆKKUN MARKAÐSFRÉTTIR... Seðlabanki Bandaríkjanna hef- ur hækkað stýrivexti sína um 0,25 prósent níunda skiptið í röð og hafa þeir nú alls verið hækkaðir um 1,25 prósent á einu ári. Stýri- vextir í Bandaríkjunum eru nú 3.25 prósent. Krónan styrktist um 0,18 pró- sent í gær. Gengisvísitalan byrjaði í 110,20 en var 110 í lok dags. Krónan hefur verið að styrkjast að undanförnu og má rekja það að hluta til erlendrar lántöku vegna hlutabréfakaupa. Í tengslum við nýafstaðið hlutafjárútboð seldi Actavis Group hf. þann 30. júní 198.613.449 eig- in hluti á genginu 38,5. Seldum hlutum verður ráðstafað sam- kvæmt skilmálum útboðs eins og þeir komu fram í útboðslýsingu. 18 2. júlí 2005 LAUGARDAGUR Peningaskápurinn… Actavis 40,20 +0,50% ... Bakkavör 39,20 +0,51%... Burðarás 15,40 +1,32%... FL Group 15,10 +0,67% ... Flaga 4,49 +2,05% ...Grandi 8,50 -0,58 ... Íslandsbanki 13,50 -0,37% ... Jarðboranir 22,00 +2,33 ... KB banki 537 +0,00% ... Kögun 59,40 - 1,00% ... Landsbankinn 18,17 +0,59% ... Marel 59,00 +0,85% ... SÍF +0,00 ...Straumur 12,15 +0,00% ... Össur 78,50 -1,26% Jarðboranir +2,33% Flaga +2,05% Burðarás +1,97% Össur -1,26% Kögun -1,00% Mosaic Fashions -0,71% HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Umsjón: nánar á visir.is Þrír stjórn- armenn FL Group hafa sagt sig úr stjórninni og aðr- ir stjórnarmenn fyrir utan stjórn- arformanninn eru fulltrúar eig- enda sem hafa selt hlut sinn í fé- laginu. Á boðuðum hluthafafundi í FL Group eftir viku má búast við að skipt verði um stjórn að öllu öðru leyti en því að stjórnarfor- maðurinn Hannes Smárason situr áfram. Stjórnarmennirnir þrír Hregg- viður Jónsson, Árni Oddur Þórð- arson og Inga Jóna Þórðardóttir voru ekki samstíga stjórnarfor- manninum og töldu hann taka ákvarðanir á eigin spýtur án nægjanlegs samráðs. Er einkum um að ræða fjárfestingar félags- ins þar sem Hannes mun sam- kvæmt heimildum hafa tekið ákvarðanir án þess að hafa aðra stjórnarmenn með í ráðum. Stjórnarmennirnir töldu sig því ekki eiga lengur samleið með Hannesi í fyrirtækinu, þótt þeir hafi mikla trú á framtíð félagsins. Hannes segir að í fyrirtæki sem er á jafn mikilli ferð sé ekki óeðlilegt að einstakir stjórnar- menn hugleiði sinn gang og hvort þeir vilji fylgja með. „Ég hef stóra drauma fyrir hönd félagsins og starfa að framgangi þess allan sólarhringinn og má vel vera að á slíkri ferð finnist sumum þeir vera í aftursætinu.“ Hann segir stjórnarsetu í slíku fyrirtæki krefjast mikils tíma og orku af stjórnarmönnum og því eðlilegt að menn meti hvort þeir hafi tíma til að sinna svo krefjandi félagi. Saxbygg, eignarhaldsfélag í eigu Nóatúnsfjölskyldunnar og verktakanna Gunnars og Gylfa, seldi sinn hlut í flugfélaginu. Áætla má að söluhagnaður þess af eigninni sé um fjórir milljarð- ar króna. Kaupendur eru Hannes sem nú eykur hlut sinn í 35 pró- sent, Baugur sem eykur hlut sinn úr rúmum níu prósentum í rúm tólf og félag í eigu Kevin Stan- ford, Magnúsar Ármanns og Sig- urðar Bollasonar sem hafa verið viðskiptafélagar Baugs í fjárfest- ingum erlendis og hér innan- lands. Talið er að þessi sami hópur fjárfesta hafi einnig hug á að koma af krafti inn í hluthafahóp Íslandsbanka og eiga þar sam- starf við Karl Wernersson og þá sem nú skipa meirihluta í banka- ráði Íslandsbanka. Verði af þeim áformum er Jón Ásgeir kominn með mikil ítök í FL Group og Íslandsbanka, en fyrri tilraunir hans til áhrifa í þessum fyrirtækjum voru ekki litnar hýru auga af sterkum öflum í við- skiptalífi þess tíma. haflidi@frettbladid.is Kaup Íslendinga á erlendum verð- bréfum hafa aukist að undan- förnu, kemur fram á vef greining- ardeildar Íslandsbanka. Innlendir fjárfestar keyptu fyrir 5,2 millj- arða króna í erlendum verðbréf- um í maí umfram það sem þeir seldu. Til samanburðar voru hrein kaup í sama mánuði í fyrra 3,4 milljarðar. Helstu hlutabréfamarkaðir er- lendis hafa verið fremur rislitlir að undanförnu og telur greining- ardeildin að íslenskir fjárfestar líti svo á að hátt gengi krónunnar stuðli að góðri ávöxtun á lang- tímafjárfestingum, leiðrétting muni eiga sér stað á gjaldeyris- markaði fyrr en seinna. -jsk Eimskip hefur fest kaup á helmingshlut í kanadíska skipafélaginu Halship. Verð- ur nú boðið upp á vikulegar siglingar milli Kanada og Bandaríkjanna en þær voru áður á tveggja vikna fresti. Eimskip hefur keypt helmings- hlut í kanadíska skipafélaginu Halship. Halship sérhæfir sig í gámaflutningum milli Kanada og austurstrandar Bandaríkjanna, höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Halifax en jafnframt er skrifstofa í Boston. Halship rekur eitt skip sem sigla mun milli Halifax og Boston og Nýfundnalands og Boston. Segir í tilkynningu frá Eimskip að flutningsgeta fyrirtækisins aukist talsvert vestanhafs, nú verði í boði vikulegar siglingar milli Kanada og Bandaríkjanna, en þær hafi áður verið á tveggja vikna fresti, auk þess sem tölu- verð hagræðing hljótist af. Baldur Guðnason forstjóri Eimskipa segir kaupin styrkja stöðu fyrirtækisins vestanhafs: „Þetta styrkir tvímælalaust stöðu okkar í þeirri þjónustu sem við höfum verið að byggja upp. Þarna fáum við eitt skip til viðbótar við þau tvö sem fyrir eru, og bætum með því flutningsgetu okkar og þjónustu“. -jsk Eimskip kaupir Halship FRÁ KAUPHÖLLINNI Íslenskir fjárfestar sækja í auknum mæli í erlend verðbréf. Kaupa erlend ver›bréf Sala stórs hlutar og úrsögn stjórnarmanna þýðir að stjórnarformaðurinn verður sá eini sem áfram verður í stjórn fyrirtækisins. Þrír stjórnarmenn hafa sagt af sér. Samráð er talið hafa skort en Hannes Smárason segir stjórnarsetu í fyrirtækinu krefjast mikils tíma af stjórnarmönnum. EINN Á FLUGI Allt bendir til þess að Hannes Smárason verði eini stjórnar- maðurinn sem heldur áfram í stjórn FL Group eftir hluthafafund sem haldinn verður í næstu viku. Baugur jók við hlut sinn í FL Group og viðskiptfélagar Baugs í Og Vodafone, Mosaic og fleiri félögum bætast í hóp hluthafa FL Group. Allir almennir stjórnar- menn FL Group hætta

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.