Fréttablaðið - 02.07.2005, Síða 25

Fréttablaðið - 02.07.2005, Síða 25
„Ég bauð þremur á rúntinn og það gekk upp þó þröngt væri,“ segir Guðjón sem flutti þennan netta bíl sjálfur til landsins nú á vordögum. Smáauglýsingar byrja í dag á bls. 7 Flokkar Bílar & farartæki Keypt & selt Þjónusta Heilsa Skólar & námskeið Heimilið Tómstundir & ferðir Húsnæði Atvinna Tilkynningar Góðan dag! Í dag er laugardagur 2. júlí, 183. dagur ársins 2005. REYKJAVÍK 3.07 13.32 23.55 AKUREYRI 2.02 13.16 24.27 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag Litlir bílar framkalla oft stór augu hjá vegfarendum. Einn sá alla minnsti á Íslandi er Rover mini. Guðjón Jónsson leikstjóri er hamingjusamur eigandi slíks bíls. „Það var gamall draumur að eignast svona bíl,“ segir Guðjón og upplýsir að farartæk- ið sé eins og Austin mini en framleiddur af Rover. Lengi vel segir hann allar tilraunir til þess að komast yfir góðan mínibíl hafa mislukkast. „Þeir sem ég fann voru annað hvort illa farnir eða ekki falir nema fyrir alltof mikið fé. Þeir koma aldrei inn á sölur svo ég gat bara boðið í bíla sem voru í eigu fólks sem ekki vildi selja,“ segir hann. Þar kom að hann leitaði út fyrir landsteinana í gegnum netið. „Leitin endaði alltaf í Hollandi því þar voru þrjú fyrirtæki að gera upp svona bíla og selja þá til Banda- ríkjanna. Ég setti mig í samband við eitt þeirra og fann bíl sem mér leist vel á og flutti til landsins nú á vordögum. Hann stóð fyllilega undir væntingum en var ekkert ódýr,“ segir hann og vill ekki gefa upp nein- ar tölur. Roverbíllinn hans Guðjóns er af árgerð 1998 og skráður fjögurra manna en eig- andinn segir ansi þröngt um fjóra í honum. Hann býst því við að þurfa að sérpanta alla varahluti í hann en er búinn að finna fyrir- tæki í Bandaríkjunum sem virðist eiga allt í gripinn. Nú á Guðjón hvarfakút á póst- húsinu. „Ég gat ekki fengið skoðun á bílinn vegna þess að kútinn vantaði. Þess vegna er hann með ljótan grænan límmiða,“ segir hann afsakandi. Þegar hann er beðinn að telja upp kosti þessa netta bíls nefnir hann að auðvelt sé að finna hentug stæði handa honum. Reyndar sé hann þungur í stýri meðal annars vegna breiðra dekkjanna en býst ekki við að skipta. „Þetta er flottara svona,“ segir hann og bætir við. „Svo er helsti kosturinn við hann að það er svo gaman að eiga hann. Ég brosi alltaf þegar ég sé hann.“ gun@frettabladid.is Brosi þegar ég sé bílinn Peugeot 1007 hefur hlotið flest stig fyrir vernd fullorð- inna í árekstrarprófunum Euro NCAP í Evrópu frá upp- hafi. Bíllinn hlaut einnig viðurkenningu sem öruggasti bíllinn í flokki stærri smábíla. Þetta kom fram þegar niðurstöður í ný- afstaðinni prófunar- lotu hjá Euro NCAP voru kynntar í vikunni. Lexus GS300 hlaut fimm stjörnu einkunn sem öruggasti bíllinn fyrir full- orðna í flokki lúxusbíla og Mercedes-Benz A í flokki minni fjölskyldubíla. Sjö bílar fengu fjögurra stjörnu ein- kunn fyrir vernd barna í bílnum. Bílasalan Hraun hefur sölu á Gazelle-bifreiðum hér á landi á næstunni. Þetta er í fyrsta sinn sem Gazelle-bif- reiðar verða seldar á Íslandi en um er að ræða atvinnubif- reiðar í flokki sendi-, pall-, rútu- og vinnu- flokkabifreiða. Bifreiðarnar eru hannaðar af Ford og koma með 2,4 lítra Perkins eða Steyr dísilvél með forþjöppu og millikæli. Allir bílarnir eru búnir túrbó intercooler dísil mótor en bifreiðarnar er bæði hægt að fá 4x4 og 4x2. Sendibílana er hægt að fá þriggja manna og sjö manna en á næsta ári eru væntan- legir fjórtán manna bílar. bilar@frettabladid.is LIGGUR Í LOFTINU í bílum FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA BRÚÐKAUP FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl. KRÍLIN Ég er með tíu í teikningu, tölvum og leikfimi og svo er ég alltaf fyrstur út þegar bjallan hringir! Volkswagen Fox reynsluekinn BLS. 3 ][ SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 OG Á visir.is ÞÚ GETUR PANTAÐ SMÁAUGLÝSINGAR Á visir.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.