Fréttablaðið - 02.07.2005, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 02.07.2005, Blaðsíða 26
Ljósabúnaður Munið að hafa ljósin kveikt þótt bjart sé úti og sólskin. Bílstjóri sem ekur á móti sólu sér illa ljóslausa bíla sem koma úr gagnstæðri átt. Mikilvægt er að fara reglulega yfir ljósabúnaðinn og gæta þess að allt sé í lagi.[ ] Volkswagen Fox er nýr bíll sem kemur inn sem litli bróðir Polo. Bíllinn ber óneitanlega ættarsvip Volkswagen. Volkswagen Fox er nýr bíll sem fellur í flokk ódýrustu smábíla á markaðnum. Hann er fjögurra manna þannig að vel fer um tvo fullorðna í aftursætinu. Þeir þurfa þó að vera tilbúnir að leggja á sig að fara aftur í með gamla lag- inu því bíllinn fæst eingöngu í þriggja dyra útfærslu. „Þetta er svolítið afturhvarf til fortíðar,“ sagði vinkona mín sem ég bauð far á nýja Volkswagen Foxinum. Þá var ég búin að segja henni að það væri ekki samlæsing í bílnum og það fyrsta sem hún rak augun í fyrir utan röndótt áklæðið voru góðar og gamaldags rúðuvindur. Samt er ekki annað hægt að segja en að bíllinn sé smart. Röndótta áklæðið gefur bílnum hressilegt yfirbragð og glasahaldarar og geymsluhólf milli aftursætanna tveggja, undir- strika einmitt að bíllinn er fjögurra manna en ekki fimm, gefa óneitanlega sérstöðu. Volkswagen Fox er afar nettur bíll. Samt er feikinóg pláss í honum fyrir fjóra fullorðna og til- finning fyrir rými er góð vegna þess hversu hátt er setið í bílnum og rúmt er um hvern og einn. Nóg pláss er fyrir innkaupapoka en kannski ekki fyrir mikinn far- angur. Hins vegar er hægt er að leggja niður bakið á hvorum helmingi aftursætisins um sig og auka þannig rýmið. Bíllinn er einfaldur að allri gerð án þess þó að hafa „ódýrt“ yfirbragð. Það eina sem hugsan- lega mætti finna að varðandi frá- gang er að einangrunin er ekki jafngóð og maður á að venjast í mörgum nýjum bílum. Veghljóð eru því nokkur og óneitanlega heyrist í dísilvélinni, meira en bensínvélinni. Að öðru leyti voru bensínbíllinn og dísilbíllinn afar áþekkir í akstri. Dísilbíllinn þó heldur öflugri, eins og hestafla- fjöldinn gefur til kynna. Foxinn hefur fengið úrvals- einkunn í tveimur árekstrar- prófum, annars vegar þýska bíla- ritsins Auto Bild og hins vegar þýsku bíleigendasamtakanna ADAC. Í fyrrnefndu könnuninni var metið að Foxinn veitti far- þegum nærri því eins góða vernd og Golf. Eins og vænta má er bíllinn mjög meðfærilegur í innanbæjar- akstri. Fyrir þá sem eru vanir að dragnast með stór ökutæki í bæn- um er gríðarlegur léttir að vera á svona litlum bíl, svo ekki sé meira sagt. Það verður svo að segjast að bíllinn kom verulega á óvart þegar komið var út úr bænum. Þá reyndist hann furðuöflugur, auk þess sem ótrúlega lítið fannst fyr- ir hraða þrátt fyrir smæð bílsins. steinunn@frettabladid.is Megane RS Turbo, 2,0 l VVT Turbo er sportbíll úr Megane-línunni frá Renault. Þessi árennilegi bíll er aðeins 6,5 sek. úr 0 í 100 km/klst. og tekur kíló- metrann á einungis 26,7 sek. Heiðar J. Sveinssonar, forstöðumaður sölusviðs B&L, segir Megane RS einnig vera afar vel búinn. „Sem dæmi má nefna að hann er með sex gíra bein- skiptingu, nýjustu kynslóðina af ESP-stöðugleika- stýringu og sérútbúna Renault-sportfjöðrun. Sport- legir aksturseiginleikarnir njóta sín þannig til fulls í samspili þessara þriggja þátta við kraftmikla vélina,“ segir Heiðar. Skammstöfunin RS stendur fyrir Renault Sport og þar sem Megane RS er byggður á grunni Megane- línunnar er öryggið í fremsta flokki, auk þess sem bíllinn er búinn öllum þeim þægindum sem línan státar af. Þá þykir rásfesta og næmt viðbragð línunar í sérflokki og styrkir Renault Sport- fjöðrunin þessa eiginleika enn frekar. Af staðalbúnaði Megane RS má nefna sportsæti. sportstýri, þrýsti- skynjara í dekkjum, skriðstilli, hraðastilli, sjálfvirkar rúðuþurrkur og miðstöð með loftkælingu. Í hundrað á 6,5 sekúndum Megane RS Turbo var frumsýndur hjá B&L um síðustu helgi. Megane RS Turbo ver ættarsvip Megane-línunnar. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL LI Refur í borg og sveit REYNSLUAKSTUR VOLKSWAGEN FOX Vél Eldsn.notk. Verð 1,2 l 55 hö 6 - 6.5 l (bensín)1.150.000 1,4 l TDI 70 hö 4,9-5 l (dísilo.)1.380.000 Bíllinn er þriggja dyra og beinskiptur. Tjónaskoðun Súðavogur 6 • SUMARDEKK • HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA • HEILSÁRSDEKK • RAFGEYMAÞJÓNUSTA • OLÍS SMURSTÖÐ • BREMSUKLOSSAR • BÓN OG ÞVOTTUR • PÚSTÞJÓNUSTA ALLT Á EINUM STAÐ SMUR- BÓN OG DEKKJAÞJÓNUSTAN SÆTÚNI 4, SÍMI 562 6066
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.