Fréttablaðið - 02.07.2005, Síða 29
5LAUGARDAGUR 2. júlí 2005
Áfram veginn
Einar Elí Magnússon kemst leiðar sinnar
Bílum finnst vont að drekka vatn
Eitt sumarið var ég að vinna uppi á hálendi við tjaldvörslu. Ég heim-
sótti þá kunningja mína í Landmannalaugum reglulega, enda stutt
að fara og laugin sérstaklega góð það sumarið. Í einni ferðinni rakst
ég á fjórhjóladrifinn fólksbíl sem var nýkominn inn í Laugar og stóð
á bakkanum við innsta vaðið. Eigandinn vildi vita hvort ég ætti
startkapla því það væri dautt á bílnum og hann færi ekki í gang. Ég
spurði hvort hann hefði bara ekki tekið inn á sig bleytu en hann
neitaði því.
Við náðum í kaplana og reyndum að gefa honum rafmagn en ekk-
ert gerðist. Að endingu skrúfaðum við lokið af lofthreinsaranum og
tókum loftsíuna upp, rennandi blauta. „Ja, kannski eitthvað smá,“
varð eigandinn að viðurkenna. Dýrt spaug það. Vatn inn á vél getur
verið skaðlaust í litlum mæli en það getur líka þýtt tugþúsunda tjón
eða jafnvel algjöra upptekningu á vél.
Nú þegar hálendisvegir eru opnir og margir hugsa sér hreyfings
er því rétt að athuga hvað bíllinn þolir mikið þegar kemur að því að
fara yfir læki og ár. Þar ræður mestu staðsetning loftinntaksins og
að kveikjan sé varin eða vel þétt. Þar sem fæstir bílar eru smíðaðir
í þeim tilgangi að keyra í vatni (öfugt við báta til dæmis) er loft-
inntakið frekar neðarlega á þeim flestum. Algeng staðsetning er
bak við framljós.
Sértu á árbakka og í vafa um hvort bíllinn þoli ána er yfirleitt
hægt að aftengja lofthreinsarann með skrúfjárni og láta bílinn taka
loft beint inn um soggrein, uppi við vélarhlíf. Þetta er ekki hættu-
laust fyrir vélina og skyldi aðeins gera í neyð og í mjög stuttan
tíma. Varanlegri lausn væri að færa inntakið, til dæmis með barka
sem liggur frá lofthreinsara og upp í hvalbak. Sértu enn í vafa er
bara eitt ráð sem gildir: Snúðu við.
Að lokum önnur saga frá sama vaði. Eitt kvöldið kom brunandi
splunkunýr amerískur jeppi og fór á mikilli ferð í vaðið án þess að
gæta nokkuð að dýpt eða bestu leið. Gusugangurinn var slíkur að
vélin tók ekki bara inn á sig vatn og gjöreyðilagðist, heldur blotnaði
einhver fjöldi af tölvum og skynjurum sem gerðu allt rafkerfi bíls-
ins óvirkt. Eigandinn mátti því þola að horfa á nýja bílinn sinn,
leðurklæddan og stífbónaðan, dreginn vélarvana upp úr grunnum
hyl fyrir framan fjölda fólks. Til að kóróna allt saman fór svo
nýjasta árgerð af viðvörunarhljóði af stað þegar hurðir voru opnað-
ar til að hleypa vatninu út. „Bing, bing, bing...“. Fleira gerði sá bíll
ekki það kvöldið.
Ökum varlega – líka í vatni.
Nýlega var haldið upp á að fimm
milljón Peugeot 206 bílar hafa
verið framleiddir frá því hann
var kynntur í september
1998. Þar með er Peu-
geot 206 kominn ná-
lægt sögulegu fram-
leiðslumeti upp á
5.278.000 eintök sem
Peugeot 205 á.
Fimm milljónasta
eintakið var framleitt í
Mulhouse í Frakklandi og
er Coupé Cabriolet 1.6 l
HDi. Þessi 206 CC bíll er á leið á
þýska markaðinn þar sem 206
var nú sjötta árið í röð valinn
„besti innflutti bíllinn“ af les-
endum blaðsins Automotor und
Sport.
Peugeot 206 er markaðs-
settur í 145 löndum um
allan heim.
Í dag eru nær
3,5 milljón Peu-
geot 206 bílar á
götum Vestur-
Evrópu og árin
2001-2004 var
206 mest seldi
bíllinn í Evrópu.
Hann er nú söluhæsti díselbíllinn
í smábílaflokki í Evrópu. Peugeot
206 fæst í fimm útfærslum. ■
Peugot 206 er söluhæsti
díselbíllinn í flokki smábíla.
Íslandrover, félag Land Rover-
eigenda, verður með fjölskyldu-
helgi í Þjórsárveri um næstu
helgi, 8. til 10. júlí. Þrauta- og
ófærubraut, sýning á öllum
gerðum af Land Rover á öllum
aldri, grill, kvöldvökur og
myndasýning eru meðal þess
sem verður á dagskrá þessa
helgi. Jafnframt verður kosið
um fallegasta Land Roverinn,
best uppgerða Land Roverinn
og athyglisverðasta Land
Roverinn, auk þess sem verð-
laun verða veitt fyrir bestu til-
þrifin á þrautabrautinni. Lagt
verður af stað föstudagskvöldið
8. júlí. Aðgangseyrir er kr. 1.500
á þátttakanda. Nánari upplýs-
ingar á www.islandrover.is. ■
Eigendur Land Rover-bíla mynda félagsskapinn Íslandrover.
Allt um heilsu
á þriðjudögum í Fréttablaðinu.
Allt sem þú þarft
og meira til
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
P
R
E
28
04
9
0
4/
20
05
Fimm milljón Peugeot 206
Nær 3,5 milljón á götum Evrópu.
Fjölskylduhelgi í Þjórsárveri
Félagið Íslandrover kemur saman.
Aðgerðir stjórnvalda með breyt-
ingum á lögum um olíu- og kíló-
metragjald eiga að virka sem
hvatning fyrir neytendur til að
nota dísilbíla, þar sem dísilolían
er betri fyrir umhverfið en ben-
sínið. Spurning er hvaða áhrif
þetta muni hafa og hvort aukning
verði á notkun dísilbifreiða.
„Ég tel vissulega að þessar
breytingar muni hafa áhrif,
vegna þess einfaldlega að dísil-
vélar eyða minna en bensín-
vélar,“ segir Úlfar Gauti Har-
aldsson, þjónustufulltrúi hjá
Toyota. „Við fáum fleiri fyrir-
spurnir um dísilfólksbíla og aug-
ljóst að áhugi er að aukast. Auk
þess erum við að byrja að kaupa
inn dísilfólksbíla sem við höfum
ekki verið með áður. Yaris diesel
er til dæmis nýr kostur sem
kominn er í sölu hjá okkur,“ segir
Úlfar. Hann bætir við að hann
finni fyrir því að fólk sé vakandi
fyrir umhverfisáhrifum og eftir-
sókn sé í tvinnbílinn Prius, sem
að hluta gengur fyrir rafmagni
sem hann framleiðir sjálfur og er
því hagkvæmur fyrir umhverfið
og budduna.
Knútur G. Hauksson, forstjóri
Heklu, tekur í sama streng. „Við
finnum klárlega fyrir áhuga og
viðskiptavinir velta þessu mikið
fyrir sér og spyrjast fyrir um
hvort sé hagkvæmara. Fólk er
mest hissa á að þessar vélar eyða
töluvert minna en bensínvélar,
en munurinn er um 10 til 30%,“
segir Knútur. „Til lengri tíma sér
maður fyrir sér að sala á dísil-
bílum muni aukast, og er hún nú
þegar orðin meiri en hún var,
ekki síst hjá þeim sem eru að
keyra töluvert. Þó að dísilknúnar
fólksbifreiðar séu aðeins dýrari
skiptir máli að þær eyða minna.
Við ýtum undir það að fólk skipti
yfir í dísil, en í júlímánuði fá allir
þeir sem staðfesta pöntun á
Volkswagen dísilbíl 200 lítra inn-
eignarkort á dísilolíu. Á þeim
lítrum er hægt að keyra 3,4
hringi í kringum landið á
Volkswagen Polo,“ segir Knútur.
kristineva@frettabladid.is
Neytendur eru í auknum mæli farnir að velja dísilolíu fram yfir bensín, en breytingar á lögum um olíu- og kílómetragjald tóku gildi í gær.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
Fyrirsjáanleg aukning á sölu dísilbíla
Breytingar á lögum um olíu- og kílómetragjald tóku gildi í gær, sem þýðir að akstursgjöld sem
áður voru innheimt tvisvar á ári af eigendum dísilbifreiða falla niður og eru þess í stað felld inn
í verðið á dísilolíunni.