Fréttablaðið - 02.07.2005, Síða 30
Ferðataska
Ferðatösku í björtum lit er auðveldara að finna á farangursbeltinu á flugstöðinni en
svarta tösku. Ef taskan er svört er hægt að gera hana auðþekkjanlega með því að setja
á hana stóran merkimiða í skærum litum.[ ]
Sólríkasta strandlengja Evrópu
Króatía er talið eitt fallegasta land Evrópu, með langa strandlengju og merkilega sögu.
Vinsældir Króatíu sem ferða-
mannastaðar fara vaxandi.
Króatía býður bæði upp á sól
og menningu. Landið var ný-
verið valið besti áfangastaður
Evrópu af Lonely Planet.
Lýðveldið Króatía er á
Balkanskaga í Suðaustur-Evrópu
og hefur löngum verið talið eitt
fallegasta land álfunnar. Landið á
strönd að hinu fallega Adríahafi
gegnt Ítalíu og er strandlengjan
5,835 kílmetra löng og megnið af
því eru eyjar, rif og klettar. Mið-
jarðarhafsloftslag ríkir í Króatíu
sem þýðir að sumrin eru heit og
veturnir mildir, en strandlengjan
er ein sú sólríkasta í Evrópu sem
er sennilega ástæða þess að Króa-
tía er eftirsóttur ferðamanna-
staður og var nýverið kosin besti
áfangastaður Evrópu af Lonely
Planet. Landið á sér langa og
merka sögu og þrátt fyrir stríðið
sem þar geisaði hefur upp-
byggingin verið til fyrirmyndar.
Sjarmi lands og þjóðar hefur
haldið sér og sagan endurspeglast
hvert sem litið er.
Heimsferðir hafa boðið viku-
legt flug héðan til Króatíu frá
miðjum maí fram í miðjan sept-
ember, en þetta er annað árið sem
þetta flug stendur til boða.
„Áhuginn á þessum ferðum er
geysilega mikill, og allur júní var
uppbókaður,“ segir Þyrí Gunnars-
dóttir framleiðslustjóri Heims-
ferða. „Þetta var sumarsprengjan
í fyrra og jókst bara í sumar og
fólk sem fór í fyrra er að fara aft-
ur núna,“ heldur hún áfram. Að-
spurð um hvað sé við Króatíu sem
höfði til okkar Íslendinga segir
hún það vera sambland af menn-
ingu og afslöppun. „Þarna er
mikil náttúrufegurð og maður
upplifir sig ekki á dæmigerðum
sólarstrandastað. Menning er rík í
mat og drykk og kemst hún einna
næst ítalskri matarmenningu,“
segir Þyrí. Hún segir ferð til
Króatíu skilja heilmikið eftir sig á
sama tíma og landið sé góður
staður fyrir afslöppun. ■
„Þetta skokk skilar bæði sælli
þreytu og gleði og hefur notið
mikilla vinsælda,“ segir Gunnar
Sveinsson hjá Ungmennasam-
bandi Vestur-Húnvetninga sem
stendur fyrir árlegu fjallaskokki
yfir Vatnsnesfjall í Húnaþingi
vestra 5. júlí. Fjallaskokkið er nú
haldið í 6. sinn. Gunnar lýsir
leiðinni yfir fjallið þannig að hún
sé 12 kílómetra löng um brekkur,
mela, mýrar, læki og jafnvel
skafla og hækkunin sé um 400
metrar. Þeir sem gefi sér tíma til
þess að líta í kringum sig njóti
stórfenglegs útsýnis í allar áttir.
Þátttakan hefur verið frá 70
manns upp í 100 á fyrri árum að
sögn Gunnars og hver og einn
hefur fundið sinn tíma. „Sá yngsti
var sex ára og sá elsti 78 þannig að
þetta er flestum fært,“ segir hann.
Fólk má ganga, skokka eða hlaupa
yfir fjallið allt eftir því í hvernig
formi það er og það leggur af stað
með klukkutíma millibili til þess
að sem flestir komi í mark á
svipuðum tíma. Þar verður svitinn
þurrkaður af enninu og svo slegið
upp grillveislu í lokin. ■
Skilar sælli þreytu og gleði
Fjallaskokk er ferðamáti sem ýmsir aðhyllast. Þeir fylla
lungun af lofti og láta fæturna bera sig um heiðar og fjöll.
Á stöku stað þarf að stökkva yfir læki á leiðinni yfir Vatnsnesfjall.
M
YN
D
/N
O
R
D
IC
P
H
O
TO
/G
ET
TY
KRÓATÍA
Fólksfjöldi: 4.42 milljónir
Höfuðborg: Zagreb
Tungumál: Króatíska, serbneska, ítalska,
slóveneska, ungverska
Besti tíminn til að heimsækja landið:
Maí til september
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
JA
R
N
I H
AR
Ð
AR
Flogið er til St. John höfuðborgar Ný-
fundnalands.
Á slóðir Leifs
heppna
SUMARFERÐ Í FYRSTA SINN Í
BEINU FLUGI TIL NÝFUNDNA-
LANDS Í KANADA Í ÁGÚST.
Ferðaskrifstofan Hópferðamiðstöðin
– Vestfjarðaleið hefur á hverju
hausti efnt til vinsælla ferða til St.
Johnís höfuðborgar Nýfundnalands í
Kanada. 11.-19. ágúst í sumar gefst
hins vegar í fyrsta sinn tækifæri til
að komast þangað í beinu flugi að
sumarlagi. Nýfundnaland er eyja
litlu stærri en Ísland og nágranni
okkar í vestri, en með Labrador á
meginlandinu myndar það yngsta
og austasta fylki Kanada. Ýmislegt
verður í boði fyrir ferðalangana í St.
Johns og má þar nefna skipulagða
sex daga rútuferð með leiðsögn á
víkingaslóðir þar sem verður farið í
þjóðgarðinn LíAnse aux Meadows
þar sem Leifur heppni er talinn hafa
komið þegar hann fann Ameríku
árið 1000. Fyrir gönguáhugafólk
verður í boði gönguferð í þjóð-
garðinum Grose Morne á vestur-
strönd Nýfundnalands sem er sann-
kallað meistaraverk frá náttúrunnar
hendi. Þarna er einnig kjörið að
stunda golf, göngur, veiði og kajak-
siglingar svo eitthvað sé nefnt.
AQUIS handklæði
í ferðalagið
Í bakpokann, ferðatöskuna, sundið,
líkamsræktina ofl.
Taka lítið pláss, létt, þurrka vel,
þorna fljótt, alltaf mjúk.
Dreifing: Daggir s: 462-6640
www.daggir.is
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Kanarí í haust
salan er ha
fin
54.950 kr.
Netverðdæmi 31. október - 29. nóvember
á mann miðað við að 2 fullorðnir ferðist
saman í 30 nætur á Veril Playa.
Innifalið er flug, gisting, morgunverður,
íslensk fararstjórn og flugvallarskattar.