Fréttablaðið - 02.07.2005, Page 41

Fréttablaðið - 02.07.2005, Page 41
LAUGARDAGUR 2. júlí 2005 Spurning: Af hverju hræðast menn að svartur köttur gangi í veg fyrir þá? Svar: Talið er að heimiliskötturinn hafi komið til Evrópu einhvern tíma á járnöld en utan Evrópu á hann sér mun lengri sögu. Hlut- verk kattarins í samfélagi við manninn hefur allt frá fyrstu tíð verið að verja uppskeru og híbýli fyrir nagdýrum auk þess sem kattarskinn voru lengi talin verð- mæt. Það er einnig ævagömul trú að kettir séu merkilegar skepnur og standi í nánu sambandi við þau öfl sem búa að baki hinum sýni- lega veruleika. Fornegyptar eru taldir hafa byrjað að temja ketti um það bil 3000 árum f. Kr. Egyptar urðu svo hrifnir af ágæti kattarins að þeir tóku að tilbiðja hann. Hjá þeim var kötturinn sagður afkvæmi Ís- isar, gyðju ljóss og lífs, og Ósírisar sem var guð mána og dauða. Mynd kattargyðjunnar Bast var kona með kattarhöfuð. Frá Egyptum er einnig komin sú trú að kettir hafi níu líf. Kettir í goðafræði Kettir höfðu miklu hlutverki að gegna í grískri goðafræði. Mána- gyðjan Artemis var verndari katt- anna, þeir voru í fylgdarliði henn- ar og hún gat sjálf brugðið sér í kattarlíki ef svo bar undir. Artem- is var í nánu sambandi við Hekötu, gyðju undirheimanna, en hún var einnig mánagyðja og gat breytt sér í kött eins og Artemis. Hekata var einnig gyðja nornanna, og kettir fylgdu Hekötu á nætur- ferðum hennar. Kötturinn var því snemma tengdur göldrum og öðrum myrkraverkum. Kettir eru fylgifiskar ástar- og frjósemisgyðjunnar Freyju í nor- rænni goðafræði og þeir drógu vagn hennar þegar hún ferðaðist. Auk þessa má finna ýmsa tiltrú er ketti varðar hjá Kínverjum og fleiri Asíuþjóðum. Nornakettir og heimiliskettir Í þjóðtrú hafa menn löngum verið blendnir í afstöðu sinni til kattar- ins. Á hann hefur verið litið sem heilagt dýr en algengara er þó að hann hafi verið álitinn fulltrúi illra afla. Á miðöldum urðu svartir kettir einkennisdýr norna og voru kettir norna sagðir nærast á blóði þeirra. Nornir áttu meðal annars að geta brugðið sér í kattarlíki. Verði svartur köttur á vegi manns er því allt eins víst að þar sé norn á ferðinni. Kettir eru oftast taldir til góðs á heimilum og víða má finna þá hjátrú að heilladrjúgt sé að hafa kött með sér þegar flutt er inn í nýtt húsnæði. Því var trúað að kötturinn sogaði til sín ólán og ill öfl eða að þessi fyrirbæri tækju sér bólfestu í honum. Kötturinn var með öðrum orðum nokkurs konar segull eða ryksuga sem dró að sér allt illt. Sagt er að sums staðar hafi tíðkast að henda svörtum ketti inn fyrir þrösk- uldinn á heimili brúðhjóna til að hreinsa andrúmsloftið áður en þau fóru sjálf inn. Svartir kettir boða ýmist ógæfu eða lán Flestir þekkja þá hjátrú að það sé slæmur fyrirboði ef svartur kött- ur hleypur þvert í veg fyrir mann. Víðast hvar í Evrópu og Banda- ríkjunum er þessi hjátrú almenn enn í dag. Það vekur mörgum ugg í brjósti hlaupi svartur köttur þvert á leið þeirra, sérstaklega séu menn að sinna mikilvægum eða áhættusömum erindum. Margir Bandaríkjamenn halda því þó fram að svartur köttur sé ein- ungis fyrirboði ills hlaupi hann frá vinstri til hægri en viti á gott komi hann frá hægri. Hvítir kettir vita aftur á móti á gott. Í Englandi snúa margir þessari hjátrú við; svartir kettir vita á gott en hvítir kettir á illt. Þá eru svartir kettir álíka vinsælir og þeir eru óvinsælir annars staðar á Vesturlöndum, hlaupi þeir í veg fyrir menn. Þess eru dæmi í Englandi að einhver taki sérstak- lega að sér það verkefni að láta svartan kött hlaupa í veg fyrir brúðhjón þegar þau koma út úr kirkjunni að lokinni vígslu, þeim til heilla. Hjátrú viðheldur jafnvægi í dag- legu lífi Segja má að einn af grunnþáttum hjátrúar sé að viðhalda ákveðnu jafnvægi í hinu daglega lífi. Allt sem truflar eða gengur þvert á það sem er talið venjulegt eða eðlilegt boðar illt en getur þó í sumum tilfellum verið fyrirboði góðra tíðinda. Svartur köttur sem skyndilega hleypur þvert á leið manna truflar ákveðið jafnvægi, gengur þvert á fyrirfram ákveðna leið og er þess vegna í flestum til- fellum talinn ills viti. Ótrúin á svarta ketti á sér ræt- ur í hefðbundnum viðhorfum til kattarins; um aldir var hann ann- ars vegar talinn heilagt dýr og hins vegar djöfulleg skepna. Vegna hins nána sambands kattar- ins við nornir og önnur myrkraöfl hefur neikvætt viðhorf til svartra katta sennilega orðið jafn afger- andi og raun ber vitni. Annars er ráð, hlaupi svartur köttur í veg fyrir mann, að hrækja í átt til hans eða krossleggja fingur til að afstýra óláni. Símon Jón Jóhannsson, þjóðháttafræðingur. VÍSINDAVEFUR HÁSKÓLA ÍSLANDS Svartir kettir Vísindavefur Háskóla Íslands fjallar um öll vísindi, hvaða nafni sem þau nefnast. Ný- verið bauðst þátttakendum í Háskóla unga fólksins, námskeiðum fyrir ungmenni á aldrinum 12-16 ára á vegum Háskóla Íslands, að svara spurningum fyrir Vísinda- vefinn. Meðal spurninga sem þar var glímt við eru: Hvað er Surtsey stór, hvaða tungumál er talað í Úganda, hver var Tycho Brahe, úr hvaða ávexti eru rúsínur fram- leiddar, hvað þýða litirnir í þýska fánanum og hvenær verður næsti tunglmyrkvi á Ís- landi? Hægt er að lesa svör við þessum spurningum og fjölmörgum öðrum á slóð- inni www.visindavefur.hi.is. SVARTUR KÖTTUR Kettir hafa löngum verið taldar dulmagnaðar skepnur. Ýmist var litið á þá sem heilagar verur eða fulltrúa illra afla.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.