Fréttablaðið - 02.07.2005, Síða 41
LAUGARDAGUR 2. júlí 2005
Spurning: Af hverju hræðast
menn að svartur köttur gangi í
veg fyrir þá?
Svar: Talið er að heimiliskötturinn
hafi komið til Evrópu einhvern
tíma á járnöld en utan Evrópu á
hann sér mun lengri sögu. Hlut-
verk kattarins í samfélagi við
manninn hefur allt frá fyrstu tíð
verið að verja uppskeru og híbýli
fyrir nagdýrum auk þess sem
kattarskinn voru lengi talin verð-
mæt. Það er einnig ævagömul trú
að kettir séu merkilegar skepnur
og standi í nánu sambandi við þau
öfl sem búa að baki hinum sýni-
lega veruleika.
Fornegyptar eru taldir hafa
byrjað að temja ketti um það bil
3000 árum f. Kr. Egyptar urðu svo
hrifnir af ágæti kattarins að þeir
tóku að tilbiðja hann. Hjá þeim
var kötturinn sagður afkvæmi Ís-
isar, gyðju ljóss og lífs, og Ósírisar
sem var guð mána og dauða. Mynd
kattargyðjunnar Bast var kona
með kattarhöfuð. Frá Egyptum er
einnig komin sú trú að kettir hafi
níu líf.
Kettir í goðafræði
Kettir höfðu miklu hlutverki að
gegna í grískri goðafræði. Mána-
gyðjan Artemis var verndari katt-
anna, þeir voru í fylgdarliði henn-
ar og hún gat sjálf brugðið sér í
kattarlíki ef svo bar undir. Artem-
is var í nánu sambandi við Hekötu,
gyðju undirheimanna, en hún var
einnig mánagyðja og gat breytt
sér í kött eins og Artemis. Hekata
var einnig gyðja nornanna, og
kettir fylgdu Hekötu á nætur-
ferðum hennar. Kötturinn var því
snemma tengdur göldrum og
öðrum myrkraverkum.
Kettir eru fylgifiskar ástar- og
frjósemisgyðjunnar Freyju í nor-
rænni goðafræði og þeir drógu
vagn hennar þegar hún ferðaðist.
Auk þessa má finna ýmsa tiltrú er
ketti varðar hjá Kínverjum og
fleiri Asíuþjóðum.
Nornakettir og heimiliskettir
Í þjóðtrú hafa menn löngum verið
blendnir í afstöðu sinni til kattar-
ins. Á hann hefur verið litið sem
heilagt dýr en algengara er þó að
hann hafi verið álitinn fulltrúi
illra afla. Á miðöldum urðu svartir
kettir einkennisdýr norna og voru
kettir norna sagðir nærast á blóði
þeirra. Nornir áttu meðal annars
að geta brugðið sér í kattarlíki.
Verði svartur köttur á vegi manns
er því allt eins víst að þar sé norn
á ferðinni.
Kettir eru oftast taldir til góðs
á heimilum og víða má finna þá
hjátrú að heilladrjúgt sé að hafa
kött með sér þegar flutt er inn í
nýtt húsnæði. Því var trúað að
kötturinn sogaði til sín ólán og ill
öfl eða að þessi fyrirbæri tækju
sér bólfestu í honum. Kötturinn
var með öðrum orðum nokkurs
konar segull eða ryksuga sem dró
að sér allt illt. Sagt er að sums
staðar hafi tíðkast að henda
svörtum ketti inn fyrir þrösk-
uldinn á heimili brúðhjóna til að
hreinsa andrúmsloftið áður en þau
fóru sjálf inn.
Svartir kettir boða ýmist ógæfu
eða lán
Flestir þekkja þá hjátrú að það sé
slæmur fyrirboði ef svartur kött-
ur hleypur þvert í veg fyrir mann.
Víðast hvar í Evrópu og Banda-
ríkjunum er þessi hjátrú almenn
enn í dag. Það vekur mörgum ugg
í brjósti hlaupi svartur köttur
þvert á leið þeirra, sérstaklega
séu menn að sinna mikilvægum
eða áhættusömum erindum.
Margir Bandaríkjamenn halda því
þó fram að svartur köttur sé ein-
ungis fyrirboði ills hlaupi hann frá
vinstri til hægri en viti á gott komi
hann frá hægri. Hvítir kettir vita
aftur á móti á gott.
Í Englandi snúa margir þessari
hjátrú við; svartir kettir vita á gott
en hvítir kettir á illt. Þá eru
svartir kettir álíka vinsælir og
þeir eru óvinsælir annars staðar á
Vesturlöndum, hlaupi þeir í veg
fyrir menn. Þess eru dæmi í
Englandi að einhver taki sérstak-
lega að sér það verkefni að láta
svartan kött hlaupa í veg fyrir
brúðhjón þegar þau koma út úr
kirkjunni að lokinni vígslu, þeim
til heilla.
Hjátrú viðheldur jafnvægi í dag-
legu lífi
Segja má að einn af grunnþáttum
hjátrúar sé að viðhalda ákveðnu
jafnvægi í hinu daglega lífi. Allt
sem truflar eða gengur þvert á
það sem er talið venjulegt eða
eðlilegt boðar illt en getur þó í
sumum tilfellum verið fyrirboði
góðra tíðinda. Svartur köttur sem
skyndilega hleypur þvert á leið
manna truflar ákveðið jafnvægi,
gengur þvert á fyrirfram ákveðna
leið og er þess vegna í flestum til-
fellum talinn ills viti.
Ótrúin á svarta ketti á sér ræt-
ur í hefðbundnum viðhorfum til
kattarins; um aldir var hann ann-
ars vegar talinn heilagt dýr og
hins vegar djöfulleg skepna.
Vegna hins nána sambands kattar-
ins við nornir og önnur myrkraöfl
hefur neikvætt viðhorf til svartra
katta sennilega orðið jafn afger-
andi og raun ber vitni.
Annars er ráð, hlaupi svartur
köttur í veg fyrir mann, að hrækja
í átt til hans eða krossleggja
fingur til að afstýra óláni.
Símon Jón Jóhannsson,
þjóðháttafræðingur.
VÍSINDAVEFUR
HÁSKÓLA ÍSLANDS
Svartir kettir
Vísindavefur Háskóla Íslands fjallar um öll vísindi, hvaða nafni sem þau nefnast. Ný-
verið bauðst þátttakendum í Háskóla unga fólksins, námskeiðum fyrir ungmenni á
aldrinum 12-16 ára á vegum Háskóla Íslands, að svara spurningum fyrir Vísinda-
vefinn. Meðal spurninga sem þar var glímt við eru: Hvað er Surtsey stór, hvaða
tungumál er talað í Úganda, hver var Tycho Brahe, úr hvaða ávexti eru rúsínur fram-
leiddar, hvað þýða litirnir í þýska fánanum og hvenær verður næsti tunglmyrkvi á Ís-
landi? Hægt er að lesa svör við þessum spurningum og fjölmörgum öðrum á slóð-
inni www.visindavefur.hi.is.
SVARTUR KÖTTUR Kettir hafa löngum verið taldar dulmagnaðar skepnur. Ýmist var litið
á þá sem heilagar verur eða fulltrúa illra afla.