Fréttablaðið - 02.07.2005, Side 48

Fréttablaðið - 02.07.2005, Side 48
32 2. júlí 2005 LAUGARDAGUR AXEL STADIUM VIÐ MIKLUBRAUT Þarna gæti Snoop lent í alvöru slag við fjölmiðlastjörnur Ís- lands, ef hann skyldi droppa við í hádegis- eða kaffipás- unni. Mótherjarnir gætu verið alls konar að getu, en flestir með Ginobili-takta sem erfitt væri fyrir Snoop að átta sig á. Hann mundi skilja í eitt skipti fyrir öll að hvítir geta víst stokkið, þótt trúlega gæfu ein- hverjir bófanum séns í kurt- eisskyni. Snoop í körfu á Axel Stadium væri auk þess öllum opinn enda í alfaraleið við Miklubraut, gegnt húsakynn- um Fréttablaðsins. FELLAHVERFIÐ Í EFRA-BREIÐHOLTI Körfuboltavöllur sem stal senunni í víðfrægum sjónvarpsauglýsingum þar sem Sveppi sagði Eiði Smára til syndanna í fótboltaþjálfun, þótt völl- urinn sé alls ekki hugsaður fyrir fót- bolta. Er klárt mál að umhverfið spil- aði stærsta hlutverkið enda forkunn- arfagrar byggingar í bakgrunni; stærsta blokk landsins, staðsett í miðju gettóinu, eins og fáfróðir og gárungar kalla Fellin. Snoop mundi vafalaust una sér best á þessum velli og finna til sam- kenndar með hvetjandi Breiðhyltingum ofan af svölum og í grasinu við völlinn, þegar hann atti kappi við breiðhyltska rappara. Þarna ætti Snoop heima, væri hann Íslendingur. Þarna færi hann í allar sínar körfur. FORSETI GETTÓHVERFA HEIMSINS Bófarapparinn Snoop Dogg er á lei›inni til Íslands. fiessi fyrrum tukthúsme›limur hefur fengist vi› ‡mis- legt misjafnt, me›al annars klámmyndager›, eiturlyfjasölu og manndráp í sjálfsvörn. Hann er fluggáfa›ur og flótti einkar efnilegur í körfubolta á námsárunum. Körfuna notar hann enn til a› slaka á og leika sér, oftar en ekki í gettóum heimsins. Fréttabla›i› fann tilvalda körfuboltavelli fyrir Snoop til a› skjóta á í júlí. LAUGARDALURINN Einn af fáum körfuboltavöll- um sem býður upp á að hækka verulega í bílgræj- unum því auðvelt er að koma gettóbílum að völlun- um sem standa við hlið gervigrassins í Laugardal, í litlu nágrenni við stygga íbúa sem skilja ekki að gott er að hlusta á rapp með körfunni og finnst það raska heimilisfriðn- um. Vellirnir hafa verið sívinsælir hjá ungum sem öldnum körfu- boltamönnum undan- farin ár, og oftar en ekki uppteknir seinnipart dags og langt fram á kvöld. Þarna er alltaf hægt að finna einhvern til að spila við, hvort sem er einn gegn einum, eða fleiri. Hann kallar sig Doggfather; Pres-ident of the United Ghettos of theWorld. Var meira en efnilegur í körfubolta á námsárunum og ekki síður flink- ur á bókina. Síðhærður með þung augnlok eins og hundurinn Snoopy í Smáfólkinu, þegar hann ólst upp í gettóinu á Long Beach í Kaliforníu, og fékk þaðan viðurnefnið Snoop Dogg af foreldr- um sínum. Eins og títt er um gettóhverfi búa þar öreig- ar og undirmenn í meirihluta. Snoop sleit bernskuskónum á vettvangi glæpagengja og var einn þeirra óknyttadrengja sem lærðu af slæm- um fyrirmyndum og fóru fljótt út af rétta spor- inu. Ungur varð hann meðlimur í hinni illræmdu Long Beach Insane Crips-klíku og byrjaði að selja eiturlyf á milli þess sem hann skemmti sér við bófarapp með góðvini sínum Warren Griffin, sem seinna varð frægur sem rapparinn Warren G. Laganna verðir gómuðu Snoop Dogg snemma við eiturlyfjasöluna. Strax eftir menntaskólann fékk hann sinn fyrsta fang- elsisdóm og næstu þrjú árin var hann inn og út úr fangelsum fyrir fíkniefnasölu. Í fangelsinu gerði hann upp hug sinn og ákvað að hafna glæpalífinu eftir að samfangar hans sannfærðu Snoop um ótvíræða hæfileika á tónlistarsviðinu. Snoop leitaði til Warrens G. sem fékk bróður sinn Dr. Dre, kallaður guðfaðir rappsins, til þess að hlusta á tónlist þá sem Snoop Dogg hafði fram að færa. Sá féll í stafi af hrifingu og fékk Snoop til þess að flytja lag á plötu sinni The Cronic 1992, en sú plata er enn ein mest selda rappplata sögunnar. Fljótlega fór stjarna Snoop Dogg að rísa hratt og fyrsta sólóplatan, Doggystyle, kom út 1994, sama ár var Snoop kos- inn „besti rapparinn“ af lesendum Rolling Stone- tímaritsins. Á miðjum vegi velgengninnar var Snoop hand- tekinn og ákærður fyrir morðið á Philip Wold- ermariam, eþíópískum innflytjanda úr glæpaklíku sem skotinn var í bakið 25. ágúst 1993. Philip þessi hafði mætt fyrir utan hús rapparans og látið dólgslega þannig að Snoop og lífvörður hans McKinley Lee eltu hann uppi og skutu í sjálfs- vörn. Báðir voru sýknaðir af morðákærunni. Allan frægðartímann hefur Snoop verið trúr uppruna sínum. Hann er enn bófarappari númer eitt, upphefur gettóið, venjulegt fólk og notar skotin sín í körfubolta. Ein af ósk- um Snoops í heimsókn hans til Íslands er að komast á körfuboltavöll þar sem hann getur slakað á og skotið á eins og eina eða tvær körfur. Frétta- blaðið fann hentuga körfubolta- velli fyrir Snoop Dogg í Reykjavík. thordis@frettabladid.is MIKLATÚN Fáfarinn almenningsgarður sem lumar á ýmsu og getur verið upplagður felustaður fyrir stórstjörnur. Þarna mundi Snoop ekki skera sig úr hópnum sem út- lendingur, því nýbúar spila oftast á þessum velli og taka þá með sér bassastyrkta gettó- blastera sem dansa með boltanum upp í körfuna á milli fagurklipptra trjáa og litskrúðugra blóma.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.