Fréttablaðið - 02.07.2005, Síða 50

Fréttablaðið - 02.07.2005, Síða 50
2. júlí 2005 LAUGARDAGUR Orðrómurinn um að Steven Gerr-ard sé á leið frá Liverpool magnast stöðugt og í gær birti eitt spænsku dagblaðanna að Rafael Benitez, stjóri liðsins, hefði fengið mjög loðin svör þegar hann spurði Gerrard hvort hann ætlaði ekki að vera áfram hjá Liverpool. „Við verðum að sjá til en það er ljóst að það verður mjög erfitt að segja nei við Real,“ á Gerrard að hafa sagt við Benitez - svar sem var ekki til gleðja spænska þjálfarann. Ennfremur seg- ir blaðið að fari svo að Gerrard ákveði að fara til Spánar muni hann fá helmingi meira borgað en hjá Liverpool. Knattspyrnumaðurinn ScottRamsey hefur gengið frá félags- skiptum úr Keflavík yfir til nágrann- anna í Grindavík. Ramsey hefur ekkert leikið með Keflavík í Lands- bankadeildinni í sumar og hefur verið að æfa með liði Grindavíkur síðustu vikur. Ekki er fyrirhugað að Ramsey leiki með liðinu á næstunni en hann gæti orðið klár í slaginn síðari hluta sumars. ÚR SPORTINU > Við furðum okkur ekki á ... ... því að Guðjón Þórðarson hafi gengið frá samningi við írska leikmanninn Brian O´Callaghan í gær, þrátt fyrir að hann hafi sagt fyrir nokkrum dögum að ekkert væri hæft í þeim orðrómi að leikmaðurinn væri á leið til Notts County. Aðferðin er nákvæmlega sú sama og forráðamenn Keflavíkur urðu fyrir barðinu á fyrir fáeinum vikum. Og af hverju ætti Guðjón að hætta að nota aðferð sem líka svona svínvirkar? Heyrst hefur ... ... að forráðamenn Keflvíkur sjái sér nú leik á borði til að koma fram hefndum á Guðjóni Þórðarsyni. Svo vill til að Brian O´Callaghan er enn samningsbundin Keflvíkingum og ef vilji og metnaður er fyrir hendi gætu forráðamenn Keflavíkur gert Notts County afskaplega erfitt fyrir í því að fá félagsskiptin samþykkt... sport@frettabladid.is 34 > Við hrósum ... .... liði FH í Landsbankadeild karla með að vera þriðja liðið í sögunni til að ná þeim stórkostlega árangri að vera með fullt hús stiga að lokinni fyrri umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu. fia› er ekki nóg me› a› li› FH sé me› fullt hús stiga a› lokinni fyrri umfer› Landsbankadeildar karla heldur s‡nir tölfræ›in a› li›i› hefur ekki enn lent undir í fyrstu níu leikjum sumarsins. FH hefur ekki ennþá lent undir FÓTBOLTI Það er ekkert launungar- mál að Íslandsmeistarar FH hafa verið í algjörum sérflokki það sem af er Íslandsmótsins á þessu sumri og stefna hraðbyri að því að vera titilinn. Liðið er það þriðja í sögunni til að fara í gegnum fyrri umferðina án þess að tapa einu einasta stigi, en áður höfðu Valur árið 1978 og ÍA árið 1995 náð þeim árangri. Það var einmitt árið 1978 sem Valsmenn náðu besta tölfræðilega árangri í sögu Íslandsmótsins þegar liðið vann 17 leiki og gerði eitt jafntefli í 18 leikjum sumars- ins. Skagamenn töpuðu einum leik og gerðu eitt jafntefli í síðari um- ferð mótsins árið 1995 en enduðu tímabilið eigi að síður með 16 sig- urleiki og 49 stig. Ef marka má yf- irburði FH-liðsins í sumar er óhætt að fullyrða að liðið eigi fína möguleika á að jafna, ef ekki bæta hinn ótrúlega árangur Vals 1978. Þegar rýnt er enn frekar í töl- fræði FH-liðsins það sem af er móti kemur í ljós að liðið hefur ekki verið undir í eina sekúndu af þeim 810 mínútum sem liðið hefur spilað. FH hefur ávallt náð foryst- unni í leikjum sínum og verið yfir í alls 470 mínútur, eða 58% leik- tímans í fyrstu níu leikjunum. Þess má geta að það eru botnliðin tvö, Þróttur og ÍBV, sem hafa náð að halda lengst út gegn FH-ingum – Þróttur í 69 mínútur og ÍBV í 61 mínútu. Þá hafa FH-ingar aukin- heldur haft tveggja marka for- ystu eða meiri í 24,9% leikja sinna í fyrri umferð. „Þetta er eitthvað sem við hugsum ekkert um,“ sagði Tommy Nielsen, hinn danski varnarmaður FH, þegar Fréttablaðið bar undir hann fyrrgreinda tölfræði. „Við höfum vissulega fengið fá mörk á okkur og ég held að lykill- inn að því sé að við leikmennirnir þekkjum allir okkar hlutverk mjög vel. Mér finnst við alltaf lík- legir til að skora og það segir sig þar með sjálft að ef við höldum hreinu, þá erum við líklegir til að vinna,“ segir Tommy. Hann segir byrjun FH-liðsins í ár hafa farið fram úr vonum sín- um en að liðið ætli sér að reyna að halda dampi í seinni umferðinni. „Mér finnst við vera með það öfl- ugt lið miðað við önnur í deildinni að ef við spilum okkar eðlilega leik, þá vinnum við. Þannig að ég tel okkur vel getað farið taplaust í gegnum tímabilið. En það krefst gríðarlegrar einbeitingar og verð- ur mjög erfitt.“ -vig, -ooj HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 29 30 1 2 3 4 5 Laugardagur JÚLÍ ■ ■ LEIKIR  16.00 ÍBV fær Fylki í heimsókn í Landsbankadeild karla. ■ ■ SJÓNVARP  10.50 Formúla 1 á RÚV.  13.00 Gullmót í frjálsum íþróttum á RÚV.  15.50 Bikarkeppnin í sundi á RÚV  17.00 PGA mótið í golfi á Sýn.  17.25 Motorworld á Sýn.  17.54 Toyota-mótaröðin í golfi á Sýn.  19.00 Spænski fótboltinn á Sýn.  20.40 Hnefaleikar á Sýn.  21.55 Hnefaleikar á Sýn.  23.05 Hnefaleikar á Sýn. Guðjón Þórðarson, knattspyrnustjóri Notts County: FÓTBOLTI Þrátt fyrir að hafa dæmt orðróm þess efnis „þvætting“ fyrir nokkrum dögum, hefur Guðjón Þórðarson nú fengið írska varnarmanninn Brian O’Callaghan til liðs við sig í þriðja sinn á ferli sínum sem þjálfari. Í gær skrifaði Írinn undir eins árs samning hjá Notts County. O’Callaghan var sem kunnugt er á mála hjá Keflavík fyrir skömmu, en ákvað skyndi- lega að snúa aftur til Bret- landseyja til að freista þess að komast að hjá atvinnumannaliði. O’Callaghan var hinn ánægð- asti með komuna til Notts County og fagnaði sérstaklega tækifærinu til að vinna aftur með Guðjóni. „Ég gerði mér grein fyrir því hvað ég er heppinn að geta leikið sem atvinnumaður í knattspyrnu á þessum tíma sem ég lék með utandeildarliðum og hef því ákveðið að nýta tækifærið sem ég hef fengið vel,“ sagði varn- armaðurinn sem svo sem gerði engar rósir fyrir Keflavík – lék einn leik með liðinu þar sem hann skoraði sjálfsmark. „Ég hlakka mikið til að vinna með Guðjóni aftur. Hann er frá- bær knattspyrnustjóri sem alltaf nær því besta út úr leikmönnum sínum. Hann náði því besta fram í mér þegar ég lék undir hans stjórn á sínum tíma og ég upp- skar góðan árangur af því,“ sagði sá írski í viðtali á heimasíðu félagsins í gær, en hann á þó enn eftir að fá fé- lagaskipti sín úr Keflavík samþykkt. -bb Allt er flá flrennt er Tony Pulis, fyrrum knattspyrnustjóri Stoke sem var rekinn sl. þriðjudag, kveðst ekkert hafa á móti íslenskum leik- mönnum. Hann segir Þórð Guðjónsson og Tryggva Guð- mundsson hafa liðið fyrir það að hafa komið til félagsins fyrir tilstuðlan íslensku stjórnarmanna félagsins, en Pulis lá undir miklum ámælum í vor fyrir að sjá sér ekki fært að nota íslensku landsliðsmennina tvo. „Málið er að ég hafði aldrei séð þá spila og þekkti ekkert til þeirra. Í liðinu voru fyrir leik- menn sem ég gjörþekkti og það er ekki sjálf- sagt að ég spili mönnum sem ég þekki lítið sem ekkert til,“ sagði Pulis í samtali við Fréttablaðið í gær og hrekur þannig allar full- yrðingar um að hann sé á móti íslenskum leikmönnum. „Það er skrítið þegar fólk heldur því fram. Fyrsta árið mitt hjá Stoke var Brynjar Gunnarsson lykilmaður hjá mér – mjög öflugur miðjumaður. Síðan varð hann samningslaus og við gátum ekki haldið honum. Sá leikmaður sem var efst á óskalistanum mín- um í sumar var til dæmis Heiðar Helguson, en hann reynist of stór biti fyrir okkur. Þannig að halda því fram að ég sé ekki hrifinn af íslenskum leikmönnum er fráleitt,“ segir Pulis. „Það að stjórnin skuli hafa fengið þá til Stoke en ekki ég hafði ekkert með það að gera að þeir komust ekki í liðið. Vandinn var sá að ég þekkti einfaldlega of lítið til þeirra. En allir þeir íslensku leikmenn sem ég hef unnið með hjá Stoke hafa verið fram- úrskarandi félagar sem lögðu ávallt afskaplega hart að sér. Tryggvi og Þórður eru toppmenn, einstaklega viðkunnalegir og á milli okkar voru engin vandamál. Ég kunni afar vel við þá,“ segir hann. Ítarlegt viðtal við Tony Pulis, þar sem hann fjallar meðal annars um samskipti sín við ís- lensku stjórnarmennina, mun birtast í Frétta- blaðinu á næstu dögum. FYRRVERANDI KNATTSPYRNUSTJÓRI STOKE: ÞEKKTI OF LÍTIÐ TIL ÞÓRÐAR OG TRYGGVA Ég hef ekkert á móti Íslendingum ÁRANGUR FH Í FYRRI UMFERÐ 2005 MÓTHERJI UNDIR JAFNT YFIR YFIR(+2) 1. Keflavík 0 27 63 1 2. Grindavík 0 33 57 46 3. ÍBV 0 61 29 22 4. KR 0 44 46 0 5. Þróttur 0 69 21 6 6. Valur 0 12 78 0 7. ÍA 0 44 46 45 8. Fylkir 0 8 82 77 9. Fram 0 42 48 5 Alls 0 340 470 202 9 Leikir 0,0% 42,0% 58,0% 24,9% ÓSTÖÐVANDI Árangur FH-inga í fyrri umferð Landsbankadeildarinnar hefur verið með ólíkindum, hvar sem gripið er niður í tölfræðinni. Það er ekki nóg með að liðið sé með fullt hús stiga heldur hefur liðið ekki einu sinni lent undir. GUÐJÓN ÞÓRÐARSON Hefur augljóslega mikið álit á Brian O’Callaghan og vill helst fá hann í öll sín lið. Í ÚRSLIT Roger Federer er á leið í þriðja úr- slitaleik sinn í röð á Wimbledon firi›ji úrslita- leikurinn í rö› TENNIS Roger Federer var ekki í vandræðum með að tryggja sér sæti í úrslitaleiknum á þriðja Wimbledon-mótinu í röð, þegar hann tók næst stigahæsta tennis- leikara heims, Lleyton Hewitt í kennslustund í undanúrslitunum í gær og sigraði 3-0. Þetta var fimmta tap Hewitt fyrir Federer í röð og hann sá aldrei til sólar í leiknum í gær. „Ég á ekki orð yfir það hvað allt gekk vel hjá mér og ég hefði aldrei geta ímyndað mér að ég tæki hann í þremur settum. Það er frábært að vera að fara í þriðja úrslitaleikinn í röð á Wimbledon og ég á áreiðanlega eftir að sofa mjög vel í nótt. Ég vona bara að sigurganga mín verði ekki stöðv- uð á sunnudaginn“ sagði Federer eftir sigurinn í gær, en hann hefur ekki tapað í úrslitaleik á tuttugu mótum í röð. „Ég held að engin sérstök sálfræði sé á bak við þennan sigur hans,“ sagði Hewitt fúll eftir tapið. „Hann einfaldlega lék betur en ég á öllum sviðum leiksins.“ Federer mun mæta annað hvort Thomas Johansson eða Andy Roddick í úrslitaleik móts- ins á morgun, en undanúrslitaein- vígi þeirra félaga var frestað þangað til í dag vegna rigninga. -bb Tenniskappinn Roger Federer:

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.