Fréttablaðið - 02.07.2005, Síða 51

Fréttablaðið - 02.07.2005, Síða 51
LAUGARDAGUR 2. júlí 2005 35 Middlesbrough hafnaði í gær til-boði frá Tottenham í enska miðjumanninn Stuart Downing. Til- boðið hljóðaði upp á sex milljónir punda en var hafnað samstundis. „Hann er ekki til sölu,“ segir Keith Lamb, talsmaður félagsins, um Downing, sem skoraði sjö mörk á síðustu leiktíð fyrir Middlesbrough. Það verða BandaríkjastúlkurnarLindsay Davenport og Venus Williams sem leika til úrslita í kvenna- flokki á Wimbledon-mótinu í Tennis. Davenport sigraði Amelie Mauresmo frá Frakklandi örugg- lega í undanúrslit- unum í gær en áður hafði Venus borið sigurorð af Maríu Sharapovu. Christian Vieri og félag hans InterMilan komust í gær að sam- komulagi um að rifta samningi hans. Vieri lenti upp á kant við Ro- berto Mancini, stjóra liðsins, í viku- byrjun og virðist ágreiningurinn hafa verið slíkur að ekki hafi verið hægt að komast að mála- miðlun. Vitað er að fjölmörg lið munu hafa áhuga á að fá Vieri í sínar raðir en sjálfur er hann sagður hafa hug á því að leika í ensku úrvalsdeildinni á næsta ári. Tottenham, Liverpool og jafnvel Chelsea eru öll nefnd sem líklegir áfangastaðir Vieri í því sam- hengi. Íslenska karlalandsliðið í golfibeið lægri hlut fyrir Svíum á Evr- ópumótinu í golfi sem fram fer á Hillside-vellinum í Englandi þessa dagana. Þetta var fyrsti leikur ís- lenska liðsins í keppninni um 13.- 16. sæti á mótinu en liðið mætir Finnum í dag í leik um 15. sætið. ÚR SPORTINU Lofa Ferguson 100 milljónum punda næstu fjögur árin FÓTBOLTI Joel Glazer, stjórnarmað- ur í Manchester United og sonur Malcom Glazer, hins nýja eiganda félagsins, hefur lofað Alex Fergu- son allt að hundrað milljónum punda til að styrkja leikmannahóp liðsins á næstu fjórum árum. Joel kom fram í viðtali við sjónvarpsstöð félagsins í gær og reyndi að biðla til stuðnings- manna liðsins að gefa sér og fjöl- skyldu sinni tækifæri til að sanna sig við stjórnvölinn hjá félaginu, en stuðningsmennirnir tóku sem kunnugt er á móti Bandaríkja- mönnunum með ólátum og morð- hótunum þegar þeir mættu á Old Trafford í fyrradag, þar sem slagorð dagsins var „Deyðu Glazer, deyðu.“ Máttu lög- reglumenn hafa sig alla við til að halda aftur af æstum múgnum og er ljóst að þeir feðgar voru beinlínis í lífshættu. Joel Glazer var mættur til fundar við forráðamenn liðsins á Old Trafford í vikunni, þar sem þeir bræður báru saman bækur sínar við Bretana og kynntu áætl- anir sínar og stefnumál, en að því loknu reyndi hann að stilla til frið- ar við stuðningsmennina. „Takmark okkar eigendanna er nákvæmlega það sama og tak- mark stuðningsmanna liðsins. Við viljum vinna titla og bikara rétt eins og þeir. Það er afar mikil- vægt í okkar augum að knatt- spyrnustjóri liðsins fái það sem hann telur að hann þurfi til að lið- ið sé samkeppnishæft á öllum víg- stöðvum og við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að stuðla að því. Fólk er hrætt við að við stofn- um liðinu í hættu, en ég fullyrði að við munum ekki verða til þess að brjóta þá sterku sigurhefð sem viðgengist hefur hjá þessu frá- bæra félagi,“ sagði Joel Glazer, sem fullyrðir að þeir feðgar hafi lært mikið af mistökum sem þeir gerðu með lið Tampa Bay Buccaneers á sínum tíma. -bb Nýir eigendur Manchester United ætla sér stóra hluti á næstu árum: LOFA ÖLLU FÖGRU Malcom Glazer og synir hans á góðri stund með Bobby Charlton, einni helstu goðsögn í sögu Man.Utd, á Old Trafford. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES RAIKKONEN Það er ekki tekið út með sæld- inni að verða fyrir vélarbilun í Formúlunni Dæmdur aftur um tíu sæti FORMÚLA Finnski ökuþórinn Kimi Raikkönen þarf að taka út tíu sæta refsingu þegar ræst verður til keppni í franska kappakstrinum á morgun, eftir að vélin í McLaren- bíl hans bilaði eftir aðeins örfáa hringi á æfingu í gær. Samkvæmt reglum verða keppendur að ræsa aftar ef þeir þurfa nýja vél og þetta kemur Raikkonen afar illa, því hann er í harðri toppbaráttu í stigakeppni ökuþóra. Vélarnar hjá félögum hans í McLaren-liðinu voru þó í fínu lagi og náði Juan Pablo Montoya besta tímanum á æfing- um í gær, en Spánverjinn Fern- ando Alonso var með þriðja besta tímann. Alonso sagði að aðstæður á brautinni hefðu verið erfiðar sök- um mikilla vinda. „Bíllinn var mjög óútreiknanlegur á brautinni út af vindinum og gerði manni erfitt um vik að halda jöfnum akstri,“ sagði sá spænski, sem hefur enn nokkuð gott forskot í keppni ökumanna. -bb Ökuþórinn Kimi Raikkonen:

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.