Fréttablaðið - 02.07.2005, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 02.07.2005, Blaðsíða 54
38 2. júlí 2005 LAUGARDAGUR EKKI MISSA AF… ...Reykhóladeginum sem hefst á Reykhólum í dag klukkan 14. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá fram eftir degi. ...sumarsýningu Listasafnsins á Akureyri sem opnar í dag klukkan 15. ...tónleikum með kvartett trymbilsins Kára Árnasonar sem leikur á Jómfrúnni við Lækjar- götu klukk- an 16 í dag. Aðrir með- limir kvar- tettsins eru saxófónleik- arinn Steinar Sigurðarson, gítar- leikarinn Andrés Þór Gunnlaugs- son og bassaleikarinn Þorgrímur Jónsson. Aðgangur er ókeypis. Laugardaginn 2. júlí kl. 16.00 hefst sumarsýningin „Sögur af landi” í sýningarsal Handverks og hönnun- ar í Aðalstræti 12, 101 Reykjavík. Til sýnis er hefðbundinn íslenskur listiðnaður og nútíma hönnun úr fjölbreyttu hráefni. Á sýningunni eru hlutir meðal annars úr leir, gleri, pappír, hrosshári, roði, ull og silfri. Sýningin er haldin í kjölfar sam- keppi sem fjölmargir tóku þátt í og valdi dómnefnd muni frá þrjá- tíu og þremur aðilum til sýningar. Sýningarskrá er gefin út í tengslum við sýninguna á íslensku og ensku. Sýningin er opin alla daga, nema mánudaga, frá klukkan 13 til 17 og stendur hún yfir til 4. sept- ember. Aðgangur á sýninguna er ókeypis. Sumartónleikar í Skálholtskirkju hefja 31. starfsár sitt í dag, laugardaginn 2. júlí. Á hátíðinni leika meðal annars blokkflautukvintettinn Fontanella frá Englandi og kammerhópurinn Carmina, sem frumflytur nýtt tónverk eftir Huga Guðmundsson í Skálholtskirkju á sunnu- daginn klukkan 17. Dagskrá hátíðarinn- ar má nálgast á netsíðunni www.sum- artonleikar.is. menning@frettabladid.is Sýning Handverks og Hönnunar ! SÖGUR AF LANDI Veskið er eftir Röggu Ólafs sem er ein af 33 þátt- takendum í sumarsýningu Handverks og hönnunar sem hefst í sýning- arsal Handverks og hönnunar klukkan 16 í dag. Miðasölusími 568 8000 • midasala@borgarleikhus.is Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin: 14-18 mánudaga - laugardaga 12-18 sunnudaga Lokað 2. og 3. júlí. KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren • Í samstarfi við Á þakinu Lau 9/7 kl 14, Su 10/7 kl 14, Su 17/7 kl 14 Sænskur organisti í Hallgrímskirkju Organistinn Mattias Wa- ger er þekktur fyrir spuna sinn og spinnur hann fyrir áheyrendur sína í Hallgrímskirkju um helgina auk þess sem hann leikur verk eftir þekkt tónskáld. Á annarri helgi tónleikaraðarinnar Sumarkvöld við orgelið í Hall- grímskirkju sest Mattias Wager við Klaisorgelið í Hallgrímskirkju. Undanfarin ár hafa íslenskir áheyrendur og gestir þeirra haft tækifæri til að heyra Mattias leika á orgelið, nú síðast þegar hann ásamt Erni Árnasyni leikara flutti Pétur og úlfinn eftir Sergei Prokofiev í febrúar síðatliðnum. Að þessu sinni er Mattias með tvenna tónleika, laugardaginn 2. júlí kl. 12 og sunnudaginn 3. júlí kl. 20. Efnisskrá laugardagstónleik- anna byggir á verkum þriggja stórmerkra tónskálda. Fulltrúi barrokksins er Bach en eftir hann leikur Mattias Sinfóníu úr Kantöt- unni Nú gjaldi Guði þökk og sálmaforleikstríó við Þig lofar, fað- ir, líf og önd. Nútímaverkið er Bæn eftir bergingu úr Bók heilags sakramentis eftir Olivier Messi- aen og tónleikunum lýkur með 1. kafla Orgelsinfóníu nr. 5 eftir Charles-Marie Widor en hann er fulltrúi hins rómantíska franska orgels. Á efnisskrá kvöldtónleikanna á sunnudaginn skiptast einnig á eldri og nýrri verk. Fyrst hljóma Sex þættir úr Drottningarhólms- tónlist Johann Heilmich Roman sem hann samdi fyrir brúðkaup við sænsku hirðina árið 1744. Eftir Hollendinginn Ad Wammes flytur hann Miroir. Wammes er fæddur 1953 og er þekktur sem poppari, klassískur tónlistarmaður og tón- skáld. Þá leikur Mattias Sónötu nr. 5 í C-dúr eftir Johann Sebastian Bach. Þetta er ein af sex tríósónöt- um sem hann skrifaði sem æfingar fyrir son sinn Vilhelm Friedem- ann. Þarna leikur hvor hönd fyrir sig sjálfstæða rödd og fæturnir þriðju röddina. Mínimalismi er einkennisorð fyrir eistneska tón- skáldið Arvo Pärt og hann á líka við í Pari Intervallo, efniviðurinn ekki mikill að vöxtum en skilur eft- ir sig sérstaka huglæga fegurð. Þá hljómar 1. kafli Orgelsinfóníu nr. 5 í F-dúr eftir Charles-Marie Widor, glæsilegur endapunktur á fyrri hluta tónleikanna. Síðari hlutinn hefst á Adagio og fúgu eftir Mozart. Hann skrifaði ekki mikið fyrir orgel og er þetta verk umritun á verki fyrir strengi og sembal. Þá leikur Mattias verk Messiaens Bæn eftir bergingu úr Bók heilags sakramentis en tón- leikunum lýkur á spuna. ■ Bók Brians Pilkingtons, Allt um tröll, var seld til Eistlands og bók Aðalsteins Ásbergs Sig- urðssonar, Brúin yfir Dimmu, seld til Finnlands. Eistneska bókaforlagið Ilo tryggði sér réttinn á bók Brians en áður hafði útgáfurétturinn verið seldur til Ítalíu og Dan- merkur. Finnska bókaforlagið Idun tryggði sér réttinn á bók Aðalsteins Ásbergs og er það fyrsta landið sem rétturinn er seldur til. Bækurnar eru gefnar út af Eddu útgáfu. Hekla Dögg Jónsdót t i r og Megan Whitmarsh opna sýning- una ÍSANG- ELSES, í dag kl.17.00 í Kling og Bang gall- erí, Lauga- vegi 23. Verk Megan eru strigar með ísaumuðum smá senum og upp- stillingum sem sýna snjómenn, álfa, stúlkur, kristalla, ísjaka, kletta og fleira en Hekla Dögg vinnur með tölvuskreytingarljós sem hún býr til eins konar flug- elda úr. Sýningin stendur yfir til 24. júlí og er opin fimmtudaga til sunnu- daga frá klukkan 14 til 18. ■ ALLT UM TRÖLL Bók Brians Pilkington, Allt um Tröll hefur verið seld til Eistlands og bók Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar, Brúin yfir Dimmu, hefur verið seld til Finnlands en báðar eru þær gefnar út af Eddu útgáfunni hér á landi. Í víking a› Eystrasalti ICELANDIC FOREST ÍSANGELSES í Kling og Bang Glæsibæjareintölin frumflutt Laugardaginn 2. júlí kl. 16 verða Glæsibæjareintölin eftir Benóný Ægisson frumflutt á Hótel Eddu, ÍKÍ, á Laugarvatni. Höfundur mun sjálfur flytja leiktextana og er uppákoman liður í listahátíðinni Gullkistan sem hófst 17. júní og lýk- ur um helgina. Verkið er byggt upp á 12 stuttum eintölum hinna ýmsu persóna og eru eintölin misheppnaðar tilraunir höfundarins til að skapa leikpersón- ur. Eintölin eru vaðall ófullburða leikpersóna. Þau eru örvæntingar- full tilraun þeirra til að vera til þó þeim hafi verið varpað fyrir róða. Þær eru draugagangur í sköpunar- verki höfundarins sem hefur klippt þær út úr leikritum, hætt við að nota þær eða komið þeim fyrir í leikritum sem aldrei fóru á svið. Þær eru munaðarleysingjar sem krefjast tilveru og raddar sem eng- inn vill gefa þeim nema höfundur- inn sem neyðist til þess vegna ístöðuleysis og samviskubits. Þær eru svo þjáðar af lélegu sjálfsmati að eftir að ákveðið var að opinbera þær hefur höfundurinn mátt búa við ásakandi muldur þeirra í innra eyranu og fyrirfram fullvissu þeirra um að hann klúðri þessu eina tækifæri sem þær fá til að upplifa sýndarveruleika sinn. ■ BENÓNÝ ÆGISSON Rithöfundurinn Benóný Ægisson frumflytur nýja leiktexta sem hann kallar Glæsibæjareintölin á Hótel Eddu, ÍKÍ á Laugarvatni í dag klukkan 16. MATTIAS WAGER Sænski organistinn Mattias Wager heldur tvenna tónleika í Hallgrímskirkju um helgina. Þeir fyrri eru í dag klukkan 12 og þeir seinni á sunnudaginn klukkan 20. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.