Fréttablaðið - 02.07.2005, Blaðsíða 56
AIRBRUSH
BRÚNKUÚÐI
gefur sól-
brúnanlit með
gylltum ljóma og
kemur í fallegum
bronslituðum brúsa.
FALLEGT Það er rosalega mikið
úrval af fötum í þessu
stíl í Spútnik og þar
var aldeilis af nógu
að taka eins og
sjá má á síð-
unni.
DÖMUHATTAR
Konur mættu
vera duglegri
að ganga
með hatta.
ELEGANT
Konur þurfa
ekki að vera
léttklæddar til
þess að vera
þokkafullar.
40 2. júlí 2005 LAUGARDAGUR
Það er eitthvað svo fallegt og elegantvið þau föt sem ömmur okkar og afarklæddust og klæðast enn. Konurnar
eru svo dömulegar í sínum kvenlegu kjól-
um og karlarnir eru eins og sannir herra-
menn í vel pússuðum skóm.
Síðustu ár hefur tískan orðið meira og
meira samkynja og greinarmunur karl-
manns-og kvenmannstísku mjög óljós. Nú
leita hönnuðir hins vegar innblásturs í for-
tíðinni og á tískusýningapöllunum er greini-
legt afturhvarf til fortíðar þar sem konur
eru kvenlegar og karlar karlmannlegir.
Konurnar eiga ekki að vera ögrandi og
léttklæddar heldur kvenlegar og þokkafull-
ar. Hnésíðir og léttir kjólar við háhælaða
skó sáust mjög víða. Fallegir hattar og
hanskar eru fylgihlutir sem íslenskar
konur mættu gjarnan nota oftar. Sokka-
böndin bæta svo róman-
tískum blæ við.
Karlarnir eru glæsilegir í hnepptum
eða prjónuðum vestum. Axlabönd eru
alltaf skemmtileg og jakkapeysur eru
flottar á ungum mönnum sem og
þeim eldri. Sixpensarinn setur svo
punktinn yfir i-ið en vel straujaðar
brotabuxur ættu allir menn að
eiga.
Fyrir konurnar er flottast að
vera með rauðan varalit og lát-
lausa skartgripi en karlarnir eru
alltaf sætir með vatnsgreidda
herraklippingu.
Flestir geta fengið tilfinningu
fyrir þessari tísku með því að
fara í heimsókn til ömmu og afa
en þeir sem eru ekki svo lánsam-
ir geta skellt sér út á videoleigu
og náð í kvikmyndirnar The Avi-
ator eða The Notebook.
soleyk@frettabladid.is
SCF
Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið.
*****
svalasta
mynd
arsins
ÞÞ FBL
MÓÐUR VIKUNNAR
> SÓLEY KALDAL FER YFIR MÁLIN
Staðalímyndir eru áhugaverður hlutur. Við virðumst finna eitthvað
öryggi í því að geta ákvarðað persónuleika fólks út frá því hvernig
það lítur út, hvar það skemmtir sér eða hvað það starfar við.
Staðalímyndir eru hins vegar sérstaklega áhugaverðar þegar
þær byggja á jafn tilviljanakenndum eiginleikum og háralit. Mér
finnst ótrúlegt hvað fólk hefur skýrt afmarkaða mynd af konum
eftir því hvort þær eru ljóshærðar, dökkhærðar eða rauðhærðar. Ég
gerði óformlega könnun meðal samstarfsmanna minna og sömu
orðin komu upp aftur og aftur þegar þessum konum var lýst. Ljós-
hærðar stelpur eru þrýstnar, villtar, opnar og hlæja mikið. Dökk-
hærðar stúlkur eiga hins vegar að vera greindarlegar, dularfullar,
lokaðar og fúlar. Þær rauðhærður eru svo stimplaðar skrítnar, skap-
stórar og sólbrunnar. En hvaðan eru þessar hugmyndir fengnar?
Ég held að hér sé þetta svolítið spurning um hvort komi á undan
hænan eða eggið, persónuleikinn eða háraliturinn. Norma Jean
varð til dæmis ekki að Marilyn Monroe fyrr en hún litaði dökka
hárið sitt ljóst og hún er ein frægasta „ljóska“ sögunnar.
Mér finnst mjög undarlegt þegar stelpur gangast við þessari
staðalímynd og segja kannski „ég er algjör ljóska“ í þeirri merkingu
að þær séu treggáfaðar. Ég myndi aldrei segja: „já, þetta er vegna
þess að ég er svona dökka,“ þegar ég er í fýlu. Það kannast líka flest-
ir við frasann „blondes have more fun“ eða „ljóskur skemmta sér
betur“; eins og þær lifi innihaldsríkara lífi eingöngu vegna hára-
litarins. Ég var einu sinni ljóshærð og það eina sem ég uppskar eru
hræðilegar myndir í albúmið.
Það fer ógurlega í taugarnar á mér þegar stúlkur hampa svona
staðalmyndum um sjálfar sig því við hljótum að stefna að því að
finna okkar eigin persónuleika á okkar eigin forsendum. Ég trúi
ekki á svona sleggjudóma hvort sem þeir eru jákvæðir eða nei-
kvæðir. Kannski er þetta bara biturleiki í mér dökkhærðri konunni
en ég vil segja við þær ljóshærðu stúlkur sem halda því fram að
þær hafi meira gaman að lífinu: ef ljóskur skemmta sér betur þá er
það eingöngu vegna þess að sælir eru fáfróðir.
Skemmta ljóskur sér betur?
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
ÁL
L
O
G
G
ET
TY
BROTABUXUR Þær
eru alltaf smart, hvort
sem þær eru köflóttar,
teinóttar eða einlitar. BLÚSSA Æðislega krúttleg blússa.
HÆLASKÓR Skórnir eiga að
vera kvenlegir.
RYKFRAKKAR
Fara sennilega
aldrei úr tísku.
KVENLEGT Eitthvað mjög
spennandi við konu með
net fyrir andlitinu.
SIXPENSARI Nýtur
alltaf vinsælda meðal
karla á öllum aldri.
HERRAHATTUR Strákar
eru flottir með hatta.
Það getur verið leiðigjarnt að bera
brúnkukrem á líkamann því það
tekur bæði langan tíma og er
vandasamt. Þess vegna hafa
brúnkuklefar snyrtistofanna notið
sífellt meiri vinsælda en þess
konar brúnkumeðferð er nokkuð
dýr. Nú er kominn frábær milli-
vegur frá Lancome; fljótleg og
auðveld brúnkumeðferð á viðráð-
anlegu verði. Þeir hafa sett þróað-
an brúnkuúða á markaðinn sem
auðvelt er að nota heima hjá sér.
Úðinn dreifist yfir stórt svæði
og þarf aðeins að passa að hafa
brúsann ekki of nálægt búknum
þegar úðað er. Úðinn er ferskur
og kælandi og þornar fljótt.
Liturinn byrjar strax að myndast
og í úðanum er hreint E-vítamín
sem stuðlar að fallegri húð. Sér-
fræðingar Lancome mæla með
því að strokið sé létt yfir líkaman
eftir úðun svo liturinn verði alveg
jafn. Áður en hafist er handa er
best að fara í sturtu og þvo sér
með kornakremi, þá sérstaklega
hné og olnboga. Ekki er ætlast til
þess að úðinn sé notaður í andlitið
en þó er ekkert því til fyrirstöðu
að úða smá í lófana og strjúka yfir
andlitið.
Sólbrún og glóandi
Skemmtilegur klæ›na›ur
ömmu & afa lifir enn
UNGIR SEM ALDNIR
Taka sig vel út í fötum
frá Burberry Prorsum.