Fréttablaðið - 07.07.2005, Side 2
2 7. júlí 2005 FIMMTUDAGUR
Slæmur endir á Íslandsdvöl ferðmanna:
Kvikna›i í bíl á fer›
vi› Sandskei›
LÖGREGLUFRÉTTIR Fimm erlendum
ferðamönnum og íslenskum öku-
manni þeirra brá heldur betur í
brún þegar kviknaði í bíl þeirra við
Sandskeið eldsnemma í gærmorg-
un. Ferðamennirnir voru á leið á
Keflavíkurflugvöll austan úr Sól-
heimum í Grímsnesi þar sem þeir
höfðu verið gestir á afmælishátíð
Sólheima í fyrradag. Kviknaði þá
skyndilega í bílnum meðan hann
var á ferð en lögreglan í Kópavogi
telur að öllum líkindum hafi bens-
ínleiðsla farið í sundur.
Slökkviliðið kom á vettvang
þegar klukkan var að verða hálf
sex en þá var fólkið á bak og burt.
Það hafði hringt á leigubíl og hald-
ið áfram leið sinni á flugvöllinn.
„Eina sem hægt var að gera var
að drífa fólkið áfram út á flugvöll,“
segir Sigurður ökumaður bílsins
sem einnig hélt starfi sínu áfram
eins og ekkert hefði í skorist og
keyrði tvær ferðir til viðbótar á
flugvöllinn í gær með gesti afmæl-
ishátíðarinnar.
Sigurður segir að snör handtök
hafi þurft til að bjarga fólki og far-
angri en það hafi tekist mjög vel.
„Það voru bara sólgleraugu og
smotterí sem urðu eftir í bílnum.“
Slökkviliðinu tókst að ráða nið-
urlögum eldsins á um hálfri
klukkustund en bíllinn er gjörónýt-
ur. - AT
Réðst á lækni vegna rannsóknarniðurstöðu í einkamáli:
Mótmælir ni›ur-
stö›u ge›rannsóknar
DÓMSTÓLAR Tekið var fyrir í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær mál
34 ára gamals manns sem setið
hefur í gæsluvarðhaldi í rúmar
10 vikur, eftir að hafa ráðist á
lækni sem meðal annars sinnir
rannsókn í sakamálum fyrir lög-
reglu og í barnsfaðernismálum.
Þá er maðurinn kærður fyrir
hótanir gegn lækninum og fjöl-
skyldu hans, auk brota á fíkni-
efnalöggjöf.
Maðurinn mótmælti fram-
kvæmd og niðurstöðu geðrann-
sóknar þar sem Tómas Zoëga
geðlæknir taldi manninn vera
veikan á geði og enn hættulegan
öðrum. Farið var fram á dóm-
kvaðningu matsmanna til að
fara yfir geðrannsóknina, en
maðurinn kvaðst um leið áskilja
sér rétt til að neita að tala við
læknana sem kvaddir yrðu til
verksins.
Maðurinn viðurkennir að
hafa ráðist á og hótað lækninum
en Sveinn Andri Sveinsson, lög-
maður mannsins, segir þó því
mótmælt að með árásinni hafi
verið brotið gegn valdstjórn-
inni, líkt og kveðið er á um í
ákæru. Læknirinn hafi komið að
einkamáli tengdu manninum, en
ekki opinberu. „Ef lögreglumað-
ur í fríi væri kýldur úti í sjoppu
þá væri það ekki brot gegn vald-
stjórninni,“ sagði Sveinn Andri.
-óká
Harkaleg lending vi›
lok stóri›juframkvæmda
Alfl‡›usamband Íslands segir a› búast megi vi› harkalegri lendingu vi› lok
stóri›juframkvæmda. fiingma›ur Sjálfstæ›isflokksins segir a› mikilvægasta
verkefni› sé a›hald í launamálum hins opinbera.
EFNAHAGSMÁL Ríkisstjórnin axlar
ekki þá ábyrgð sem hún á að gera
á hagstjórn landsins og lítur því út
fyrir að þjóðarbúið muni lenda
harkalega við lok stóriðjufram-
kvæmda. Þetta er meðal þess sem
kemur fram í greinargerð sem
hagdeild Alþýðusambands Íslands
hefur gefið út um ástand efna-
hagsmála hér á landi og stöðuna í
þjóðarbúskapnum.
Þá segir ASÍ að það dugi
skammt að framlengja góðærið
hér á landi með frekari stóriðju-
framkvæmdum. Beita þurfi að-
haldi í opinberum fjármálum og
skera niður framkvæmdir.
Einar Oddur
K r i s t j á n s s o n ,
þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins
og fulltrúi í fjár-
laganefnd, telur
að hið opinbera
hafi farið óvar-
lega í kjara-
samningum und-
anfarin ár og
mikilvægt sé í
öllu tali um að-
hald í ríkisfjár-
málum að farið
sé varlega í launamálum.
„Það eru allir að gagnrýna út-
gjöld ríkisins og hins opinbera og
segja að það þurfi að skera þau
niður. Þá verða menn að átta sig á
því hver þessi útgjöld eru. Þetta
eru fyrst og síðast laun og það er
enginn þáttur í ríkisútgjöldunum
sem hefur afgerandi áhrif á efna-
hagsþróunina önnur en launaþró-
un opinberra starfsmanna. Seðla-
bankinn með blessun forsætisráð-
herrans hefur sett sér 2,5 pró-
senta verðbólgumarkmið. Til að
standa við það hefur hann verið að
hækka stýrivexti og þar með stað-
ið fyrir gengishækkun krónunnar.
Það má sannarlega velta fyrir sér
hvort þessi markmið séu raunhæf
þegar hið opinbera hækkar laun
um 6-8 prósent ár eftir ár,“ segir
Einar Oddur Kristjánsson. Hann
bendir einnig á að viðskiptahall-
inn sé ekki einungis vegna stór-
iðjuframkvæmda heldur sé um að
ræða gríðarlega einkaneyslu.
Í greinargerð ASÍ kemur fram
að á síðustu fimm árum hafi út-
gjöld hins opinbera vaxið um 9
prósent á ári og á síðasta ári hafi
þau aukist um 7 prósent.
hjalmar@frettabladid.is
Fjársöfnun HjartaHeilla:
Erfi›ur dagur
FJÁRSÖFNUN Eggert Skúlason hjól-
reiðakappi segist hafa átt erfiðan
dag í gær en hann er að hjóla
hringinn í kringum landið til
styrktar Landssamtökum hjarta-
sjúklinga.
„Ég hjólaði allan Jökuldalinn,
framhjá Háreksstöðum og að af-
leggjaranum til Vopnafjarðar og
var með stífan vind í fangið allan
tímann,“ segir Eggert.
Brekkan upp á Jökuldalsheiði
reyndist kappanum erfiðust enda
brött og ekki bundin varanlegu
slitlagi. Þrátt fyrir það lagði hann
að baki 70 kílómetra í gær en
lengst hefur hann hjólað 110 kíló-
metra á einum degi. -kk
Dómur í fíkniefnamáli:
Dópi› bland-
a› me› sykri
DÓMSTÓLAR 31 árs gamall maður
var dæmdur í tveggja mánaða
fangelsi í Héraðsdómi Reykja-
ness í gær, en undir lok febrúar
fann lögreglan í Kópavogi tæp 77
grömm af amfetamíni á heimili
hans.
Maðurinn játaði brot sitt. Hann
kvaðst hafa keypt 30 grömm af
efninu, en ríflega tvöfaldað magn-
ið með því að blanda í það mjólk-
ursykri.
Dómurinn var skilorðsbundinn
í tvö ár og fellur refsing niður að
þeim tíma liðnum, haldi maðurinn
sig innan ramma laganna. Maður-
inn þarf einnig að greiða fyrir
rannsókn á amfetamíninu sem og
að greiða lögmanni sínum, alls
rúmlega 131.000 krónur. -óká
Þjófnaður á sambýli:
Afmarka› mál
stutt gögnum
LÖGREGLA Góður gangur er sagður
í rannsókn fjárdráttarmáls konu
sem stýrði sambýli á Svæðisskrif-
stofu málefna fatlaðra í Reykja-
vík. Málið þykir sýnu alvarlegra
en svipað mál sem kom nýverið
upp á sambýli geðfatlaðra, því um
stjórnanda er að ræða en ekki
matráðskonu eins og í því máli.
Hörður Jóhannesson, yfirlög-
regluþjónn í Reykjavík, segir
kæru hafa borist í apríllok en
kveðst lítið hafa að segja um mál-
ið meðan það sé í rannsókn. „Mál-
ið er stutt gögnum og sæmilega
afmarkað, þannig að ekki ætti að
taka mjög langan tíma að rann-
saka það,“ sagði hann spurður um
hvenær niðurstöðu væri að
vænta.
- óká
SPURNING DAGSINS
Konrá›, brug›u hrefnurnar
sér í mannasko›unarfer›?
Hvalirnir voru bara fá sér að éta, ekki að
skoða mannfólk. Það er alveg klárt mál.
Nokkrir hvalir lögðu leið sína í Keflavíkurhöfn í
gær. Konráð Eggertsson veiðir hrefnur af miklum
móð þessa dagana.
LÖGREGLUFRÉTTIR
BÍLLINN ER GJÖRÓNÝTUR Í bílnum var íslenskur bílstjóri ásamt fimm erlendum gestum á
afmælishátíð Sólheima. Ferðamennirnir létu ekki á sig fá þótt eldur hafi komið upp í bíln-
um og héldu áfram ferð sinni á flugvöllinn í leigubíl.
Skilorð og sekt í héraði:
Lögregla fann
194 grömm
DÓMSTÓLAR Maður á þrítugsaldri
hlaut í gær skilorðsbundið mán-
aðarfangelsi auk 180.000 króna
sektar fyrir brot á fíkniefnalög-
gjöf og umferðarlögum. Hann
var að auki sviptur ökuleyfi í
þrjú ár og þarf að greiða kostn-
að upp á 203.501 krónu.
Í byrjun desember fann lög-
regla 194 grömm af hassi á
heimili mannsins. Þá var hann í
janúar gripinn með lítilræði af
ýmsum fíkniefnum, amfetamíni,
e-töflum, tóbaksblönduðu hassi
og kókaíni. 18. apríl sl. ók hann
svo ölvaður yfir hámarkshraða
á Kringlumýrarbraut í Foss-
vogi.
Dómurinn var upp kveðinn í
Héraðsdómi Reykjaness.
-óká
EINAR ODDUR
KRISTJÁNSSON Seg-
ir hið opinbera hafa
farið óvarlega í
kjarasamningum.
FRAMKVÆMDIR VIÐ KÁRAHNJÚKA Skellur verður í efnahagslífinu að loknum virkjanafram-
kvæmdum að mati ASÍ.
BÍLVELTA Í SELVOGI Tveir Hol-
lendingar veltu bíl sínum þar
sem þeir voru á ferð í Selvogi á
sunnanverðu Reykjanesi í gær-
dag. Bíllinn skemmdist nokkuð
en Hollendingarnir sluppu
ómeiddir enda í beltum.
HRAÐAKSTUR Á SUÐURLANDI
Lögreglan í Vík stöðvaði erlend-
an ökumann á Mýrdalssandi í
gærkvöld en hann ók á ríflega
150 kílómetra hraða á klukku-
stund. Þá hafði lögreglan á
Hvolsvelli hendur í ári ökumanns
sem ók á 139 kílómetra hraða
skammt austan við bæinn.
VÉLARVANA BÁTUR Vaktsstöð
siglinga barst í gærkvöld tilkynn-
ing frá litlum báti sem var vélar-
vana 12 sjómílur út af Arnar-
stapa. Annar bátur dró hann fljót-
lega að landi og gekk það vel en
veður var gott á þessum slóðum.