Fréttablaðið - 07.07.2005, Side 50

Fréttablaðið - 07.07.2005, Side 50
7. júlí 2005 FIMMTUDAGUR Ég heyrði einhvern tímann frásögn af konu sem taldi sig ekki geta verslað á Laugaveginum. Hún var orðin svo vön því að glerdyr verslana í Kringlunni og Smáralindinni opn- uðust sjálfkrafa fyrir hana, að það var bara gengið á hurðir í miðbæn- um. Vandamálið var ekki að hún kynni ekki að opna dyr sjálf, eða þættist yfir það hafin. Hún átti bara ekki von á því að þurfa að standa í slíku þegar hún verslaði. Oftast tel ég mig vera frjáls- lynda konu, í þeim skilningi að ég er opin fyrir því að aðrir séu ekki með sömu lífsskoðanir og ég. Um ákveðna hluti reikna ég með að fólk sé ekki sammála mér í einu og öllu, eins og um umfang velferðar- kerfisins eða ágæti femínisma. Það má segja að þetta séu dyrnar sem ég veit fyrir fram að ég þarf að opna sjálf. En stundum geng ég á hurðir. Um daginn var ég til dæmis á öldurhúsi hér í borginni og átti kurteisislegt spjall við mann sem stóð við hliðina á mér á barnum. Það er að segja mér þótti spjallið kurteisislegt, þar til maðurinn tók eftir því að bolurinn minn hafði eitthvað aðeins tosast upp fyrir buxnastrenginn þannig að sást í sirka sentimetra af maganum mín- um. Hljómar kannski ekki vítavert, en ég er ekki frá því að hann hafi móðgast við þessa sýn. Ég hafi með spjalli mínu nefnilega þóst vera eitthvað sem ég var augljóslega ekki; tiltölulega siðprúð ung kona. Svo fékk ég langa skýringu á því að þetta mætti ég bara ekki. Með því að sýna þennan hluta líkama míns væri ég að sýna heiminum eitthvað sem einungis maðurinn minn ætti að sjá (og væntanlega ég), annars væri ég að gefa í skyn að ég væri einhvers konar gála. Ég ákvað að takast á við vanda- málið með því að gleyma alveg hversu frjálslynd ég er gagnvart öðrum skoðunum. Hífði bolinn upp fyrir nafla, sagðist gera það sem mér sýndist og hann mætti bara.... Já, það er alltaf gott að sýna þroska og yfirvegun. ■ STUÐ MILLI STRÍÐA SVANBORG SIGMARSDÓTTIR GEKK Á HURÐ ENN EINU SINNI Að sjá ekki glerhurðir M YN D : H EL G I S IG U RÐ SS O N Ferðataskan í sumar Léttur öllari Besti ferðafélaginn SÁLIN ÞAR SEM ÍSLENDINGUM FINNST SKEMMTILEGAST AÐ DJAMMA HÚSIÐ OPNAR KL. 23.00 HÚSIÐ OPNAR KL. 23.00 FORSALA FÖSTUD. FRÁ KL. 13 TIL 17 MIÐAVERÐ V. INNGANG 1900 KR. NÁNARI UPPLÝSINGAR FÖSTUD. 08. JÚLÍ ‘05 LAUGARD. 09. JÚLÍ ‘05 Í SVÖRTUM FÖTUM K A LL IO G R A P H IC /A 3 STÓRDANSLEIKUR DEKK • FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK • FÓLKSBÍLADEKK •JEPPADEKK • FÓLKS LEIÐANDI Í LÆGRA DEKKJAVERÐI GÆÐAVARA Á BETRA VERÐI! ...einfaldlega betri! Eftir Patrick McDonnell ■ PONDUS ■ GELGJAN ■ KJÖLTURAKKAR ■ BARNALÁN ■ PÚ OG PA Eftir SÖB Eftir Kirkman/Scott Eftir Jerry Scott & Jim Borgman Eftir Frode Överli Hundrað bólur! Ég fæ alltaf þessa sömu martröð þegar skólaball nálgast! Slappaðu af! Þú ert bara með eina! Það sjá það allir! Sá sem sagði að maður ætti aldrei að líta til for- tíðar var kannski að hugsa um róluvelli. Var þetta dót alltaf svona lítið? Þarna er beinahrúgan mín. Þjónninn þinn gefur þér bein hvenær sem þú vilt!! Til hvers ertu að geyma þessi?! Til minninga. Hæ, Vala! Ó, hæ Bíbí, hvað segirðu gott? Ég fann þennan frábæra geisladisk sem er uppfullur af uppskriftum og hjálplegum ráðleggingum og mér datt í hug að þú hefðir not fyrir hann. Vá, takk fyrir! Ég bara veit að þetta á eftir að koma sér vel í eldhúsinu. Skra p! Skra p! Skra p!

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.