Fréttablaðið - 07.07.2005, Side 25
Reglulega er þörf fyrir nýjan kjól í
fataskápinn en þegar mikið liggur við
getur stundum reynst erfitt að finna
þann eina rétta. Þetta misserið ætti þó
ekki að vera erfitt að finna flottan
partýkjól þar sem úrvalið er nokkuð gott og
kjólarnir eru af fjölbreytilegum stærðum,
formum og gerðum. Síðir kjólar hafa sótt
á undanfarið, munstraðir kjólar eru
mjög áberandi og þunnir rómantískir
kjólar hafa líka verið vinsælir. Það er
líka mikið til af fallega skreyttum
kjólum, til dæmis með perlum,
skrautsteinum og litríku bróderíi.
Svo skrautlegur kjóll njóti sín sem
best mega skór og skart vera í
einfaldari kantinum, til dæmis
væru tréarmbönd og sandalar
tilvaldir við dragsíðan perlu-
skreyttan kjól eða ljósir
hælar og perlufestar við
einn rómantískan og
munstraðan. Útsalan í
Zöru byrjaði á dögun-
um og þar fást fallegir
kjólar í allskyns stílum,
síddum og litum.
FIMMTUDAGUR 7. júlí 2005
Skólína frá The Game
Bílafyrirtækið 310 Motoring mun framleiða skóna sem verða
fönkí eins og rapparanum sæmir.
Kjóll við öll tækifæri
Síðir, munstraðir, skreyttir, rómantískir...
The Game hefur aldeilis vakið lukku í tónlistarheiminum og ætlar nú að leggja tísku-
heiminn undir sig.
Hipp hopp stjarnan The Game
hefur bæst í hóp fjölmargra tón-
listarmanna sem reyna fyrir sér í
tískuheiminum en rapparinn ætl-
ar að setja á markað sína eigin
skólínu.
Skóframleiðandinn Reebok
kom sér í samband við The Game
varðandi framleiðslu á skólínu
undir nafni hans en að lokum var
það bílafyrirtækið 310 Motoring í
Los Angeles sem hafði betur og
mun framleiða skóna.
Skólínan heitir Hurricane By
310 og kemur á markað í nóvem-
ber á þessu ári.
kr. 5995
kr. 3995
kr. 3995 kr. 2995 kr. 2995