Fréttablaðið - 07.07.2005, Side 12
FRELSI TIL AÐ MENGA Þessi frelsisstytta
var reist George W. Bush Bandaríkjaforseta
til heiðurs vegna heimsóknar hans til
landsins í gær. Á skjalinu í fangi hennar
stendur „frelsi til að menga“.
12 7. júlí 2005 FIMMTUDAGUR
Auglýsingastofan kærir tímaritið:
Hér og nú ehf. kærir Hér og nú
FJÖLMIÐLAR Auglýsingastofan
Hér og nú ehf. kærði í gær sam-
nefnt tímarit fyrir notkun nafnsins
Hér og nú og fer fram á að notkun
nafnsins verði hætt. Einnig vill stof-
an að málið fái forgang hjá Sam-
keppnisstofnun vegna þeirrar nei-
kvæðu umræðu sem verið hefur um
tímaritið í fjölmiðlum undanfarið.
„Við skoðuðum okkar réttar-
stöðu um leið og blaðið hóf göngu
sína,“ segir Ingvi Jökull Logason,
eigandi stofunnar. „En umræðan
hvatti okkur til þess að flýta kæru-
ferlinu.“ Hann segir bæði auglýs-
ingastofuna og 365 starfa á sviði
fjölmiðlunar og að nokkuð sé um
þann misskilning að fólk telji Aug-
lýsingastofuna vera útgefanda
tímaritsins. Henni hafi borist
fjöldamörg símtöl sem ætluð eru
blaðinu. „Fólk hefur hringt í okkur
bæði til að hella úr skálum reiði
sinnar og til að koma fréttum áleið-
is.“ Jafnvel hefur verið hringt heim
til stjórnenda fyrirtækisins að
kvöldi til. „Það sem skiptir samt
mestu máli er óánægja viðskipta-
vina okkar sem vilja alls ekki tengj-
ast nafninu Hér og nú. Sama gildir
um tilvonandi viðskiptavini.“
- grs
Siglingar farflegaferju hefjist
frá Reykjavík næsta vor
SAMGÖNGUR Hópur manna vinnur
nú að undirbúningi þess að ferju-
siglingar hefjist milli Reykjavík-
ur, Newcastle á Englandi og
Bremerhaven í Þýskalandi næsta
vor. Einnig kemur til greina að
hafnarstæði ferjunnar verði í Þor-
lákshöfn eða á Grundartanga. Að-
standendurnir leggja mikið upp
úr þægindum og tala jafnvel um
lúxusferju í eigu Íslendinga. Þeir
hafa undanfarið skoðað nokkur
skip og sjá fyrir sér að ferjan geti
orðið um eða yfir 140 metra löng,
tekið allt að 1200 farþega og
200 bíla, og geti siglt frá
Reykjavík inn í hjarta Evr-
ópu á þremur dögum.
Málið hefur
verið á
hugmynda- og umræðustigi í
meira en tvö ár í fámennum hópi
sem hefur fundað með fjölda aðila
og kynnt hugmyndina. Guðmund-
ur Hallvarðsson, formaður sam-
göngunefndar Alþingis, hefur átt
fundi með hópnum og mun vera
velviljaður hugmyndinni. Aðrir
alþingismenn og sveitarstjórnar-
menn hafa einnig sýnt málinu
áhuga og vilja greiða götu
þess, þó ekki standi til að rík-
ið fjármagni ferjusiglingarnar. Þá
hefur hugmyndin einnig verið
kynnt fyrir Samskipum og Eim-
skipum og einnig hafa einstak-
lingar innan ferðaþjónustunnar
sýnt hugmyndinni áhuga.
Um þessar mundir er verið að
leggja drög að stofnun félags sem
vinnur að frekari undirbún-
ingi og öflun
fjárfesta. Stefnt er að því að halda
opinn kynningar- og blaðamanna-
fund um ferjusiglingarnar um
miðjan ágúst til að stækka hópinn
og verður félagið stofnað í kjölfar
þess.
„Við sjáum enga agnúa á
því að hefja siglingar næsta
vor,“ segir Guðjón Jónsson,
bílstjóri í ferðaþjónustu
og fyrrverandi skipstjóri,
en hann er einn frumkvöðlanna.
„Í sjálfu sér er ekki margt sem
þarf að ganga upp til að það
takist.“ grs@frettabladid.is
ÞÓRARINN OG JÓN BIRGIR Fráfarandi úti-
bússtjóri segist afar ánægður með eftir-
mann sinn.
Sjóvá Akureyri:
N‡r útibússtjóri
MANNASKIPTI Þórarinn B. Jónsson
hefur látið af störfum sem útibús-
stjóri Sjóvár á Akureyri eftir að
hafa starfað hjá félaginu í 41 ár.
Jón Birgir Guðmundsson tók við
starfi útibússtjóra af Þórarni en
síðastliðin tvö og hálft ár hefur
hann starfað sem verkefnisstjóri
hjá bæjarráði Akureyrar og að-
stoðarmaður bæjarstjóra. Þar á
undan veitti Jón Birgir útibúi IMG
Gallup á Akureyri forstöðu. - kk
Reykjagarður hf. · Fossháls 1 · 110 Reykjavík · Sími 575 6440 · 110 Reykjavík · Bréfasímar: 575 6490 · www.holta.is
Reykjagarður hf
www.holta.is
Upplýsingar um vöruúrval
Reykjagarðs og uppskriftir
er að finna á heimasíðu
fyrirtækisins www.holta.is
SÁÁ byggir við Efstaleiti:
Húsi› tilbúi›
hausti› 2006
Skóflustunga að nýrri byggingu
SÁÁ við Efstaleiti var tekin í
fyrradag en stefnt er að því að
byggingu hússins verði lokið
haustið 2006. Það mun stórbæta
meðferðar- og félagsstarf SÁÁ
og á að hýsa göngudeildarþjón-
ustu, skrifstofu og félagsstarf
samtakanna. Árið 2002 var gerð
úttekt á ástandi húsa SÁÁ og
reyndist það bágborið. Í fram-
haldinu var ákveðið að ráðast í
byggingu hússins við Efstaleiti
og hefur núverandi húsnæði
samtakanna við Síðumúla verið
sett á sölu.
-rsg
INGVI JÖKULL LOGASON
Eigandi auglýsingastofunnar Hér og nú ehf. er
ekki sáttur við þau áhrif sem tímaritið umtal-
aða er farið að hafa á rekstur stofunnar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
ÁL
L
B
ER
G
M
AN
N
Gunnar Smári svarar:
Segir fordæmi
vera fjöldamörg
SKÓFLUSTUNGAN Björgólfur Guðmunds-
son tók fyrstu skóflustunguna að nýbygg-
ingunni sem er hönnuð af ASK arkítektum.
HÉRAÐSDÓMUR
STELPUR DÆMDAR FYRIR INN-
BROT Fyrsta mars brutust tvær
stelpur á átjánda ári inn í kjall-
araíbúð í Kópavogi og stálu far-
tölvu. Þær voru í gær dæmdar í
mánaðarfangelsi í Héraðsdómi
Reykjavíkur, en önnur varð átján
ára í apríl. Dómurinn var skil-
orðsbundinn í þrjú ár, en báðar
játuðu stúlkurnar greiðlega. Þá
þurfa þær að greiða bætur upp á
110.000 fyrir tölvuna.
Stefnt er a› flví a› lúxusfarflegaferja í eigu Íslendinga hefji siglingar milli Reykjavíkur, Englands og
fi‡skalands næsta vor. Mi›a› er vi› ferju sem tekur 1200 farflega og 200 bíla.
FRUMKVÖÐLAR AÐ FERJUSIGLINGUM
Frá vinstri: Guðbjartur Halldórsson, Guðjón
Jónsson og Þorsteinn Kröyer. Hugmyndin
að ferjusiglingum varð fyrst til í þeirra
hópi. Þeir hafa nú ýtt málinu úr vör og
fengið fleiri til liðs við sig.
FJÖLMIÐLAR Gunnar Smári Egils-
son, framkvæmdastjóri 365, seg-
ist ekki geta séð að tímaritið og
auglýsingastofan séu að starfa á
sama vettvangi og því sé ekkert
athugavert við notkun nafnsins
Hér og nú. „Það er alþekkt að heiti
á vöru eða þjónustu sé það sama
og nafn á fyrirtækjum í óskyldum
rekstri. Þannig er til dæmis Kast-
ljós fyrirtæki í Skipholti í Reykja-
vík, Víðsjá fyrirtæki í Birkihlíð og
Spegillinn félag í Hafnarfirði. Þá
eru til ein fimm fyrirtæki sem
heita Vísir. Fjöldamörg álíka
dæmi eru til um þetta.“
- grs