Fréttablaðið - 07.07.2005, Side 48
7. júlí 2005 FIMMTUDAGUR28
Stjórinn hefur ákveðinn rétt
FÓTBOLTI Á þriðjudag í síðustu viku
fékk Pulis símtal frá Gunnari Þór
Gíslasyni, stjórnarformanni
Stoke. „Hann hringdi í mig um
morguninn og tjáði mér að þeir
ætluðu að láta mig fara,“ sagði
Pulis, þegar Fréttablaðið ræddi
við hann skömmu eftir að honum
hafði verið sagt upp. Um hádegi
sama dag hafði brottreksturinn
verið gerður opinber um gjörvall-
ar Bretlandseyjar.
Svo virðist sem að ákvörðunin
um að reka Pulis hafa einvörð-
ungu legið í höndum íslensku
stjórnarmannana, þeirra Gunnars
Þórs, Stefáns Geirs Þórissonar og
Ásgeirs Sigurvinssonar.
Hinir ensku stjórnarmenn fé-
lagsins, Peter Coates, Phil Rawl-
ins og Keith Humphreys, komu af
fjöllum og lýstu því yfir í fjölmiðl-
um daginn eftir að tilkynnt hafði
verið um brottvikningu Pulis að
þeir hefðu ekki einu sinni verið
látnir vita af ætlunum Íslending-
anna.
„Við vorum látnir vita á föstu-
degi að þeir hygðust reka Pulis
strax eftir helgi. Yfir þessa sömu
helgi vorum við látnir vita hver
myndi taka við,“ sagði Rawlins en
komið hefur fram að viðræður við
Hollendinginn Johan Boskamp,
sem var ráðinn stjóri Stoke dag-
inn eftir að Pulis fékk að taka pok-
ann sinn, höfðu hafist um miðjan
júní – tveimur vikum áður en Pul-
is var rekinn.
Allan þennan tíma hafði Pulis,
ekki frekar en ensku stjórnar-
mennirnir, ekki hugmynd um
hvað var að gerast bak við tjöldin
hjá íslensku stjórnarmönnunum.
„Það var enginn stjórnarfund-
ur haldinn. Þetta var einfaldlega
ákvörðun sem var tekin á Íslandi.
Að mínu mati á stjórnin að koma
saman áður en knattspyrnustjóri
félagsins er rekinn. Að rekja
þjálfarann er ein stærsta ákvörð-
un sem fótboltafélag tekur,“ bætti
Rawlins ósáttur við.
Skilur sjónarmið stjórnarinnar
Pulis hafði verið við stjórnvöl-
inn í 32 mánuði og 131 leik þegar
hann var rekinn. Af þessum leikj-
um hafði Pulis leitt liðið til sigurs
í 47 leikjum, gert 32 jafntefli en
tapað 52 – árangur sem verður að
teljast mjög góður þegar tekið er
tillit til þess takmarkaða fjár-
magns sem Pulis hafði yfir að
ráða. Gefnar ástæður brottrekst-
urins voru þær að Pulis væri ekki
nægilega áfjáður í að fá erlenda
leikmenn til liðsins, eitthvað sem
hann hafði lofað bót á betrun á
þegar hann skrifaði undir nýjan
árs langan samning við Stoke 15.
apríl síðastliðinn.
„Ég naut þess að vera hjá Stoke
og ég tel mig hafa unnið gott
starf,“ segir Pulis. „Við höfum
endað í 11. og 12. sæti á síðustu
tveimur leiktíðum þrátt fyrir að
ég hafi ekki haft neina peninga til
að nota í leikmannakaup. Ég fékk
til mín leikmenn sem voru án
samnings og seldi þá fyrir góðan
pening. Knattspyrnustjóri stend-
ur og fellur með úrslitunum sem
hann nær með liðinu og ég taldi
mig ná góðum úrslitum. Svo auð-
vitað kom þessi uppsögn mér á
óvart. Þetta er mjög svekkjandi.“
Er rétt að þú vildir helst ekki fá
til þín leikmenn frá leikmanna-
mörkuðum utan Bretlandseyja?
„Ég vísa því á bug að ég hafi
ekki staðið við loforð um að leita á
erlenda markaði. En það er á mína
ábyrgð sem knattspyrnustjóri að
velja leikmenn sem ég gæti hugs-
að mér að fá til liðsins. Það skipt-
ir máli ekki hvort þeir eru erlend-
ir, frá mars eða tunglinu, þetta er
spurning hvort að knattspyrnu-
stjórinn telji þá nógu góða fyrir
liðið. En ég get skilið sjónarmið
stjórnarinnar, hún er að stórum
hluta skipuð Íslendingum og þeir
vilja hafa liðið alþjóðlegra.“
Stjórinn velur liðið
Pulis hefur legið undir nokk-
urri gagnrýni, og þá helst frá
Magnúsi Kristinssyni, stjórnar-
formanni Stoke Holding – félag-
inu sem skráð er fyrir knatt-
spyrnufélaginu Stoke, fyrir að
nota ekki íslenska leikmenn.
Löngu þekkt er orðið þegar
Tryggvi Guðmundsson og Þórður
Guðjónsson gengu til liðs við
Stoke um síðustu jól, eingöngu
fyrir tilstuðlan íslensku stjórnar-
innar. Báðir voru þeir algjörlega
sveltir tækifærum; Tryggvi
komst aldrei í hóp aðalliðsins á
þeim tveimur mánuðum sem hann
dvaldi hjá Stoke og Þórður spilaði
í nokkrar mínútur frá áramótum
og út tímabilið.
„Stjórnin samdi við þá og ég
kom ekkert þar að máli. Og
einmitt í því fólst vandinn, ég
hafði aldrei séð þá spila og þekkti
ekkert til þeirra. Það var ekkert
leyndarmál að stjórnin vildi hafa
íslenska leikmenn í liðinu og ég
skildi það alveg. Aðalmálið er að
framkvæmdastjórinn á að ráða
því hverja hann velur í liðið sitt.“
Fannst þér íslenska stjórnin
troða þér um tær þegar þeir
sömdu við þessa leikmenn, án
þess að spyrja þig einu sinni álits?
„Þeim er frjálst að segja sitt
álit á hverjir spila hverju sinni en
ég hef alltaf valið besta mögulega
liðið. Ég hef aldrei skilið leikmann
utan liðsins sem ég tel að eigi
heima í því, bara út af því að hann
er íslenskur.“
Og sú staðreynd að stjórnin
fékk þá til liðsins en ekki þú, hafði
það ekkert að segja um að þú spil-
aðir þeim ekki?
„Nei, það hefði ekkert með það
að gera. Málið var að ég vissi ekk-
ert um leikmennina.
En nú sástu til þeirra á æfing-
um og í leikjum með varaliðinu.
Þórður hefur mikla reynslu frá
ýmsum löndum og spilaði meðal
annars nokkra leiki með Derby í
úrvalsdeildinni á sínum tíma. Hef-
ur hann virkilega ekki það sem
þarf til að komast í hóp hjá 1.
deildarliði um miðja deild?
„Eins og ég sagði, þá er þetta
spurning álit og þekkingu á við-
komandi leikmanni. Þórður stóð
Tony Pulis, fyrrum knattspyrnustjóri Stoke, segir uppsögnina sem hann fékk frá félaginu í síðustu viku
hafa komið sér mjög á óvart. Í samtali við Fréttablaðið vísar hann ástæðum brottrekstursins á bug og
greinir frá þeim vandamálum sem fylgja því að stjórna ensku knattspyrnufélagi frá Íslandi.
Magnús Kristinsson formaður Stoke Holding:
FÓTBOLTI Magnús Kristinsson,
stjórnarformaður Stoke Holding
og helsti fjárhagslegi bakhjarl
félagsins, segir ráðningu Johans
Boskamp marka nýtt upphaf
fyrir Stoke. Nú þegar Pulis er
horfinn á braut kveðst Magnús
glaður setja pening í félagið á
ný, en hann lýsti því yfir nú á
vormánuðunum að hann skyldi
ekki eyða krónu til viðbótar á
meðan Pulis væri við stjórn.
Aukinheldur sagði hann frá því
að Stoke væri versta fjárfesting
sem hann hefði nokkurn tíma
lagt í á lífsleiðinni.
Nú horfir öðruvísi við. „Það
lá í orðunum á sínum tíma að ég
skyldi breyta afstöðu minni um
leið og Pulis væri farinn. „Nú er
nýtt tímabil að hefjast hjá Stoke
og er félagið í miklum blóma,“
sagði Magnús í samtali við
Fréttablaðið.
„Þeir hlýddu mér og sáu að
það var rétt hjá mér allan tím-
ann að láta Pulis fara. Maðurinn
var bara ekki hæfur til sinna
verka. Hann vann á móti okkur
og nú hafa þeir loksins séð það.
Það segir sína sögu hvernig Pul-
is hagaði sér gagnvart Tryggva
Guðmundssyni. Hann er búinn
að slá í gegn á Íslandi en Pulis
vildi varla svo mikið sem horfa á
hann á æfingum.“
Hversu stóran þátt áttir þú í
því að Pulis var rekinn?
„Ég hef ekkert verið að beita
mér í þessu. Ég hef aðeins fylgst
með þessu bak við tjöldin og má
kannski orða það þannig að þeir
hafi ekki treyst sér til að reka
félagið án
mín,“ segir
Magnús og
bætir við að
viðbrögðin við
nýja stjóranum
í Stoke séu
mjög góð. „Ég
held að félagið
komi sterkt út
úr þessum
breytingum,“
segir Magnús.
Þegar Stoke-ævintýrið hófst
fyrir tæpum sex árum áttu Ís-
lendingarnir sér þann draum að
komast í ensku úrvalsdeildina.
Magnús segir að sá draumur lifi
enn þá góðu lífi í dag. „Og við
förum langleiðina með að láta
drauminn rætast á næstu leik-
tíð. Ef ekki nú, þá innan tveggja
ára.“
Þetta eru ansi stór orð?
„Já, og ég stend við þau.“
vignir@frettabladid.is
Draumurinn um úrvals-
deildarsæti lifir gó›u lífi
MAGNÚS
KRISTINSSON
TONY PULIS Kveður Stoke með
söknuð í hjarta og er svekktastur
með að hafa ekki fengið að klára
það sem hann ætlaði sér alltaf
með liðið – að koma því upp í
ensku úrvalsdeildina.
GUNNAR ÞÓR GÍSLASON Hefur verið
stjórnarformaður Stoke allan þann tíma
sem Íslendingar hafa átt meirihlutann í
félaginu.
Ég hef aldrei skilið
leikmann utan liðs-
ins sem ég tel að eigi heima
í því, bara út af því að hann
er íslenskur.“
,,