Fréttablaðið - 07.07.2005, Side 25

Fréttablaðið - 07.07.2005, Side 25
Reglulega er þörf fyrir nýjan kjól í fataskápinn en þegar mikið liggur við getur stundum reynst erfitt að finna þann eina rétta. Þetta misserið ætti þó ekki að vera erfitt að finna flottan partýkjól þar sem úrvalið er nokkuð gott og kjólarnir eru af fjölbreytilegum stærðum, formum og gerðum. Síðir kjólar hafa sótt á undanfarið, munstraðir kjólar eru mjög áberandi og þunnir rómantískir kjólar hafa líka verið vinsælir. Það er líka mikið til af fallega skreyttum kjólum, til dæmis með perlum, skrautsteinum og litríku bróderíi. Svo skrautlegur kjóll njóti sín sem best mega skór og skart vera í einfaldari kantinum, til dæmis væru tréarmbönd og sandalar tilvaldir við dragsíðan perlu- skreyttan kjól eða ljósir hælar og perlufestar við einn rómantískan og munstraðan. Útsalan í Zöru byrjaði á dögun- um og þar fást fallegir kjólar í allskyns stílum, síddum og litum. FIMMTUDAGUR 7. júlí 2005 Skólína frá The Game Bílafyrirtækið 310 Motoring mun framleiða skóna sem verða fönkí eins og rapparanum sæmir. Kjóll við öll tækifæri Síðir, munstraðir, skreyttir, rómantískir... The Game hefur aldeilis vakið lukku í tónlistarheiminum og ætlar nú að leggja tísku- heiminn undir sig. Hipp hopp stjarnan The Game hefur bæst í hóp fjölmargra tón- listarmanna sem reyna fyrir sér í tískuheiminum en rapparinn ætl- ar að setja á markað sína eigin skólínu. Skóframleiðandinn Reebok kom sér í samband við The Game varðandi framleiðslu á skólínu undir nafni hans en að lokum var það bílafyrirtækið 310 Motoring í Los Angeles sem hafði betur og mun framleiða skóna. Skólínan heitir Hurricane By 310 og kemur á markað í nóvem- ber á þessu ári. kr. 5995 kr. 3995 kr. 3995 kr. 2995 kr. 2995

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.