Fréttablaðið - 07.07.2005, Page 4

Fréttablaðið - 07.07.2005, Page 4
KAUP Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR USD GBP EUR DKK NOK SEK JPY XDR 65,53 65,85 114,97 115,53 78,21 78,65 10,462 10,524 9,843 9,901 8,312 8,36 0,5853 0,5887 94,61 95,17 GENGI GJALDMIÐLA 06.07.2005 GENGIÐ HEIMILD: Seðlabanki Íslands SALA 109,95 -0,032% 4 7. júlí 2005 FIMMTUDAGUR Tveggja mánaða fangelsi fyrir kverkatak: Var ósáttur vi› umfjöllun DV DÓMSTÓLAR Jón Trausti Lúthers- son var í gær dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir að hafa í október í fyrra ráðist á þáverandi fréttastjóra DV. Jón Trausti ruddist með tveim- ur félögum sínum inn á ritstjórn blaðsins í Reykjavík og vildi hitta fyrir ritstjóra. Hann kvaðst fyrir dómi hafa verið ósáttur við ítrek- aðar myndbirtingar af honum í blaðinu og taldi mannorð sitt hafa verið eyðilagt. Þegar mönnunum var vísað á dyr með þeim orðum að panta þyrfti viðtal hjá ritstjór- anum, sem ekki var í húsi, tók hann fréttastjórann kverkataki þannig að hann sortnaði fyrir aug- um, auk þess sem hann marðist á hálsi. „Ofbeldisfullt framferði ákærða var rustafengið, ófyrir- leitið og með öllu tilefnislaust,“ segir í dómi Héraðsdóms Reykja- víkur og talið ljóst að Jón Trausti og félagar hans „hefðu ekki kinok- að sér við að beita líkamlegu of- beldi ef þeir hefðu ekki orðið sátt- ir við svör og þá fyrirgreiðslu er þeir sóttust eftir hjá ritstjóra DV“. Dóminn kvað upp Símon Sig- valdason héraðsdómari. -óká Lundúnir hrepptu hnossi› Mikill fögnu›ur braust út í Lundúnum í gær flegar tilkynnt var a› Ólympíuleikarnir 2012 ver›i haldnir í borginni. París haf›i fram til gærdagsins veri› talin líklegust til a› ver›a valin og flví voru vonbrig›i Frakka me› ákvör›un Alfljó›aólympíunefndarinnar mikil. ÓLYMPÍULEIKARNIR Fundar Alþjóða- ólympíunefndarinnar í Singapúr í gær hafði verið beðið með mikilli eftirvæntingu enda var keppnin um hvaða borg héldi Ólympíuleik- ana 2012 óvenju hörð. Ásamt Par- ís og Lundúnum bitust einnig New York, Moskva og Madríd um leik- ana. Atkvæðagreiðslan í morgun var í fjórum umferðum en að lok- um stóðu Lundúnir uppi sem sig- urvegari. Mjótt var þó á munum, París fékk 50 atkvæði en Lundún- ir 54. Flestir eru sammála að frammistaða Sebastian Coe, Ólympíumeistara og forsvars- manns framboðsins, hafi ráðið úr- slitum um að borgin bar sigur úr býtum. Elísabet Bretadrottning sendi honum kveðjur sínar, svo og Tony Blair forsætisráðherra. „Þetta er stórkostlegur dagur fyrir Breta,“ sagði hann. Strax og úrslitin urðu ljós þustu Lundúnabúar út á göturnar, veifuðu fánum og þeyttu bílflaut- ur. Þúsundir söfnuðust saman á Trafalgar-torgi en jafnframt lögðu margir leið sína á staðinn sem hinn nýi Ólympíuleikvangur verður reistur. Gengi bréfa í breskum verk- takafyrirtækjum tók stökk á hlutabréfamörkuðum í gær og fasteignasalar spá enn frekari hækkun húsnæðisverðs í borginni vegna ákvörðunarinnar. Rigningin í París í gær var táknræn fyrir stemmninguna þar en Frakkar voru fyrirfram afar bjartsýnir á að fá að halda leik- ana. ólympíuleikarnir voru síðast haldnir í Frakklandi 1924 og þeim hafði verið synjað um að halda þá 1992 og 2008. Þeir fjölmörgu sem komu saman fyrir framan ráðhús Parísarborgar í gær urðu fyrir sárum vonbrigðum þegar Al- þjóðaólympíunefndin greindi frá ákvörðun sinni. Jacques Chirac færði Bretum þó sínar hamingju- og velfarnaðaróskir. Mikið er í húfi fyrir þá borg sem hreppir þetta eftirsótta hnoss. Kastljós heimsbyggðarinn- ar beinist að staðnum í aðdrag- anda leikanna og á meðan á þeim stendur og í mörg ár á eftir liggur straumur ferðamanna þangað. Framkvæmdirnar sem leikunum fylgja þýða jafnframt að mörg störf skapast. Umstangið í kringum leikana er hins vegar afar kostnaðarsamt, en Lundúnablaðið Times gerir ráð fyrir að þeir kosti 1.400 milljarða íslenskra króna. Þær áætlanir gætu hæglega farið úr böndunum, Grikkir eru enn að súpa seyðið af kostnaðinum við sína leika sem voru tvöfalt dýrari en í upphafi var búist við. sveinng@frettabladid.is Gassprenging í Bjarkarlundi: Fólki› enn á sjúkrahúsi SLYS Líðan mannsins og konunnar sem lentu í gassprengingu í Bjarkarlundi um helgina er eftir atvikum góð. Deildarlæknir á lýtalækningadeild Landspítalans segir að fólkið þurfi að liggja á deildinni í tvær til þrjár vikur. Fókið fékk annars og þriðja stigs bruna og er í svokallaðri opinni meðferð þar sem þau liggja í svokölluðu brunahólfi og stofurn- ar eru dauðhreinsaðar. Atvik málsins voru þau að mað- urinn var að skipta um gaskút inni í hjólhýsi þegar sprenging varð. Engan annan sakaði í slysinu. -at Sendiherra Breta: Húsi› nötra›i ÓLYMPÍULEIKARNIR „Ég stend á Trafalgar-torgi og Nelson virð- ist horfa mjög stoltur ofan af súlunni sinni,“ sagði Alp Meh- met, sendi- herra Bret- lands á Íslandi, þegar haft var við hann sam- band í gær. „Þetta er mikill gleðidagur fyr- ir alla Lundúnabúa. Þeir óska hverjir öðrum til hamingu og tala um hversu stórkostlegur dagur þetta sé. Ég var í utan- ríkisráðuneytinu þegar fregn- in spurðist út og allt í einu nötraði byggingin vegna fagn- aðarláta. Ég hefði aldrei getað ímyndað mér hversu frá sér numið af fögnuði fullorðið fólk gæti orðið. Þetta er sigur fyrir alla Breta, ekki bara Lundúna- búa.“ ■ Forseti ÍSÍ: Hæstánæg›ur ÓLYMPÍULEIKARNIR Ellert B. Schram, forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, líst vel á að leik- arnir verði haldnir í Lund- únum. „Þetta er á sama menn- ingarsvæði og Ísland og ná- lægt okkur og gerir allan und- irbúning þægi- legri og kostnað lægri.“ Ellert er staddur á Ólympíu- hátíð æskunnar í Lignano með íslenskum ungmennum sem á vissan hátt má líta á sem undir- búning fyrir Ólympíuleikana 2012. „Jú, kannski að við séum að stíga fyrstu skrefin núna til að undirbúa þá. Krakkarnir verða í það minnsta á besta aldri þegar þar að kemur.“ ■ VEÐRIÐ Í DAG ALP MEHMET ELLERT SCHRAM VONBRIGÐI Í PARÍS Frakkar töldu að röðin væri loksins komin að sér og því var ákvörðun- in reiðarslag fyrir marga. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P SVEINN ANDRI SVEINSSON HRL. Sveinn Andri, sem er lögmaður Jóns Trausta Lútherssonar, kvaðst eftir að dómur féll dá- lítið undrandi á að hann skuli ekki hafa ver- ið skilorðsbundinn. Jón Trausti, sem mætti ekki við uppkvaðningu dómsins, hefur ekki sætt refsingu dómstóla áður svo heitið geti. KALIMARMARO-LEIKVANGURINN Þarna fóru fyrstu Ólympíuleikar nútímans fram árið 1896. Þrítugustu leikarnir Leikarnir í Lundúnum verða 30. Ólymp- íuleikar nútímans. Þeir hafa verið haldnir nánast óslitið síðan 1896, að heimsstyrjaldarárunum 1914-18 og 1939-45 frátöldum. 1896 – Aþena, Grikklandi 1900 – París, Frakklandi 1904 – St. Louis, BNA 1906 – Aþena, Grikklandi* 1908 – Lundúnir, Bretlandi 1912 – Stokkhólmur, Svíþjóð 1920 – Antwerpen, Belgíu 1924 – París, Frakklandi 1928 – Amsterdam, Hollandi 1932 – Los Angeles, BNA 1936 – Berlín, Þýskalandi 1948 – Lundúnir, Bretlandi 1952 – Helsinki, Finnlandi 1956 – Melbourne, Ástralíu 1960 – Róm, Ítalíu 1964 – Tókýó, Japan 1968 – Mexíkóborg, Mexíkó 1972 – München, V-Þýskalandi 1976 – Montreal, Kanada 1980 – Moskva, Sovétríkjunum 1984 – Los Angeles, BNA 1988 – Seúl, S-Kóreu 1992 – Barcelona, Spáni 1996 – Atlanta, BNA 2000 – Sydney, Ástralíu 2004 – Aþena, Grikklandi 2008 – Lundúnir, Bretlandi *Ólympíuleikarnir í Aþenu 1906 eru vana- lega ekki taldir með Ólympíuleikum nútím- ans. Til álita kom á sínum tíma að halda leika annað hvert ár – fjórða hvert ár í Grikklandi og fjórða hvert ár annars staðar í heiminum – en það var aðeins gert einu sinni. Þótt engir leikar hafi verið haldnir heimsstyrjaldarárin eru þau ár talin með.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.