Fréttablaðið - 07.07.2005, Qupperneq 6
6 7. júlí 2005 FIMMTUDAGUR
Tólf þúsund manns komu saman í Kaupmannahöfn:
Kröftug en fri›samleg mótmæli
DANMÖRK Talið er að um tólf þús-
und manns hafi mótmælt komu
George W. Bush,
forseta Banda-
ríkjanna, til Dan-
merkur í miðborg
Kaupmannahafn-
ar í gær.
Fólkið safnað-
ist saman fyrir
framan sendiráð
Bandaríkjanna í
austurhluta borg-
arinnar og gekk þaðan fylktu liði
að þinghúsinu við Kristjánsborg.
Mótmælin fóru friðsamlega fram
en þau voru skipulögð af ýmsum
félagasamtökum.
Lögreglan hafði gert miklar
ráðstafanir og var mjög áberandi
við mótmælin. Fjölda gatna var
lokað og þyrlur sveimuðu yfir
mótmælendum við upphaf göng-
unnar. Við Kristjánsborg voru svo
haldnar ræður og tónlistarmenn
stigu á svið. Stemmningin var
mikil allan tímann, ræðumönnum
var vel fagnað og fjöldi fólks var
með kröfuspjöld og barmmerki.
Anja Vedelsby, einn mótmæl-
enda, kvaðst vera mætt til að and-
æfa mannréttindabrotum sem
framin eru í nafni utanríkisstefnu
ríkisstjórnar Bush. „Fólk deyr
daglega úti um allan heim aðeins
vegna stefnu hans í mannréttinda-
málum. Danska stjórnin ætti að
láta af stuðningi sínum við Banda-
ríkjamenn enda er danska þjóðin
á móti Bush,“ sagði hún í samtali
við Fréttablaðið.
Bush flaug til Skotlands seinni
part gærdagsins eftir sextán
klukkutíma dvöl í Danmörku. - ks
Helgi Hjörvar um ummæli Jónínu Bjartmarz:
Skítkast ekki svara vert
STJÓRNMÁL „Skítkast Framsóknar
er ekki svara vert,“ segir Helgi
Hjörvar, þingmaður Samfylking-
arinnar, vegna svara Jónínu
Bjartmarz í Fréttablaðinu í gær
þar sem hún segir siðferðisþrek
Samfylkingarinnar á þrotum.
„Ég hef beint þremur málefna-
legum spurningum til formanns
fjárlaganefndar um einkavæð-
ingu Búnaðarbankans og tengsl
forystumanna Framóknarflokks-
ins við Ker hf. Í fyrsta lagi hvort
upplýsingar Kauphallarinnar um
að hagnaður Hesteyrar hf. af við-
skiptum í Keri hafi numið 495
milljónum eins og svar Kauphall-
ar Íslands til mín virðist bera með
sér, í öðru lagi hvort forsætisráð-
herra hafi alls ekki vitað um þessi
viðskipti eins og segir í minnis-
blaði Ríkisendurskoðunar, og í
þriðja lagi hvort Ker hf. hafi af-
salað sér húseign til félaga Fram-
sóknarflokksins í miðju einka-
væðingarferlinu. Nú hefur Fram-
sóknarflokkurinn játað að þetta
með húseignina sé rétt og viður-
kennt að þessar tímasetningar séu
mjög óheppilegar. Því verða for-
ystumenn flokksins að svara því
hvers vegna þeir upplýstu ekki
um þessi óheppilegu viðskipti í at-
hugun fjárlaganefndar. Þeir hafa
hins vegar kosið að tala um skít-
legt eðli og annað því um líkt. Ég
bíð hins vegar rólegur eftir svör-
um,“ segir Helgi. - oá
Samþykkja leiðtogar G8- ríkjanna
eitthvað á fundi sínum til að draga
úr fátækt í Afríku?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ertu sátt(ur) við að ólympíuleik-
arnir verði haldnir í London árið
2012?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
50%
50%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
M
YN
D
/K
R
IS
TJ
ÁN
S
IG
U
R
JÓ
N
SS
O
N
ANJA VEDELSBY
Í MÓTMÆLAGÖNGU Margir Danir mættu til að mótmæla komu George W. Bush til landsins.
Átök í upphafi fundar
Lei›togafundur G8-ríkjanna hófst í gær í skugga fjölmennra mótmæla. Fá-
mennur hópur óeir›aseggja stal fló senunni flar sem hann ó› uppi me› of-
beldi og skrílslátum. Bílrú›ur voru brotnar og lögreglumenn meiddust.
AUCTHERARDER, AP Átök brutust út á
milli mótmælenda og lögreglu við
upphaf G8-fundarins í Gleneagles
í Skotlandi í gær. Flytja þurfti
fólk á sjúkrahús og talsverð
eignaspjöll voru unnin.
Það fór á þann veg sem margir
höfðu óttast, róstur og ringulreið
settu mestan svip á upphaf leið-
togafundar sjö helstu iðnríkja
heims og Rússlands sem hófst í
gær í Gleneagles í Skotlandi.
Strax í gærmorgun tók hópur
uppivöðslusamra mótmælenda að
láta ófriðlega í bænum í Stirling,
rúma tuttugu kílómetra frá
Gleneagles, en þar gista um 5.000
stjórnleysingjar og andstæðingar
hnattvæðingar. Mölvuðu þeir rúð-
ur kyrrstæðra bíla og köstuðu
grjóti að lögreglu. Leggja þurfti
nokkra lögregluþjóna á sjúkrahús
og voru 60 manns handteknir
fyrir dólgslætin.
Vegna óeirðanna í Stirling
ákvað Tayside-lögreglan að banna
mótmælagöngu frá bænum Auct-
herarder sem hún hafði áður veitt
leyfi fyrir. Mikil reiði greip um
sig hjá forsvarsmönnum göng-
unnar enda höfðu þeir lagt
áherslu á að ganga þeirra yrði
með friðsamlegu yfirbragði. „Síð-
an hvenær hefur Bretland verið
lögregluríki?“ spurði hinn um-
deildi skoski þingmaður George
Galloway. „Hvenær fékk lögregl-
an heimild til að aflýsa kröfu-
göngum í þessu frjálsa landi okk-
ar?“ Lögreglan ákvað skömmu
síðar að heimila gönguna.
Um fjögur þúsund manns tóku
þátt í göngunni og í fyrstu fór allt
vel fram. Fljótlega klofnaði hins
vegar gangan, nokkur hundruð
mótmælendur rifu niður girðingu
við veginn og hlupu síðan að lög-
regluvarðturni sem stóð við ör-
yggisgirðingu um Gleneagles-
svæðið. Herþyrlur fluttu óeirða-
lögreglu fljótlega á vettvang og
tókst henni að dreifa ófriðar-
seggjunum.
Stærstur hluti göngumanna lét
sér þó nægja að mótmæla á frið-
samlegan hátt. Margir þeirra
fórnuðu höndum og hrópuðu
„hendur ykkar eru ataðar blóði“.
Væntanlega hafa þeir vísað þar
til stríðsrekstarins í Írak og
eymdarinnar í Afríku sem þeir
telja að leiðtogar G8-ríkjanna
beri ábyrgð á. ■
HELGI HJÖRVAR
Segist bíða rólegur eftir svörum frá for-
manni fjárlaganefndar.
M
YN
D
/A
P
STÁL Í STÁL Örþunn öryggisgirðing skildi að æsta mótmælendur og lögreglumenn í Auchterarder, nærri Gleneagles í Skotlandi í gær.
Flytja varð liðsauka á vettvang með herþyrlum eftir að upp úr sauð.