Fréttablaðið - 07.07.2005, Page 30

Fréttablaðið - 07.07.2005, Page 30
Rúmföt Litlaust og óspennandi svefnherbergi er hægt að lífga upp á með skrautlegum rúmfötum. Það er einfalt að eiga nokkur sett og skipta um liti og mynstur eftir árstíðum.[ ] Kringlunni - sími : 533 1322 Vandaðar heimilis- og gjafavörur Útsala í Duka Mörg góð tilboð Arinbúðin Stórhöfða 17 v/Gullinbrú (fyrir neðan húsið) · Sími 567 2133 · www.arinn.is Ný sending af kristalsljósakrónum Treystir því að fá að vera í friði fyrir vindinum Morgunverður úti á svölum í góðu veðri er dásamlegur að mati Sivjar Friðleifsdóttur. Siv Friðleifsdóttir þingmaður lætur sér líða vel utan dyra við heimili sitt þegar veðrið er gott. „Mér finnst mjög notalegt að borða morgunmat á svölunum þegar veður leyfir, en það minnir mig á Noreg þegar veðrið hefur verið gott,“ segir Siv Friðleifs- dóttir þingmaður. „Ég vildi bara að maður gæti það oftar,“ segir Siv brosandi en bætir því við að hún sé með ágætis svalir sem snúi í suður og þar sé gott skjól. „Mað- ur kemur sér bara vel fyrir í peysu og treystir því að ekki komi vindhviða,“ segir Siv. Hún segist alltaf fá sér morgun- verð, þar sem hann er mikilvægast máltíð dagsins. „Cappuccino og geitaostur eru fastir liðir á mínu morgunverðarborði,“ segir Siv og til áhersluauka tekur hún fram að geitaosturinn heiti G3 og sé þessi í rauða pakkanum. Hún telur afar mikilvægt að geta verið utan dyra við heimili sitt og auk þess sem hún nýtur kaffibollans á svölunum ræktar hún þar kryddjurtir og sal- at til matargerðar. „Mér finnst líka gott að vera í garðinum og reyna að dytta að honum þegar tími gefst,“ segir Siv. „Ég slappa af við að slá grasið þó það sé puð. Ég hef gaman af allri hreyfingu og geng og hjóla mikið. Maður fær svo góð- ar hugmyndir við að hreyfa sig, hugmyndir sem hægt er að vinna að í stjórnmálum,“ segir Siv. kristineva@frettabladid.is Garðbekkur þarf ekki endilega að vera bara úti í garði eða á svölun- um. Hann getur líka nýst vel inn- andyra og er skemmtilegt að koma fyrir garðbekk í anddyrinu. Gott er að setja í hann nokkra púða og nota hann til að sitja á þegar skórnir eru reimaðir, eða sem fyrirtaks stað til að sitja á og tala í símann. Ekki þarf að hafa miklar áhyggjur af því að fúa- verja hann árlega, bara þurrka af honum rykið reglulega og þá lítur hann út eins og nýr. Garðhúsgögnin inn Bekkur í anddyrinu. Alltaf gott að hafa stað til að sitja á. Íslensk list allerie r g ó ð g j ö f FR ÉT TA B LA Ð IÐ /N O R D IC P H O TO /G ET TY Í eldhúsi þar sem þörf er á ljósi sem lýsir beint niður á borð, en þarf ekki að dreifa úr sér yfir mikið svæði er til- valið að útbúa sjálfur nokk- ur ljós úr nið- ursuðudósum. Dósina þarf að opna að neðan, tæma hana og þrífa. Passa þarf upp á að skemma ekki miðann, en hægt er að taka miðann af í heilu lagi og líma hann svo aftur á efir þrifin. Því næst er útbúið gott gat á lok dós- arinnar svo hægt sé að þræða rafmagnssnúru þar í gegn. Campell-súpudósirnar eru til- valdar í ljósið eða jafnvel Ora grænar baunir. Líka er hægt að útbúa sjálfur sinn eigin miða og setja utan um ljósið. Lýsandi niðursuðudósir Ódýr heimatilbúin ljós.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.