Fréttablaðið - 07.08.2005, Page 21
3
ATVINNA
Sérfræðiþjónusta skólaskrifstofu
Sálfræðingur
Fræðsluskrifstofa Reykjanesbæjar óskar eftir að ráða sálfræðing í 60 % starf.
Starfið felst í greiningu, ráðgjöf, meðferð og fræðslu barna og fjölskyldna þeirra, sem og ráðgjöf til starfsfólks í
leik- og grunnskólum. Krafist er réttinda til að starfa sem sálfræðingur á Íslandi og lipurðar í mannlegum sam-
skiptum. Reynsla á sviði skólasálfræði og félagsþjónustu er æskileg. Laun skv. kjarasamningum Stéttarfélags sál-
fræðingafélags Íslands og Launanefndar sveitarfélaga . Umsóknarfrestur er til 20. ágúst. Staðan er laus frá og
með 25 ágúst.
Upplýsingar veita Gylfi Jón Gylfason yfirsálfræðingur og Eiríkur Hermannsson fræðslustjóri í síma 421-6700 .
Kennsluráðgjafi.
Fræðsluskrifstofa Reykjanesbæjar óskar eftir að ráða kennsluráðgjafa í 50% starf. Um er að ræða tímabundna
ráðningu. Starfið felur í sér m.a. sérkennsluráðgjöf, almenna kennsluráðgjöf, greiningar/athuganir og leiðsögn.
Umsækjendur skulu hafa framhaldsmenntun í kennslufræðum, góða starfsreynslu eða aðra menntun sem telst
sambærileg. Krafist er lipurðar í mannlegum samskiptum. Umsóknarfrestur er til 20. ágúst. Laun skv. kjarasamn-
ingum viðkomandi stéttarfélags.
Upplýsingar veita Eiríkur Hermannsson fræðslustjóri Reykjanesbæjar og Gylfi Jón Gylfason yfirsálfræðingur í síma
421-6750. Umsóknir berist Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar, Hafnargötu 57, 230 Reykjanesbæ.
Fræðslustjóri
Hjúkrunarfræðingar
Lausar eru stöður hjúkrunarfræðinga.
Breytileg starfshlutföll.
Sjúkraliðar
Sjúkraliðar óskast til starfa. Starfshlutfall
samkomulag.
Starfsfólk í aðhlynningu
Starfsfólk óskast við umönnun aldraðra, í
fulla vinnu svo og í hlutastörf.
Skjól er hjúkrunarheimili aldraðra þar sem
hjúkrun er veitt í hlýlegu umhverfi. Að vinna
við umönnun aldraðra er dýrmæt og góð
reynsla. Góð starfsaðstaða.
Reyklaus vinnustaður.
Nánari upplýsingar veitir Aðalheiður
Vilhjálmsdóttir hjúkrunarforstjóri
(alla@skjol.is) virka daga í síma 522-5600
SKJÓL Hjúkrunarheimili,
Kleppsvegi 64, 104 Reykjavík
Framtíðarstarf
AÐFÖNG óska eftir starfsmönnum
í lagerstörf.
Við bjóðum upp á góða tekjumöguleika, góða vin-
nuaðstöðu og mötuneyti er á staðnum. Leitað er að
kraftmiklum og áreiðanlegum einstaklingum sem
eru eldri en 18 ára og vilja framtíðarstarf hjá traus-
tu og framsæknu fyrirtæki.
Umsóknareyðublöð má fá í móttöku Aðfanga að
Skútuvogi 7, 104 Reykjavík einnig er hægt að sækja
um á www.adfong.is upplýsingar gefur Trausti í
síma 693-5602.