Fréttablaðið - 07.08.2005, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 07.08.2005, Blaðsíða 26
8 ATVINNA Við ráðningar í störf við Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Háskóli Íslands v/Suðurgötu, 101 Reykjavík, s. 525 4000 REIKNISTOFNUN NETSÉRFRÆÐINGUR Reiknistofnun óskar að ráða netsérfræðing. Reiknistofnun er vel staðsett þjónustustofnun í mjög fjölbreyttu rekstrarumhverfi. Áhersla er lögð á hátækni og símenntun í starfi. Reiknistofnun er í miklu samstarfi við hlið- stæðar stofnanir á Norðurlöndum. Starfið Um er að ræða sérhæft starf á sviði staðar- og víðnetlausna. Helstu verkefni eru netstjórn- un, neteftirlit, rekstur og uppbygging netkerfis Háskóla Íslands (HInet). Í boði er áhugavert og krefjandi starf þar sem sjálfstæði og skipulagshæfileikar fá að njóta sín. Netbúnað- ur er frá Cisco. Hugbúnaðarumhverfi er Unix, Linux, Windows og MacOSX. Á HIneti eru nú tengd um 8000 tæki og notendur eru um 12.000 manns. Hæfniskröfur Leitað er að áhugasömum einstaklingi með menntun og reynslu á sviði netrekstrar. Æski- legur bakgrunnur er menntun í rafiðnaðar- greinum og skilyrði er reynsla af Cisco IOS stýrikerfum. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnu- brögð, hæfileika í mannlegum samskiptum og hópstarfi. Starfið hentar konum ekki síður en körlum og eru konur hvattar til að sækja um starfið. Umsóknarfrestur er til 15. ágúst n.k. Nánari upplýsingar veitir Birgir Guðbjörnsson, deildarstjóri netdeildar, sími 525 4106, netfang: birgirkr@hi.is. Sjá nánar á www.hi.is/page/storf og www.starfatorg.is Sif Gunnarsdóttir er verkefn- isstjóri viðburða hjá Höfuð- borgarstofu. Starf hennar felst meðal annars í því að skipu- leggja viðburði eins og menn- ingarnótt og vetrarhátíð. „Það er í rauninni ótrúlega margt sem felst í þessu starfi. Ég sé um skipulagningu og framkvæmd á þessum stóru viðburðum sem Reykjavíkurborg stendur fyrir svo sem menningarnótt og vetrar- hátíð,“ segir Sif sem er verkefnis- stjóri viðburða hjá Höfuðborgar- stofu. „Starfið snýst að mjög miklu leyti um að vera í samskipt- um við fólk og þá í rauninni alla sem koma að þessum viðburðum. Það er alveg frábært. Ég hef sam- band við listamenn, fyrirtæki, stofnanir og hópa. Allt frá því að leigja salerni og upp í að redda styrktaraðilum. Kynningarmálin eru líka fyrirferðamikil og ég þarf að vera í góðu sambandi við fjölmiðla og auglýsingastofur. Ég kem eiginlega að öllu sem snýr að skipulagningunni og stundum finnst mér eins og mér sé ekkert óviðkomandi,“ segir Sif og hlær. Hún er þó ekki ein um að skipu- leggja þessa viðburði því í hvert sinn hefur hún með sér diggan hóp samstarfsmanna. „Það eru óteljandi atriði sem þarf að taka með í reikninginn og í rauninni er stór atburður eins og menning- arnótt búinn til af öllum þeim sem vilja taka þátt, ekki bara þeim sem sjá um skipulagið,“ segir Sif. Sif hefur starfað hjá Höfuð- borgarstofu frá því í nóvember árið 2002 en áður starfaði hún meðal annars í menningarmið- stöðinni Gerðubergi. Hún er með mastersgráðu í menningar- fræðum og segir að námið nýtist vel í starfinu. „Auðvitað nýtist námið vel og reynslan frá Gerðubergi er líka góð. Öll reynsla kemur sér vel og það nýtist mér líka að hafa unnið við að þrífa á hóteli og afgreitt á bar. Maður á ekki að gera lítið úr neinni vinnu,“ segir Sif sem ætlar að setjast á skólabekk í haust og læra rekstar- og við- skiptafræði hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Það er nóg að gera í vinnunni hjá Sif og lítið um dauða tíma. „Þetta eru stór verkefni og það þarf að fylgja þeim vel eftir. Allt frá því hugmyndirnar kvikna og þangað til maður skilar skýrslu að viðburðinum loknum. Um leið og einu verkefni lýkur tekur annað við en þetta er allt saman mjög skemmtilegt. Það er dásamlegt að fylgjast með því þegar hugmynd fæðist og maður nær í samstarfi við frábæra listamenn að hlúa að henni þannig að hún verður að einhverju stóru. Ég hef gríðarlega gaman að þessu. Menning í víð- asta skilningi þess orðs, er mitt helsta áhugamál og frábært að fá að sameina starf og áhugamál,“ segir Sif. Gaman þegar hugmyndirnar verða að veruleika Sif er með mastersgráðu í menningarfræðum en ætlar að setjast aftur á skólabekk í haust og læra rekstar- og viðskiptafræði. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.