Fréttablaðið - 07.08.2005, Page 48

Fréttablaðið - 07.08.2005, Page 48
20 7. ágúst 2005 SUNNUDAGUR Fimmtíu sta›reyndir um fimm aldna Íslandsvini Fimm tónlistarmenn í eldri kantinum hei›ra Ís- lendinga me› nærveru sinni á næstunni. Freyr Bjarnason gróf upp tíu sta›reyndir um hvern listamann fyrir sig, sem allir eiga áratuga reynslu a› baki í tónlistarbransanum. MICHAEL BOLTON 51 árs Rétt nafn: Michael Bolotin. Fæðingardagur: 26. febrúar 1954. Fæðingarstaður: New Haven í Connecticut. Uppruni: Bolton skrifaði undir sinn fyrsta plötusamning aðeins 15 ára. Átrúnaðargoð hans voru Ray Charles, Marvin Gaye og Otis Redding. Fyrsta hljómsveit: Þungarokksveitin Blackjack. Fyrsta plata: Michael Bolton (1983). Vissir þú að..: Bolton átti misheppnaðan sólóferil undir sínu rétta nafni, Michael Bolotin, áður en hann sló í gegn sem ballöðukóngurinn Michael Bolton. Fræg lög: How Am I Supposed To Live Without You og When a Man Loves a Woman. Orðspor: Hjartaknúsari, rómantíker og maðurinn með stóru röddina. Á Íslandi: 21. september í Laugardalshöll. BOBBY MCFERRIN 55 ára Rétt nafn: Bobby McFerrin. Fæðingardagur: 11. mars 1950. Fæðingarstaður: New York-borg. Uppruni: Fluttist snemma með fjölskyldu sinni til Los Angeles og lærði á píanó í menntaskóla. Bæði mamma hans og pabbi voru klassískir söngv- arar. Fyrsta hljómsveit: Píanóleikari með Ice Follies, Fyrsta plata: Bobby McFerrin (1982). Vissir þú að..: McFerrin fékk ekki áhuga á söng fyrr en 1977. Hann kom fyrst fram undir eigin nafni 1980 þegar grínistinn Bill Cosby útvegaði honum pláss á Playboy Jazz-hátíðinni í Hollywood Bowl. Fræg lög: Don’t Worry, Be Happy og titillag sjón- varpsþáttanna vinsælu The Cosby Show. Orðspor: Einn sérstæðasti og fjölhæf- asti söngvari heimsins. Getur hljómað eins og þrír söngvarar á sama tíma. Á Íslandi: 9. ágúst í Háskóla- bíói. ALICE COOPER Rétt nafn: Vincent Damon Furnier. Fæðingardagur: 4. febrúar 1948. Fæðingarstaður: Detroit, Michigan. Uppruni: Fjölskylda Coopers fluttist frá bíla- borginni Detroit til Phoenix í Arizona þegar hann var ungur að aldri. Fyrsta hljómsveit: Earwigs. Fyrsta plata: Pretties For You (1969). Vissir þú að...: Cooper skrifaði greinar í skólablað Cortez-menntaskólans í Phoenix og var í hlaupaliði skólans. Fræg lög: School’s Out árið 1972 og Poison 1989. Orðspor: Brautryðjandi í svoköll- uðu sjokkrokki þar sem leikhúsi og tónleikum er blandað saman í eina stóra sýningu. Á Íslandi: 13. ágúst í Kaplakrika. 57 ára JOE COCKER 61 árs Rétt nafn: Joe Cocker en gekk undir sviðsnafninu Vance Arnold um tíma. Fæðingardagur: 20. maí 1944. Fæðingarstaður: Sheffield á Englandi. Uppruni: Cocker starfaði sem bens- ínafgreiðslumaður áður hann sló í gegn undir eigin nafni. Fyrsta hljómsveit: Vance Arnold and the Avengers. Fyrsta plata: With a Little Help From My Friends (1969). Vissir þú að...: Cocker hitaði upp fyrir Rolling Stones á tónleikum í heimaborg sinni Sheffield árið 1963 með hljómsveitinni Vance Arnold and the Avengers. Fræg lög: Hans útgáfa af Bítlalaginu With a Little Help From My Friends árið 1968, You Are So Beautiful árið 1975 og dúettinn Up Where We Belong með Jennifer Warnes úr kvikmyndinni An Officer and a Gentle- man árið 1982. Orðspor: Syngur ekki bara með röddinni heldur öllum líkamanum. Besti hvíti sálarsöngvarinn sem Bretland hefur alið. Á Íslandi: 1. september í Laugardalshöll. PATTI SMITH 59 ára Rétt nafn: Patti Smith. Fæðingardagur: 30. desember 1946. Fæðingarstaður: Chicago. Uppruni: Ólst upp í Fíladelfíu og síðar í Woodbury í New Jersey. Mamma hennar var djasssöngkona og þjónustustúlka. Pabbi hennar vann í orkuveri. Fyrsta hljómsveit: Textasmiður hjá þungarokksveitinni Blue Öyster Cult. Fyrsta plata: Horses (1975). Vissir þú að...: Hinn sálugi og mikilsmetni tónlistarmað- ur Jeff Buckley kom fram sem gestur á plötu Smith, Gone Again, árið 1996. Fræg lög: Dúettinn Because the Night með Bruce Springsteen 1978 og Dancing Barefoot sem kom út ári síðar. Hljómsveitin U2 gerði sína útgáfu af laginu um miðjan tíunda áratuginn við miklar vinsældir. Orðspor: Einn áhrifamesti kvenkyns rokkari og texta- smiður allra tíma. Á Íslandi: 6. september á Nasa.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.