Fréttablaðið - 07.08.2005, Síða 54

Fréttablaðið - 07.08.2005, Síða 54
7. ágúst 2005 SUNNUDAGUR26 Keppnistímabili› í handboltanum hefst í næsta mánu›i og standa nú yfir miklar æfingar hjá öllum hand- boltali›um. Patrekur Jóhannesson er genginn til li›s vi› sitt gamla félag í Stjörnunni ásamt fjölmörgum ö›rum leikmönnum og kve›st hann hlakka miki› til vetrarins. Patrekur stefnir á meistaratitil HANDBOLTI Nýir leikmenn hjá meistaraflokki Stjörnunnar í handknattleik karla voru kynntir í gær í nýrri og glæsilegri aðstöðu í Garðabæ, en Stjörnumenn ætla sér stóra hluti á komandi leiktíð í handboltanum. Patrekur Jóhannesson, sem verið hefur atvinnumaður í hand- knattleik um árabil, er einn nýju leikmannanna en hann lék með Stjörnunni í yngri flokkum og hóf sinn feril í meistaraflokki með fé- laginu. „Þetta leggst vel í mig. Ég hef æft á fullu síðan í vor og er að reyna að ná mér góðum af meiðsl- unum, þó ég geti það nú ekki al- veg. Ég hætti í atvinnumennsk- unni vegna meiðslanna, en hér heima hef ég meira samráð við þjálfarana, þá Sigurð Bjarnason og Magnús Teitsson, um það hvaða æfingar ég get gert og hverjar ekki. En það er hugur í leikmönnum og stjórnarmönnum hjá Stjörnunni og það er virkilega gaman að geta komið í mitt gamla félag á uppgangstímum, en það var alltaf ætlunin að gera það. Það eru margir efnilegir leikmenn í hópnum sem eiga eftir að láta mikið að sér kveða í vetur.“ Patrekur er að fara í háskóla- nám í haust og verður í Íþrótta- akademíu Íslands í Reykjanesbæ, en þar er félagi hans úr íslenska landsliðinu, Geir Sveinsson, við stjórnvölinn. „Ég var ákveðinn í því að koma heim og fara í nám, og það lá beinast við að fara í íþróttirnar. Ég hef mikla reynslu sem leikmaður og vonandi nýtist hún mér eitthvað í náminu.“ Tite Kalandze og Roland Valur Eradze gengu til liðs við Stjörn- una frá ÍBV í vor og segir Sigurð- ur Bjarnason þá vera mikinn liðs- styrk og geri félaginu kleift að stefna á að vinna titla. „Það er al- veg ljóst frá minni hálfu að Stjarnan verður að berjast um sigur í þeim keppnum sem félagið tekur þátt í. Það er frábært að fá Patrek heim aftur. Hann hefur æft vel að undanförnu og gefur ungu strákunum ekkert eftir á æf- ingum. Það er líka gott fyrir yngri flokka-starfið að fá leikmann til baka úr atvinnumennsku sem spilaði á yngri árum með Stjörn- unni. Stefnan er sett á að byggja upp gott yngri flokka-starf hér í Garðabæ og innan fárra ára verð- ur vonandi hægt að stilla upp liði hjá meistaraflokki sem er að mestu skipað uppöldum leik- mönnum.“ magnush@frettabladid.is Chelsea einbeitir sér algjörlega að Mickael Essien: FÓTBOLTI Jose Mourinho lýsti því yfir í gær að félagið ætlaði ekki að festa kaup á enska landsliðs- manninum Michael Owen sem er nú orðaður við annað hvert lið á Englandi. Mourinho segist enga ástæðu hafa til að bæta við sókn- armanni – hann notist við ákveðið leikkerfi þar sem aðeins einn hreinræktaður sóknarmaður spili. „Ég spila með vængmenn og einn framherja. Við keyptum Dider Drogba og Hernan Crespo dýrum dómum – tveir leikmenn sem ég elska. Charlton Cole er hluti af persónulegu veðmáli, veðmál sem ég vil vinna. Kannski ekki á næstu tveimur mánuðum en veðmál sem ég mun vinna á endanum,“ segir Mourinho sem augljóslega sér mikla hæfileika í Cole. Og hæfileikarnir eru einnig til staðar hjá Eiði Smára Guðjohn- sen, sem Mourinho hrósaði enn einu sinni þegar hann tók fyrir það að Owen væri á leiðinni. „Þetta eru þrír framherjar sem allir geta staðið sig vel. Svo er ég með Eið sem getur spilað hvar sem ég vil, hvort sem er á miðju eða í sókninni. Það er enginn til- gangur í því að fá einn sóknar- mann í viðbót,“ sagði Mourinho og ekki ber á öðru en að Mickael Essien sé eini leikmaðurinn sem Mourinho girnist. Mourinho vill ekki fá Owen MEST LESNA TÍMARIT LANDSINS Birta er komin út ! Litið inn á æfingu á Kabarett Tíska - Skemmtilegt skraut í hárið Hollywood skvísur í gulu Öflugasta sjónvarpsdagskrá landsins tíska tíðaran dinn heilsa leikhús útli t pistlar ma tur SJ Ó NV AR PS DA GS KR ÁI N 5. ág ús t - 1 1. ág ús t ferðast um heim inn » Linda Mjöll St efánsdóttir heim shornaflakkari ÍSLENSKT FREL SI BESTA GJÖFIN » Litið inn á æfin gu KABARETT » Hollywood-skv ísur í gulu GLAMÚRGELLU R 01 birta-for síða 2.8.20 05 16:03 P age 1 Leikmyndahönnuð urinn og heimshor naflakkarinn Linda Mjöll komin heim. Kylfingurinn Colin Montgomerieætlar að gera allt sem hann getur til að geta tekið þátt í opna banda- ríska PGA mótinu sem hefst í næstu viku, þrátt fyrir að hafa þurft að draga sig úr keppni á Johnnie Wal- ker mótinu sem fram fer í Gleneag- les um þessar mundir. Montgomerie slas- aðist á fingri og var um tíma óttast að hann hefði brotnað, en nú hafa röntgenmyndir sýnt að svo er ekki. Montgomerie sló í gegn á opna breska meistaramótinu í síðasta mánuði þar sem hann endaði í öðru sæti á eftir Tiger Woods og virtist óðum vera að finna sitt gamla form og segir umboðsmaður hans að þess vegna séu meiðslin mikið áfall fyrir Skotann knáa. Nú bendir allt til þess að enskimiðjumaðurinn Kieron Dyer skrifi undir nýjan samning við lið sitt Newcastle áður en að flautað verður til leiks í ensku úrvalsdeildinni um næstu helgi. Dyer lenti í ýmsu á síð- ustu leiktíð og var um tíma óttast um hvort hann hefði áhuga á að vera áfram hjá félaginu – fyrst lenti hann í útistöðum við gamla stjórann Bobby Robson og síðan í handalög- málum við samherja sinn Lee Bowyer. En nú er Dyer ánægður með lífið og tilveruna hjá Newcastle, öfugt við Jermeine Jenas sem hefur beðið um sölu frá félaginu, og kveðst ætla að framlengja samning sinn á næstu dögum. ÚR SPORTINU FJÓRIR FÉLAGAR Hér eru þeir Tite Kalandze, Roland Eradze, Patrekur Jóhannesson og Sigurður Bjarnason. Stjörnumenn ætla sér að berjast um Íslandsmeistaratitilinn í vetur og hafa fengið til liðs við sig sterka leikmenn fyrir komandi átök. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Fjórir leikir fara fram í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld: Sigursteinn flreytir frumraun sína gegn Íslandsmeisturum FH í kvöld FÓTBOLTI Stórleikur þrettándu um- ferðarinnar sem fer fram að mestu í kvöld er leikur FH og KR í Kaplakrikanum í Hafnarfirði. Sigursteinn Gíslason stjórnar KR í fyrsta skipti í leiknum og verður forvitnilegt að sjá hvaða breyting- ar hann gerir á liðinu, sem er í sjötta sæti deildarinnar með þrettán stig. Fréttablaðið fékk Loga Ólafsson, annan landsliðs- þjálfaranna, til að velta fyrir sér leikjum kvöldsins. „KR getur vel komið á óvart í þessum leik og unnið FH á heima- velli, en ég held þó að FH vinni leikinn. Þrátt fyrir að FH hafi fall- ið út úr bikarkeppninni gegn Fram á dögunum þá er ég viss um að leikmenn liðsins muni þjappa sér saman og halda sínu striki í deildinni,“ segir Logi um þennan stórleik kvöldsins. Í Keflavík mætast síðan Kefla- vík og Þróttur, en staða liðanna í deildinni er ólík þar sem Keflavík er í þriðja sæti með nítján stig en Þróttur í því níunda og næstneðsta með níu stig. „Eftir að Atli Eðvaldsson tók við Þrótti hefur varnarleikur liðsins batnað og það er nauðsynlegt í fallbarátt- unni sem er framundan. Það býr mikið í báðum þessum liðum og ég á von á því að það verði skemmti- leg knattspyrna spiluð í Keflavík. Ég reikna með því að bæði lið verði frískleg fram á við og spái skemmtilegum leik sem endar með jafntefli.“ Í Vestmannaeyjum mætast ÍBV og Grindavík, en bæði liðin eru í neðri hluta deildarinnar. „Ég á von á miklum baráttuleik og bæði liðin verða að fá þrjú stig. Þó að leikmenn ÍBV hafi ekki alltaf verið góðir í fyrsta leiknum eftir þjóðhátíð þá er ég viss um að þeir verði baráttuglaðir núna og vinni leikinn.“ Fylkir og ÍA mætast í Árbæn- um, en Fylkismenn duttu út úr bikarkeppninni þegar Valur vann þá 2-0 á Laugardalsvelli. „Bæði lið geta spilað ágætis knattspyrnu, þó það takist ekki alltaf. Ég á von á því að það verði jafnræði með liðunum og leikurinn endar því með jafntefli, í baráttuleik.“ Síðasti leikur umferðarinnar fer svo fram á morgun þegar Fram og Valur mætast á Laugar- dalsvelli. magnush@frettabladid.is ÚR FYRRI LEIK KR OG FH Í SUMAR FH hefur haft gott tak á KR undanfarin ár. Í fyrri leikn- um í sumar vann FH 1-0, með marki frá Jóni Þorgrími Stefánssyni. Perez vann fyrsta gulli› FRJÁLSAR Jefferson Perez frá Ekvador vann fyrstu gullverð- launin á heimsmeistaramótinu í Helsinki, þegar hann sigraði í tuttugu kílómetra kappgöngu. Perez gekk á einni klukkustund, átján mínútum og 35 sekúndum. Franska frjálsíþróttakonan Eunice Barber er með tveggja stiga forskot eftir fyrri keppnis- dag í sjöþraut en hún hefur hlotið 3.973 stig, en heimsmeistarinn Carolina Kluft frá Svíþjóð er í öðru sæti. Bandaríski kúluvarparinn John Godina, sem er þrefaldur heimsmeistari, féll úr leik í gær en hann kastaði kúlunni nítján metra og 54 sentímetra. Godina á tvö lengstu köst ársins en náði sér engan veginn á strik og endaði í sautjánda sæti í forkeppninni. Bandaríkjamaðurinn Christian Cantwell kastaði kúlunni lengst allra og Daninn Joachim Olsen varð annar. - mh Heimsmeistaramótið í frjálsum hófst í Helsinki í gær: JEFFERSON PEREZ Jefferson Perez var al- gjörlega uppgefinn þegar hann kom í mark í Helsinki, en hann hafði töluverða yfirburði í göngunni.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.