Fréttablaðið - 07.08.2005, Síða 55

Fréttablaðið - 07.08.2005, Síða 55
SUNNUDAGUR 7. ágúst 2005 27 Úkraínumaðurinn AndriyShevchenko, sem hefur verið orðaður við 60 milljón punda sölu til Chelsea í allt sumar, lýsti því yfir í gær að hann væri mjög ánægður í herbúðum AC Milan og hefði eng- an áhuga á að fara þaðan. Hinn 28 ára gamli markaskorari kveðst vilja vera trúr Milan, rétt eins og félagið hefur verið við hann. „Milan keypti mig og hafa aldrei viljað sleppa mér, jafnvel þótt félaginu hafi verið boðnir miklir peningar. Forsetinn (Silvio Berlusconi) hefur gert mikið fyrir mig og fjölskyldu mína og ég vill þakka honum fyrir með því að vera áfram. Ég hef verið hér í sjö ár og Ítalía er orðið mitt annað heimili,“ sagði Shevchenko. Franski sóknarmaðurinn og hinnnýji fyrirliði Arsenal, Thierry Henry, kveðst ætla að vera hjá fé- laginu eins lengi og það vill halda honum. Henry, sem á tvö ár eftir af núverandi samningi sínum við félagið, segir ekkert hæft í þeim orðrómi að hann sé óánægður. „Ég hef sagt það oft áður og geri það einu sinni enn - ég er einstaklega ham- ingjusamur hjá Arsenal. Ég hef ný- lega verið gerður að fyrirliða og eins lengi og félagið vill halda mér mun ég vera áfram,“ segir Henry, sem einmitt á í viðræðum um að fram- lengja samninginn sinn og er talið að hann verði einn hæst launaðasti leikmaður deildarinnar ef hann skrifar undir. Úrvalsdeildarlið Wigan gekk í gærloksins frá kaupum á sóknar- manninum Henri Camara frá Wolv- es fyrir þrjár milljónir punda. Við- ræður við leikmanninn höfðu farið út um þúfur í síð- ustu viku og benti allt til þess að Camara myndi leika með Úlfunum í 1. deildinni í vet- ur, en á síðustu stundu snérist hon- um hugur og sætt- ist á við þau kjör sem Wigan bauð. „Þetta eru frábærar fréttir fyrir félag- ið. Camara er náttúrulegur marka- skorari og býr yfir miklum hraða og getu. Hann er mjög góð viðbót við hópinn sem við höfu þegar,“ sagði Paul Jewell stjóri Wigan eftir að kynnt hafði verið um kaupin í gær. Tvær af fremstu tenniskonumBandaríkjanna, Lindsay Daven- port og Serena Williams, eru nú í kapphlaupi við tímann til að ná sér af meiðslum sem hrjá þær áður en að opna bandaríska meistaramótið hefst í lok þessa mánað- ar. Williams hefur enn ekki náð sér af fullu af ökklameiðsl- um sem hún hlaut í apríl sl. og hefur enn ekki spilað leik eftir að hafa verið slegin út í þriðju umferð opna breska meistaramóts- ins. Davenport er hins vegar meidd í baki og sagði sjálf í gær að hún væri engan veginn klár í slaginn ef mótið hæfist í dag. „Ég vona að ég lagist á næstu þremur vikum,“ sagði Davenport. ÚR SPORTINU Þrír leikmenn spila ennþá í efstu deild Hajrudin Cardaklija: Lék m.a. með Breiðabliki og Leiftri. Frábær markmaður sem var sérstak- lega góður maður gegn manni. Tommy Nielsen: Mjög góður leikmaður sem er að spila núna með stórgóðu liði FH. Milan Stefán Jankovic: Var frábær leikmaður. Yfirvegaður varnarmaður og með góðan vinstri fót. Zoran Miljkovic: Einn sigursælasti útlending- urinn í íslenskum fótbolta fyrr og síðar með ÍBV og ÍA. Þekki sjálfur ágætlega til hans. Izudin Daði Dervic: Einn af fyrstu leikmönnun- um sem hingað komu frá Júgóslavíu. Er mjög fjölhæfur leikmaður. James Bett: Spilaði nú ekki lengi hér á landi en þeir taktar sem hann sýndi voru alveg magnaðir. Lúkas Kostic: Leikmaður sem allir þekkja, var í sigursælu Skagaliði. Stjórnaði þar vörninni eins og hershöfðingi. Tel hann einnig góðan kost á miðjuna. Salih Heimir Porca: Hugmyndafræðingurinn í þessu liði. Frábær miðjumaður. Dean Martin: Einn skemmtilegasti vængmað- ur sem maður hefur séð í íslensku deildinni. Sinisa Kekic: Magnaður leikmaður sem stend- ur alltaf fyrir sínu. Mihajlo Bibercic: Einn markahæsti útlending- ur sem hér hefur leikið og er margfaldur Ís- landsmeistari. „Borgvardt verður að skora 16 mörk í deildinni til að komast í þetta lið.“ Jankovic 4-4-2 LIÐIÐ MITT > BJARNI JÓHANNSSON SETUR SAMAN ÚRVALSLIÐ ERLENDRA LEIKMANNA Í EFSTU DEILD Porca Bett Kostic Martin MiljkovicNielsen Dervic Cardaklija Keppni allra landsmanna Frítt á leiki og happdrættispottur Sextán ára og yngri fá frítt á leiki í Landsbankadeildinni í sumar og lenda í happdrættispotti þar sem dregnir verða út 100 glæsilegir vinningar. Miðar eru afhentir í útibúum bankans. 1. vinningur: 4 flugmiðar og 4 miðar á leik í Meistaradeild Evrópu. Aðrir vinningar: Áritaðar landsliðstreyjur og vandaðir fótboltar. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S L BI 2 91 49 08 /0 5 410 4000 | www.landsbanki.is VIÐ STYÐJUM ÍSLENSKA KNATTSPYRNU MEÐ STOLTI sun. 7. ágúst 18:00 ÍBV - Grindavík sun. 7. ágúst 18:00 FH - KR sun. 7. ágúst 18:00 Keflavík - Þróttur R. sun. 7. ágúst 18:00 Fylkir - ÍA mán. 8. ágúst 20:00 Fram - Valur NÆSTU LEIKIR LANDSBANKADEILDAR KARLA Kekic Bibercic HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 4 5 6 7 8 9 10 Sunnudagur ÁGÚST ■ ■ LEIKIR  18.00 ÍBV tekur á móti Grindavík á Hásteinsvelli í Landsbankadeild karla.  18.00 Fylkir fær ÍA í heimsókn í Árbæinn í Landsbankadeild karla.  18.00 Keflavík og Þróttur mætast á Keflavíkurvelli í Landsbankadeild karla.  18.00 FH og KR mætast á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði í Landsbankadeild karla. ■ ■ SJÓNVARP  08.00 US PGA The International á Sýn.  10.30 HM í frjálsum íþróttum á RÚV. Bein útsending frá öðrum keppnisdegi mótsins.  11.00 Enski boltinn á Sýn. Bein útsending frá leik Leeds og Millwall í ensku 1. deildinni.  13.10 Enski boltinn á Sýn. Bein útsending frá leik Arsenal og Chelsea um samfélagsskjöldinn.  15.30 HM í frjálsum íþróttum á RÚV. Bein útsending frá öðrum keppnisdegi mótsins.  16.30 Landsbankadeildin á Sýn. Þáttur þar sem farið er yfir umferðir 7-12 í deildinni og koma góðir gestir í heimsókn.  17.20 NBA á Sýn. Sýnt verður frá leik Chicago og Phoenix í úrslita- einvígi deildarinnar frá því árið 1993.  19.00 US PGA The International á Sýn. Þáttur um PGA-mótaröðina í golfi.  20.00 HM íslenska hestsins á RÚV.  21.15 Helgarsportið á RÚV.  21.30 Fótboltakvöld á RÚV. Sýnt verður frá öllum leikjum kvöldsins en fjórir leikir eru á dagskrá.  23.00 Landsbankamörkin á Sýn. Farið verður yfir leiki kvöldsins, öll mörkin sýnd og umdeild atvik krufin til mergjar.  23.30 Enski boltinn á Sýn. Útsending frá leik Arsenal og Chelsea. Landslið frá Suður-Ameríku hættir aftur við að koma hingað til lands: FÓTBOLTI Landsleik Íslands og Kól- umbíu, sem fara átti fram þann sautjánda ágúst á Laugardals- velli, hefur verið aflýst þar sem knattspyrnusambandi Kólumbíu fannst ferðalagið til Íslands of langt, en það tekur um tvo sólar- hringa. Líklegast þykir að landslið Suður-Afríku komi í staðinn. Þetta er í annað skiptið á stutt- um tíma sem landslið frá Suður- Ameríku hættir við að koma til Ís- lands, en Venesúela hætti einnig við á síðustu stundu. Suður-afrískir fjölmiðlar grein- du frá því í gær að Raymond Hack, forseti knattspyrnusam- bandsins þar í landi, væri búinn að tilkynna að landslið Suður-Afríku muni mæta því íslenska á Laugar- dalsvelli þann sautjánda ágúst. Þar kemur einnig fram að þjálfari liðsins, Stuart Baxter, líti á leikinn við Ísland sem góðan undirbúning fyrir leik gegn Burkina Faso fyrir undankeppni HM á næsta ári. „Ég er mjög feginn að við skulum hafa fengið þennan leik. Nú get ég séð hvernig það hentar okkur best að spila gegn Búrkína Fasó,“ segir Baxter. Eggert Magnússon, formaður Knattspyrnusambands Íslands, vonast eftir því að frá þessum málum verði gengið sem fyrst. „Forráðamenn knattspyrnu- sambands Kólumbíu gerðu sér bara ekki grein fyrir því hversu mikið mál það er að koma hingað til lands með landslið og föruneyti þess. Við hófum því strax viðræð- ur við menn í Suður-Afríku og það lítur vel út með að landsliðið það- an komið hingað og spili. Við höf- um unnið að þessu hörðum hönd- um og vonandi verður skemmti- legur leikur hér þann sautjánda ágúst.“ - mh EGGERT MAGNÚSSON Formaður Knatt- spyrnusambands Íslands hefur staðið í ströngu að undanförnu en tvö landslið frá Suður-Ameríku hafa hætt við að koma hingað með skömmu millibili. Su›ur-Afríka kemur í sta› Kolumbíu

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.