Fréttablaðið - 07.08.2005, Page 57

Fréttablaðið - 07.08.2005, Page 57
29SUNNUDAGUR 7. ágúst 2005 Næstu sýningar eru: Í dag kl. 14 örfá sæti laus 6. sýn. sun. 7/8 kl. 14 örfá sæti laus 7. sýn. fim. 11/8 kl. 19 sæti laus frá kl. 9.00 til 17.00 alla virka daga. Skákfélagið Hrókurinn stendur að skákhátíð á Grænlandi dagana 9. til 15. ágúst, í samvinnu við Flugfélag Íslands, Barnaheill á Íslandi og fleiri aðila. Skákhátíðin verður í Tasiilaq á austurströnd Grænlands en þar búa næstu ná- grannar Íslendinga. Hápunktur- inn verður Grænlandsmótið 2005 sem er alþjóðlegt atskákmót þar sem stórmeistarar, áhugamenn og börn frá Íslandi og Grænlandi tefla. Það fer fram helgina 13. og 14. ágúst, Grænlandsmótið 2005 er helg- að minningu Haraldar Blöndal hrl. sem lést á síðasta ári. Harald- ur var einn af stofnendum Hróks- ins og í fyrstu stjórn félagsins. Hann var máttarstólpi í starfi fé- lagsins og meðal yfirdómara á mörgum helstu alþjóðamótum Hróksins. Þetta er þriðja árið í röð sem Hrókurinn stendur fyrir skákhá- tíð á Grænlandi í samvinnu við FÍ og fleiri aðila. Skáklistin var að kalla óþekkt meðal Grænlendinga þangað til árið 2003 þegar fyrsta alþjóðlega mótið var haldið í Qaqortoq á Suður-Grænlandi. Í lok hátíðarinnar 2003 var stofnað Skáksamband Grænlands, og hef- ur það síðan unnið ötullega að út- breiðslu skákarinnar, einkum meðal barna og ungmenna. Árið 2004 lá leiðin til Austur-Græn- lands, þar sem haldin var mjög vel heppnuð hátíð og alþjóðlegt skákmót. Kristian Guttesen, fram- kvæmdastjóri Hróksins, segir það sérstakt ánægjuefni að sam- tökin Barnaheill á Íslandi komi nú til liðs við skáklandnámið meðal barna á Grænlandi. Fulltrúar Barnaheilla verða með í för, og verið er að kanna möguleika á að Hrókurinn og Barnaheill standi saman að útgáfu á fræðsluefni fyrir grænlensk börn. Grænlendingar hafa tekið skákinni tveim höndum. Þannig tók Jónatan Motzfeldt, forseti grænlenska þingsins, þátt í fyrsta Grænlandsmótinu, eins og hinn íslenski starfsbróðir hans, Hall- dór Blöndal. Sveitarfélögin á Suð- ur- og Austur-Grænlandi hafa stutt skáklandnámið með ráðum og dáð og formaður menntamála- nefndar grænlenska þingsins lýsti þeirri skoðun að skák eigi að verða námsgrein í grunnskólum. Með hátíðinni í Tasiilaq 2005 er landnámi skákarinnar haldið áfram á Grænlandi. Haldin verða námskeið fyrir börn, eins og und- anfarin ár, og verður Henrik Danielsen, skólastjóri Hróksins, umsjónarmaður skákskólans á Grænlandi líkt undanfarin ár. Þá verður efnt til útiskákmóts á aðal- torginu í Tasiilaq, haldin fjöltefli og efnt til margskonar viðburða. Flugfélag Íslands býður skák- áhugamönnum ferðir til Tasiilaq í tilefni hátíðarinnar. ■ Það var sól í Davos á föstudag. Ég fór upp á fjall og skoðaði gamalt heilsuhæli sem hafði ver- ið breytt í hótel fyrir hina ríku og frægu. Þar var einnig verið að taka upp raunveruleikaþátt fyrir svissneska sjónvarpið. Ungir krakkar sem áttu að lifa eins og á fimmta áratug síðustu aldar. Ég gekk óvart inn í eina tökuna og var húðskammaður á þýsku. Fyrir framan hótelið drakk ég Prosecco með sírópi. Leið eins og hefðarmanni frá byrjun 20. aldar. Mér var sagt að Kofi Ann- an og Al Gore kæmu hingað reglulega. Þeir væru þó ekki hér núna. Hefði verið gaman að hitta annan hvorn þeirra. Þýski rithöfundurinn Thomas Mann kom hingað til að heim- sækja konuna sína sem var með berkla. Þá var bærinn fullur af ungu ríku fólk sem var veikt en lifði glæsilegu líf. Hann varð fyrir svo miklum hughrifum að hann gerði sér upp lungnasjúk- dóm og skrifaði sína þekktustu skáldsögu, Töfrafjallið. Það lá þoka yfir bænum um laugardagsmorguninn. Kvöldið hafði verið meira en lítið skrítið. Rúmenski blaðamaðurinn hafði reynt við mig á veitingastaðnum, ætlaði að sjúga á mér puttann. Hann sagði mig vera of myndar- legan til að vera gagnkynhneigð- ur. Ég tók því sem hrósi. Ég vildi frekar vera á svölunum mínum með einn bjór og virða fyrir mér stjörnurnar...einn. Á leiðinni frá Davos gerði ég mér grein fyrir því að ferðin væri brátt á enda. Ein nótt eftir í Zurich. Ef til vill, í fjarlægðri framtíð, myndi ég koma aftur til Davos. Sitja með Kofi og Al míns tíma. Við m y n d u m drekka te og ræða heimsmál- in uppi í ölpunum í glampandi sól og blankalogni. Minn tími var b a r a e k k i kom- inn. REISUBÓKARBROT FREYR GÍGJA BLAÐAMAÐUR ER Á RÁÐSTEFNU UM RÉTTINDABARÁTTU UNGS SAMKYNHNEIGÐS FÓLKS Í EVRÓPU. Minn tími er ekki kominn Haraldar Blöndal minnst á Grænlandi KÁTIR KRAKKAR Smáfólkið í Tasiilaq tók skáksendisveit Hróksins fagnandi í fyrra. Víða á Grænlandi er fátt um skipulagða afþreyingu fyrir börn en það er hryggileg staðreynd að fé- lagslegt ástand á Grænlandi er með því versta sem þekkist á norðurhveli. Skáklandnáminu er meðal annars ætlað að auðga menningarlíf Grænlendinga og lyfta anda unga fólksins. HARALDUR BLÖNDAL Var einn af stofn- félögum Hróksins. Hann lést langt fyrir aldur fram í fyrra en Hrókurinn tileinkar Grænlandsmótið í ár minningu hans. ■ ■ TÓNLEIKAR  21.00 Sænski djassgítarleikarinn Andreas Öberg með tónleika í Edenborgarhúsinu á Ísafirði. ■ ■ OPNANIR  16.00 Sýningin TÍVOLÍ, sem sækir innblástur meðal annars í heim af- þreyingar og dægurmenningar, leikja, tilrauna og skemmtunar opnar í Listasafni Árnesinga. Sýningar- stjórn er í höndum Þuríðar Sigurðar- dóttur og Markúsar Þ. Andréssonar. Um er að ræða samsýningu á nýjum verkum eftir 23. listamenn. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síðar en sólarhring fyrir birtingu. 550 5600 Nýtt símanúmer hjá dreifingu:

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.