Fréttablaðið - 07.08.2005, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 07.08.2005, Blaðsíða 62
HIN HLIÐIN HIN HLIÐIN Á BORGARI GARÐARSSYNI SEM SLÆR NÚ Í GEGN Í SÖNGLEIKNUM KABARETT Pólitíkusar fyndnastir Hvernig ertu núna? Syfjaður Starf: Það fer eftir því hvar ég er. Í Finnlandi þar sem ég er búsettur er ég eftirlaunamaður. Á Íslandi er ég leikari. Stjörnumerki: Sporðdreki og ber þess öll merki. Hvaðan ertu? Fæddur og uppalinn í Reykjavík. Helsta afrek: Ég get ekki áttað mig á þeim svona um miðja nótt. Helsti veikleiki: Minn veikleiki er minn helsti kostur. Helsti kostir: Minn kostur er minn helsti veikleiki. Uppáhaldssjónvarpsþáttur: Ég á ekki einu sinni sjónvarp á Íslandi. Uppáhaldsmatur: Já, matur er mitt uppáhald. Uppáhaldsveitingastaður: Það fer eftir hráefninu. Fer sjaldan á veitingastaði en vel helst að matreiða sjálfur úr góðu hrá- efni. Sjálfur er besti drengur. Uppáhaldsborg: Barcelona. Þar er hægt að njóta þess að ganga um göturnar. Fólkið skemmtilegt og húsin ótrúleg. Það skilur enginn nema að hafa komið þangað. Viltu vinna milljón? Það tekur því ekki. Hver er fyndnastur/fyndnust? Yfirleitt eru það pólitíkusar. Trúir þú á drauga? Já. Sérstaklega þessa sem eru á milli eyrnanna á mér. Þar gerist allt mögulegt. Áttu gæludýr? Nei, en að vísu á ég konu. Besta kvikmynd í heimi? Casablanca. Myndin verður betri og betri því oftar sem maður horfir á hana. Besta bók í heimi? Það er ekki hægt að gera upp á milli bóka Laxness. Næst á dagskrá? Halda áfram að sofa. 25.10. 1938 34 7. ágúst 2005 SUNNUDAGUR Reykjavik International School The Reykjavik International School is accepting appli- cations for the 2005-06 school year. Housed within an Icelandic public school, the school offers an educa- tional program in English to children in grades K – 6. Children interact and learn with Víkurskóli students regularly, bringing a true international and cross-cultural spirit to the program. Ideal for expatriates and Icelanders on the move, the school is a new and exciting development for Reykjavik’s business, diplomatic and international community. Skólinn er einkarekinn grunnskóli innan Víkurskóla, sem býður upp á alþjóðlega menntun fyrir börn á aldrinum 5-12 ára. Tökum núna við umsóknum fyrir næsta skólaár. www.vikurskoli.is/RIS/ • Tel. 694-3341 • ris@vikurskoli.is ÞRÁINN BERTELSSON: ER ÓSÁTTUR VIÐ ENDURÚTGÁFUR GAMANMYNDA SINNA Lífsmyndir á klósettpappír FRÉTTIR AF FÓLKI ... fá listamennirnir tuttugu sem ætla að rifja upp gleðina sem fylgdi tívolíinu sem var í Hvera- gerði um árabil. HRÓSIÐ Þráinn Bertelsson leikstjóri, fram- leiðandi og handritshöfundur er mjög ósáttur við endurútgáfu hinna vinsælu gamanmynda sinna, Nýtt líf, Dalalíf og Löggulíf, á DVD-disk- um. Myndirnar komu út fyrir skemmstu og eru væntanlega mörgum aðdáenda þessara mynda mikið fagnaðarefni enda hafa þær verið ófáanlegar um árabil. Þráinn stóð þó ekki að endurút- gáfunni enda á hann ekki ráðstöf- unarréttinn yfir þessum myndum sínum lengur. „Ég á hins vegar sæmdarréttinn sem höfundur verk- anna og hann verður ekki af mér tekinn. En sæmdarréttur lista- manna er til að vernda verk þeirra,“ segir Þráinn. „Þetta er svipað því að sjá bók eftir mann prentaða og útgefna á klósettpappír,“ segir Þráinn og full- yrðir að ekki hafi verið notuð orig- inal-eintök myndana fyrir fjölföld- unina, heldur gatslitin sýningarein- tök. „Mér þykir þetta ákaflega leið- inlegt enda eiga myndirnar þetta ekki skilið og fólk á líka skilið að fá þær í betri gæðum.“ Óvíst með aðgerðir Þráinn bætir því svo við að auglýs- ingaveggspjöldin, sem eru endur- prentuð á hulstrum DVD diskana, eigi hann skuldlaus og þau hafi verið notuð í fullkomnu leyfisleysi. „Það er full ástæða til að endur- útgefa þessar myndir en það hefði verið óskandi að menn hefðu haft metnað til að gera það almennilega í stað þess að reyna að kreista út nokkrar krónur með þessum hætti,“ segir Þráinn sem ætlar að leita til Bandalags íslenskra lista- manna út af málinu, en hefur ekki ákveðið hvort hann muni grípa til frekari aðgerða. Náðist ekki í Þráinn „Það eru allmörg ár síðan við keyptum þessar myndir og þær eru algjörar perlur. Við viljum fá okkar tekjur af því sem við erum að kaupa,“ segir Konstantín Mikaels- son, útgáfustjóri DVD-mynda hjá Senu. „Við erum búnir að reyna að finna „masterana“ af myndunum. Ég reyndi að hringja tvisvar í Þrá- inn og sendi honum póst en hann svaraði því ekki og á endanum gáf- umst við upp á að hafa uppi á hon- um. Við fengum bestu afritin hjá Bergvík sem voru „masterar“ sem voru notaðir við VHS-framleiðsl- una á myndunum. Við töluðum við Kvikmyndasafn Íslands um að fá að nota filmur en þær voru verr farn- ar en „masterarnir“. Við vitum að upprunalegu filmurnar voru send- ar til Danmerkur en síðan er ekkert vitað meir,“ segir Konstantín. „Við reyndum allt sem við gát- um og bestu gæðin voru hjá Berg- vík. Auðvitað viljum við hafa þær í eins góðum gæðum og hægt er. Það kostar nokkur hundruð þúsund að laga myndirnar ramma fyrir ramma. Það er svo gríðarlegur kostnaður að það hreinlega borgar sig ekki. En það er klárt mál að við viljum láta laga myndirnar þegar kostnaðurinn er orðinn minni.“ Konstantín segir að það hafi því verið ákveðið að koma myndunum út á nýjan leik. Engar kvartanir „Okkur finnst sjarmi yfir þessu og það er ekki eins og myndirnar séu ónýtar. Það eru truflanir í þeim en við höfum ekki fengið eina einustu kvörtun og það hafa farið frá okkur um 1500 eintök.“ Ekkert aukaefni fylgir endur- útgáfunum en slíkt tíðkast oftar en ekki þegar eldri verk eru endur- útgefin. „Við fengum þá hugmynd að reyna að fá aðalleikarana til þess að ræða um gerð myndanna. Við náðum sambandi við Karl Ágúst Úlfsson og hann var klár en Eggert Þorleifsson var erlendis í námi. Ég reyndi ekki að ná í Þráinn því hann svaraði mér ekki. En varðandi allt aukaefnið þá var hugmyndin að hafa þetta eins ódýrt og við gátum til að við gætum haft myndirnar ódýrar í verslunum.“ Þess má jafn- framt geta að Sena hyggur á útgáfu á fleiri mynda Þráins. „Myndin Magnús er á leiðinni í mjög góðum gæðum og Jón Oddur og Jón Bjarni eru einnig á leiðinni en þar eru gæðin eitthvað minni.“ ■ ÞRÁINN BERTELSSON Hefði viljað sjá Lífsmyndir sínar fá betri meðferð á nýjum DVD-útgáfum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /T EI TU R Leikhópurinn sem kennir sig við Vesturport hefur átt mikilli vel- gengni að fagna enda enginn skort- ur á hæfileikafólki þar innanborðs. Það er nú hins vegar komið á dag- inn að sennilega má rekja drif- kraft hópsins að einhveru leyti til rauðs eðal ginseng sem allir leik- arar hópsins neyta á álagstímum. Starfsfólk Vesturportsins þarf á allri sinni orku að halda til að skila af sér þeim krefjandi verk- efnum sem fram undan eru. Strangar æfingar hafa verið á verkinu Woyzeck eftir George Buchner í Borgarleikhúsinu þar sem líklegt er að útkoman verði einhvers konar fimleikasirkus í anda Rómeó og Júlíu. Hópurinn frumsýnir verkið í september og heldur svo með sýninguna til London. Þar kemur Vesturportið til með að flytja verkið á stóra sviði Barbican-leikhússins þannig að nú hefur verið séð til þess að ginsengið skorti ekki. Rautt eðalginseng, er eins og flestum er kunnugt, sagt auka út- hald og bæta minni, og náttúrulyf- ið virðist einmitt vera það undra- lyf sem leikurunum í Vesturport- inu er nauðsynlegt til að muna flókinn texta mitt í öllum loftfim- leikunum. Ekki nóg með að vera að kljást við Woyzeck heldur flyt- ur hópurinn verkið Brim á Fiskideginum mikla á Dalvík um helgina og heldur svo á leiklistar- hátíð í Tampere í Finnlandi til að sýna bæði Brim og Rómeó og Júlíu. Rakel Garðarsdóttir hafði, fyr- ir hönd leikhópsins, samband við innflutningsaðila Rauðs eðalg- insengs í vikunni og talaði við Sig- urð Þórðarson hjá Eðalvörum, til að panta birgðir af náttúruafurð- inni. Þar sem hópurinn gengur fyrir ginsengi þótti það eitt af for- gangsverkefnunum áður en lagt er af stað til Finnlands að panta það mikið magn af vörunni að eng- inn verði uppiskroppa í útlandinu. Sigurður Þórðarson er að vonum ánægður með vinsældir ginsengs- ins meðal leikarana og segist hafa þegið boð Vesturportsins á frum- sýningu Woyzeck í Borgarleikhús- inu 15. september. ■ VESTURPORT: TEKUR MEÐ SÉR MIKIÐ MAGN AF GINSENG TIL FINNLANDS Sigurförin rakin til kóreskra grasróta VESTURPORT Hópurinn sýnir verkið Brim á Fiskideginum mikla á Dalvík og heldur svo til Finnlands á leiklistarhátíð þar sem treyst verður á að rautt eðalginseng haldi mannskapn- um gangandi. Hjónin Gunn-ar Hilm- arsson og Kolbrún Petrea Gunnarsdóttir eru búin að selja fataverslun- ina GK en þau hafa rekið verslunina í hátt í ára- tug. Margir hafa velt því fyrir sér hver kaupand- inn sé en mikil leynd hvílir yfir söl- unni. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að tískutvíburi Gunnars og einn besti vinur til margra ára, Arnar Gauti Sverrisson, hafi keypt verslun- ina ásamt unnustu sinni Aðalbjörgu Einarsdóttur. Arnar Gauti starfaði í versluninni GK fyrstu árin sem versl- unin var starfrækt og þekkir því inn- viði hennar afar vel. Einhvern tím- ann voru sögusagnir á sveimi um að Arnar Gauti væri að fara að opna Burberry-verslun í Kaupmannahöfn en aldrei varð neitt af því. Síðustu misseri hefur Arnar Gauti starfað við að selja húsgögn í Fákafeni. Tísku- spekúlantar segja að Gunnar sé á leið til Danmerkur til að starfa sem hönnuður hjá danska fata- merkinu DAY. Á sama tíma hafa spek- úlantar velt því fyrir sér hvort nafn verslunar- innar muni breytast úr GK í AA.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.