Fréttablaðið - 07.08.2005, Síða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
N‡lendan okkar
Kaup Íslendinga á Illum í Kaup-mannahöfn vekja upp sterkar
kenndir hér heima. Tímamót hafa orð-
ið í samskiptum okkar við þessa fyrr-
verandi nýlenduherra. Sumir myndu
jafnvel tala um uppgjör.
VIÐBRÖGÐ Dana eru hins vegar
ekki jafnofsafengin og við mátti bú-
ast. Þegar íslenskir blaðamenn taka
púlsinn á stemmningunni á Strikinu
bera menn sig bara nokkuð vel.
Danska þjóðin segist ekki missa næt-
ursvefn. Þykist jafnvel ekki vita af
því að við höfum eignast Illum. Eða
Magasin Du Nord.
VIÐ vitum betur. Danirnir eru auðvit-
að gáttaðir. En af hverju gleðjumst við
svona ofsalega? Í sögulegu samhengi
snýst málið kannski ekki beint um að
endurgjalda óhreint mjölið sem var
prangað upp á okkur á okurverði
hérna í den tid eða að hefna fyrir 14-2
niðurlægingu fótboltalandsliðsins.
Mun frekar snýst það um að geta stað-
ið keikur í Köben.
Í SKÓLANUM lærum við dönsku,
án þess að læra hana. Á sumrin fara
ungir Íslendingar til Kaupmannahafn-
ar í þeim tilgangi að vinna og finna sig
og aðra Íslendinga. Þegar við viljum
prófa eitthvað nýtt förum við til Dan-
merkur að stúdera og kynnumst þar
öðrum íslenskum námsmönnum. Þetta
er hluti af þroskaferli hvers manns.
ÞAR koma önnur veigamikil atriði líka
til, eins og að ganga um Strikið lítil-
lega kenndur samferða Svíum í sama
ástandi. Eða að útskýra fyrir Dönun-
um, á ensku, yfir dönskum bjór að sú
tíð sé liðin að þeir ráði yfir okkur.
Verða svo forviða af reiði þegar við
komumst að því að Daninn er hrein-
lega ekkert að spá í þessa hluti. Þekkir
ekki söguna eða heldur að við séum í
sömu sporum og Færeyingar.
DANMÖRK hefur verið okkar
heimsveldi. Menn hafa ekki gert það
gott fyrr en þeir hafa öðlast viður-
kenningu í heimsveldinu. Íslenskar
hljómsveitir eru búnar að meika það
þegar þær hafa spilað í Tívolí fyrir
stórum hópi íslenskra aðdáenda. Við
höfum fylgst samviskusamlega með
því sem gerist í heimsveldinu, birtum
vikulega pistla frá Danmörku í sjón-
varpinu, lesum dönsk slúðurblöð án
þess að skilja þau, og borðum danska
tertu, yfir beinni útsendingu, þegar
krónprinsinn gengur í það heilaga.
NÚ ræðum við næstu skref í stöð-
unni. Á ekki líka að kaupa Tívolíið?,
spyrja menn. Liggur það ekki beinast
við? Og vona svo að Daninn taki eftir
gerbreyttri heimsmynd. Sjái að litli
bróðir er orðinn stór.
BAKÞANKAR
ÞORBJARGAR S.
GUNNLAUGSDÓTTUR
Vi› hjá Iceland Express gætum skrifa› heila bók um okkar lágu ver› og fer›amöguleika en vi› viljum frekar
setja uppl‡singar okkar á Neti› til a› halda ver›um í lágmarki. Ef flig langar út í heim skaltu kíkja á
icelandexpress.is og flú sér› hva› vi› eigum vi›.
Fer›afljónusta Iceland Express, Grímsbær, Efstalandi 26, Sími 5 500 600
Regnskógavinir me› peningavit klippi› hér
METSÖLUBÓK?
www.icelandexpress.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Ver› frá 7.995 kr.
a›ra lei› me› sköttum.