Fréttablaðið - 23.08.2005, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 23.08.2005, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000 50% 74% 37% Lestur á þriðjudögum* Fr é tt a b la ð ið Fr é tt a b la ð ið M b l. M b l. B la ð ið B la ð ið Lestur meðal 12–80 ára á þriðjudögum. *Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í 2005.júlí SUÐVESTURHORNIÐ NORÐAUSTLÆG átt á Vestfjörðum, annars hæg breytileg átt. Víða einhver væta um landið en bjart suðaustanlands. VEÐUR 4 ÞRIÐJUDAGUR 23. ágúst 2005 - 226. tölublað – 5. árgangur Var með fordóma gagnvart popptónlist Helgi Hrafn Jónsson, sem búsettur er í Austurríki, gefur út sína fyrstu sóló- plötu, sem ber nafnið Gló- andi. Hann hefur upplifað mikla togstreitu milli poppsins og klass- ískrar tónlistar, en hann er básúnuleik- ari að mennt. TÓNLIST 28 Í skólanum er skemmtilegt að vera Við þurfum að þjálfa börn okkar í því að takast á við ólíkar aðstæður, í byggð og í óbyggðum, á mal- biki og öræfum. Við þurfum að kenna þeim að rata um landið, þekkja það og skilja eðli náttúrunnar umhverfis okkur. SKOÐUN 20 Fyrstu stig Fylkis í rúman mánuð Kjartan Ágúst Breiðdal varamaður var hetja Fylkis er hann kom inn á og skoraði eitt mark og lagði upp annað í 2–1 sigri á Fram á Laugardalsvellinum. Sigurinn var kærkominn en stigin þrjú eru þau fyrstu sem Fylkir fær síðan 11. júlí. ÍÞRÓTTIR 24 Hlaupa úti á a›fangadag MARTHA OG BRYNDÍS ERNSTSDÆTUR Í MIÐJU BLAÐSINS ● heilsa ● brúðkaup ▲ VEÐRIÐ Í DAG JÓN ÓLAFSSON OG HILDUR VALA Músíkalskt par ÁST OG HAMINGJA Í KRINGUM IDOL-KEPPNINA ▲ FÓLK 34 KJARAMÁL Ekki hafa enn verið gerðir starfslokasamningar við gæslukonur borgarinnar, en upp- sagnir þeirra taka gildi um næstu mánaðamót. Þær hafa nú farið fram á sambærileg réttindi og þau sem starfsmönnum Vélamið- stöðvarinnar voru tryggð við sölu hennar frá borginni á dögunum, en missi þeir störf sín vegna hag- ræðingar eiga þeir rétt á launum í þrjá mánuði umfram það sem kjarasamningar kveða á um. Staða gæslukvennanna er þó ekki sambærileg, að sögn Birgis Björns Sigurjónssonar, skrif- stofustjóra á starfsmannaskrif- stofu Reykjavíkurborgar. „Þarna er fyrst og fremst verið að tryggja starfsmönnum fyrirheit um ákveðin kjör ef ekki finnst starf við hæfi.“ Birgir segir hendur borgar- innar bundnar af ráðningar- samningum, kjarasamningum og samþykktum borgarinnar, en menn hafi skapað sér ákveðið svigrúm til þess að gera vel við gæslukonurnar með því að draga það á langinn að senda uppsagnarbréfið þótt ákvörðun um uppsögn hafi lengi legið fyrir. Því væri hægt að bjóða þeim laun samkvæmt uppsagn- arfresti í nokkra mánuði eftir starfslok. Birgir segir þær enn fremur hafa kost á fjöldamörgum störf- um innan borgarinnar og nefnir meðal annars leikskóla í því sam- bandi. - grs Ekki búið að semja við starfskonur gæsluvalla: Vilja flrjá mánu›i umfram uppsagnarfrest Í MALARÁSI Gæslukonur á gæsluvellinum í Malarási. Bifreiðastæði á Akureyri: Stö›umælar lag›ir af BIFREIÐASTÆÐI Notkun stöðumæla verður hætt á Akureyri næstkom- andi föstudag og verður frítt í öll bílastæði nema fastleigustæði. Bílastæðaklukkur leysa síðan stöðumælana af hólmi og verður bíleigendum skylt að stilla klukk- una samviskusamlega þegar bif- reið er lagt í stæði í miðbæ Akur- eyrar. Bílastæðaklukkunum verð- ur dreift í öll hús á Akureyri nú í vikunni. Mismunandi er eftir svæðum hversu lengi bílar mega standa óhreyfðir í stæði, frá 15 mínútum upp í tvær klukkustundir. Stöðu- verðir munu fylgjast grannt með hverjum klukkan glymur og sekta þá sem brjóta reglur. - kk FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H EI Ð A Ný stjórnarskrá: Drög lög› fyrir íraska flingi› ÍRAK, AP Drög að nýrri stjórnarskrá Íraks voru kynnt íraska þinginu í gær, þrátt fyrir mótmæli minni- hluta súnnía. „Við höfnum stjórnar- skrárdrögunum sem lögð voru fram því samþykki okkar vantaði,“ sagði Nasser al-Janabi, fulltrúi súnnía. Atkvæðagreiðslu um nýju stjórnarskrána var þó frestað í gær en reyna á til þrautar að ná fram stuðningi súnnía við hana. Frestur til að leggja fram drög að nýrri stjórnarskrá rann út á miðnætti. Íraska þingið hefur nú þrjá daga til að ræða og ná samkomulagi um stjórnarskrána, segir Hajim al- Hassani, forseti íraska þingsins. ■ Sex hundru› börn á bi›lista Starfsfólk vantar í um níutíu stö›ugildi á frístundaheimilum Reykjavíkurborgar og um sex hundru› börn eru á bi›lista eftir plássi. Velmegun í fljó›félaginu og lág laun lei›a til fless a› erfitt er a› fá fólk í störfin. Mannekla er einnig vandamál á leikskólum í Kópavogi. fiar vantar um 25 starfsmenn. SKÓLAR Sex hundruð börn eru á biðlista eftir plássi á frístunda- heimilum grunnskóla Reykjavík- urborgar vegna manneklu. Um níutíu starfsmenn vantar á frí- stundaheimilunum, en starfrækt eru 32 frístundaheimili við jafn- marga grunnskóla í borginni. „Velmegun í þjóðfélaginu og lág laun leiða til þess að erfitt reynist að fá fólk í þessi störf,“ segir Sigrún Sveinbjörnsdóttir, verkefnisstjóri hjá Íþrótta- og tómstundaráði. Sigrún kveðst þó þokkalega bjartsýn á að takist að manna störfin en erfitt sé að segja til um hversu langan tíma það taki. „Von- andi tekst það þó að stórum hluta fyrstu tvær vikur skólastarfsins,“ segir hún. Reykjavíkurborg auglýsti um helgina eftir fólki með reynslu og höfðaði þar til eldra fólks. Sigrún kveðst hafa orðið vör við nokkra svörun við auglýsingunni og vonar að í kjölfarið takist að ráða fleira starfsfólk til frístunda- heimilanna. „Það gekk betur að ráða fólk síðastliðið haust, en ég held að þetta muni að lokum skila sér,“ segir Sigríður Rut Hilmarsdóttir, umsjónarmaður frístundaheimilis Melaskóla. Þar eru tæplega fimm- tíu börn á biðlista eftir plássi og umsóknir enn að berast. Tólf börn eru á hvern starfsmann og býst Sigríður við að ráða þurfi fimm til sex starfsmenn til viðbótar þeim sem þegar starfa við heimilið. Í Kópavogi hefur reynst erfitt að manna leikskóla, líkt og í Reykjavík, en þar eru um 25 stöðugildi laus, að sögn Sesselju Hauksdóttur leikskólafulltrúa. Sextán leikskólar starfa í Kópa- vogi og þar dvelja daglega yfir 1.500 börn. „Ef ekki tekst að ráða í þessi stöðugildi er augljóst að við þurfum að draga úr eða fresta inntöku barna sem áttu að fá inni á leikskólunum nú í haust,“ segir Sesselja. „Við sjáum ekki fram á að þurfa að grípa til ann- arra ráðstafana í bili og von- umst til þess að úr leysist á næstu dögum“ segir Sesselja Hauksdóttir. - ht Laun starfsmanna leikskóla Starfsmaður án reynslu 112.927 Leiðbeinandi 116.343 Leikskólakennari 169.473 Faglærður deildarstjóri 193.774 Laun starfsmanna frístundaheimila Frístundaleiðbeinandi 116.343 Stuðningsfulltrúi 139.100 Háskólamenntaður starfsmaður 156.695 Umsjónarmaður 181.850 Alls staðar er um lægstu byrjunarlaun að ræða. Byrjunarlaun eru þó mjög mis- munandi þar sem þættir eins og aldur, menntun og reynsla hafa áhrif á launin. OLÍUVINNSLUSTÖÐ Í ÍRAK Eitt af því sem tekist er á um eru olíuhagsmunir. BARIST VIÐ SKÓGARELDA Í PORTÚGAL Slökkviliðsmenn hlaupa að húsi í þorpinu Almalagues nærri borginni Coimbra. Miklir skógareldar hafa geisað í landinu undanfarnar vikur. Nú er svo komið að borgin Coimbra, sem er um 200 kílómetra norður af Lissabon, er í hættu. Sjá síðu 10

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.