Fréttablaðið - 23.08.2005, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 23.08.2005, Blaðsíða 40
28 23. ágúst 2005 ÞRIÐJUDAGUR Goddi.is, Auðbrekku 19, Kóp. s: 544-5550 BÁTAKERRA LCI-887 548x170cm. galv. með spili. Burðarg. 545 kg. goddi.is, Auðbrekka 19, 200 Kópavogi, sími 544 5550 KATEPAL þakflísar skapa kórónu hverrar byggingar. Yfir 60 ára reynsla um allan heim. Viðhaldsfrítt. Fjórir sanseraðir litir. Mjög auðveld lagning á margbrotin þök. Ekkert tjörumak. Gerið verðsamanburð. Fallegar þakflísar KERRA LCI-880 392x134cm, galv. Burðarg. 270 kg. Goddi.is, Auðbrekku 19, Kóp. s: 544-5550 Goddi.is, Auðbrekku 19, Kóp. s: 544-5550 Áklæðaúrvalið er hjá okkur. Leður og leðurlíki. Auk þess pöntunarþjónusta eftir ótal sýnishornum. Goddi.is, Auðbrekku 19, Kóp. s: 544-5550 Garðhús Eskola 2 - 11,36fm Fyrir Grillið - fyrir Heita pottinn Tilboðsverð - Fáein hús eftir Goddi.is, Auðbrekku 19, Kóp. s: 544-5550 Salla Sumarhús - Gestahús 13,1 fm með yfirbyggðri verönd 388x205 cm LÆKKAÐ VERÐ! LÆKKAÐ VERÐ! Viðeyjarganga og kúmentínsla í kvöld kl. 19:00 Rifjuð upp ótrúleg útgerðar- og mannlífssaga Sumardvalagestir í Viðey 1939. Úr safni Örlygs Hálfdanarsonar. Örlygur Hálfdanarson Viðeyingur leiðir gesti um eyjuna og rifjar upp ótrúlega útgerðar og mannlífssögu frá fyrrihluta 20. aldar, sýnir ógnvænlegt landbrot og lýsir hugmyndum sínum um framtíð eyjarinnar. Samhliða leiðsögn verður kúmentínsla. Kúmen kaffiveitingar í gamla vatnstankinum Tvöföld afmælisútgáfa Í nóvember verða þrjátíu ár liðin síðan söngkonan Patti Smith gaf út sína fyrstu plötu, Horses, sem er talin hafa haft mikil áhrif á rokksöguna. Af því tilefni kemur á markað tvöföld afmælis- útgáfa af plötunni. Á fyrri plötunni verður Horses í heild sinni endurhljóð- blönduð ásamt aukalaginu My Generation, sem The Who gerði frægt á sínum tíma. Síðari platan hefur að geyma tónleikaútgáfu af Horses sem var tekin upp í London fyrr í sumar. Þar spilaði Flea úr hljómsveitinni Red Hot Chili Peppers á bassa. Patti Smith heldur tónleika á Nasa 6. september og bíða margir þeirra með mikilli eftir- væntingu enda er Smith goðsögn í lifanda lífi. ■ Klassíski popparinn Helgi Hrafn Jónsson, sem er búsettur í Austur- ríki, gefur á næstunni út sína fyrstu sólóplötu sem ber nafnið Glóandi. Helgi, sem er staddur á Íslandi um þessar mundir í langþráðu fríi, byrjaði ungur að árum í tón- listarnámi. Frá ellefu til sautján ára aldurs spilaði hann á básúnu í Bossanovabandinu, sem naut tölu- verðra vinsælda hér á landi. Sveitin ferðaðist meðal annars um Evrópu og Bandaríkin. Eftir að Helgi útskrifaðist úr einleikara- deild Tónlistarskóla Reykjavíkur fór hann 19 ára gamall í fram- haldsnám í básúnuleik til Austur- ríkis. Hann lauk því námi fyrir ári síðan, en Helgi er nú 25 ára. „Það eru tvö og hálft ár síðan ég byrjaði að semja og syngja. Þetta er sú tónlist sem kemur frá mér án þess að ég sé að pæla í því hvernig melódíur eða lög eiga að hljóma,“ segir Helgi, sem var á leiðinni frá Þórsmörk þegar Fréttablaðið hafði samband við hann. „Ef ég beintengi við mallakútinn þá kemur þetta fram. Það hefur samt verið togstreita hjá mér á milli popps og klassískr- ar tónlistar. Fólki finnst stundum eins og maður sé að taka niður fyrir sig með því að vera í popp- inu en þetta er yfirleitt fólk sem hefur ekki heyrt tónlistina mína,“ segir hann og hlær. „Ég stóð mig líka að því fyrir nokkrum árum að vera með ákveðna fordóma gagn- vart popptónlist þó að ég hafi hlustað á popp. Þessi fordómar enn svolítið ríkjandi í hinum klassíska heimi.“ Helgi segist ekki ætla að ein- blína á eina tónlistartegund um- fram aðra í framtíðinni. „Ég ætla bara að halda áfram í tónlist, sama hvaða nafni maður nefnir hana. Ég ætla að reyna að lifa af því að vera tónlistarmaður en þetta er rosalega mikil harka og bras. Ef maður ætlar að geta lifað af tónlistinni verður maður að vera fjölbreyttur og opinn.“ Helgi spilarar á básúnu í tveimur lögum á plötunni auk þess sem hann syngur nokkur lög á íslensku. Stundum koma tímabil sem hann getur ekkert spilað á básúnuna vegna axlarmeiðsla. Urðu þau meðal annars til þess að hann ákvað að snúa sér að popp- inu á sínum tíma. Hann nefnir Led Zeppelin sem sterkan áhrifavald í sinni tónlistarsköpun auk þess sem Bítlarnir, Jimi Hendrix og Jeff Buckley skipi stóran sess. Platan Glóandi kemur út 5. september. Helgi vonast til þess að koma aftur hingað til lands í nóvember og spila með hljóm- sveit sinni Beefolk, sem hefur notið mikilla vinsælda úti í Austurríki. Hann ætlar ekki að flytja aftur heim til Íslands al- veg strax og undirbýr nú að flytja búferlum frá Austurríki ásamt þarlendri kærustu sinni. Ferðinni er hugsanlega heitið til Berlínar. freyr@frettabladid.is PSP Leikjatölvan handhæga PSP kemur í verslanir 1. september. Meðal annars verð- ur hægt að horfa á DVD-myndir í tækinu. Hægt a› prófa PSP Leikjatölvan PSP (PlayStation Portable) kemur í verslanir Skíf- unnar og BT hinn 1. september. Fyr- ir þá óþreyjufulllu sem vilja prófa tölvuna áður en hún fer í sölu er búið að setja upp sérstaka PSP- standa í verslununum. Á meðal þess sem PSP mun bjóða upp á eru tölvuleikir og DVD- myndir í góðri upplausn. Einnig er MP3-spilari í tækinu þar sem hægt er að hlaða inn fjölda laga. ■ HILARY DUFF Þegar hún mætti í útsend- ingu á sjónvarpsstöðinni MTV á fimmtudag. Duff gerir rót- tækar breytingar Var með fordóma gagnvart popptónlist HELGI HRAFN Helgi Hrafn Jónsson er að gefa út sína fyrstu sólóplötu. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL LI Leik- og söngkonan Hilary Duff var nánast óþekkjanleg þegar hún mætti í tónlistarþáttinn TRL á MTV í fimmtudagskvöld. Stúlkan hæfi- leikaríka var með kolsvart axlasítt hár en hún hefur alla tíð verið með ljósa síða lokka. Líklegast þykir að hún hafi skellt á sig hárkollu til þess að breyta til en einhver heyrði hana segja að sér þætti púkalegt að vera með ljóst hár við svart rokkdressið sem hún var í. Skoðanir manna á þessum rót- tæku breytingum voru skiptar en þær féllu mönnum þó betur í geð en þær breytingar sem hún gerði á tanngarði sínum nýlega. „Það er augljóst að hún er ekki alveg búin að finna sig og er bara að prófa mis- munandi útlit,“ sagði tískuspekúlant á bandarísku tímariti. „Mér fannst hún nú bara sætust með sitt eðlilega hár og sínar eðlilegu tennur.“ ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.