Fréttablaðið - 23.08.2005, Blaðsíða 43
Rapparinn Snoop Dogg hefur verið
gagnrýndur af foreldrum krakka
sem stunda amerískan fótbolta eftir
að hann hætti að þjálfa liðið
The Rowland Raiders og
stofnaði sína eigin fót-
boltadeild.
Snoop gerðist þjálfari
liðsins fyrir
t v e i m u r
árum og
náði góð-
um ár-
angri
m e ð
elsta
s o n
s i n n
sem leik-
stjórnanda.
N ý l e g a
ákvað hann
að stofna nýja deild, Snoop Youth
Football League, við litla hrifningu
foreldranna. Þeir hafa sakað Snoop
um að lokka til sín leikmenn úr
gamla liðinu yfir í nýju deildina
með gjöfum og kaupum á flottri
rútu. „Það sem Snoop gerði var
ömurlegt. Hann byrjaði að þjálfa
hérna bara til að taka í burtu það
sem tók okkur fjölmörg ár að búa
til,“ sagði Sandy Gonzales, móðir
fótboltadrengs.
Snoop, sem hélt tónleika í Egils-
höll í sumar, er ósammála og segist
aðeins vera að hjálpa krökkunum að
gera eitthvað uppbyggjandi við líf
sitt. „Það er auðvelt fyrir börn að
ganga til liðs við klíkur og nota
eiturlyf. Við eigum að gera þeim
auðveldara fyrir svo þau geti stund-
að fótboltann og skólann af meira
kappi.“ ■
Idol-dómarinn Paula
Abdul hefur verið
hreinsuð af ásökunum
um að hafa átt í kynferð-
islegu sambandi við
keppandann Corey Clark
og hjálpað honum í
keppninni. Clark hélt því
fram í maí að hann hefði
átt í sambandi við Abdul
og sagði í samtali við
ABC-sjónvarpsstöðina að
Abdul hefði gefið honum
peninga fyrir fötum og þjálfað hann
í söng sem endaði hafi með ástar-
sambandi. Í kjölfarið hratt Fox-
sjónvarpsstöðin af stað mikilli rann-
sókn sem unnin var af
lögfræðingum. Rann-
sóknin stóð yfir í þrjá og
hálfan mánuð og kostaði
600 vinnustundir. Niður-
staðan sú að Abdul hjálp-
aði Corey ekkert í keppn-
inni og engar vísbending-
ar fundust um að kyn-
ferðislegt samband hefði
verið á milli þeirra. Abdul
sagði í yfirlýsingu á föstu-
dag að hún væri „þakklát
fyrir að þessi raun væri búin“ en
hún hafði alltaf haldið fram sakleysi
sínu. Hins vegar játaði hún að hafa
hringt nokkrum sinnum í Corey. ■
SNOOP DOGG Rapparinn Snoop Dogg hefur stofnað nýja fótboltadeild.
Foreldrar gagnr‡na Snoop
Íslensk kvikmyndahátíð í Dan-
mörku verður sett 1. september. Til-
efnið er 25 ára afmæli íslenska
kvikmyndavorsins en það hófst með
frumsýningu kvikmyndarinnar
Land og synir eftir Ágúst Guð-
mundsson.
Á hátíðinni verða sýndar sautján
íslenskar kvikmyndir sem gerðar
hafa verið á þessum tuttugu og
fimm árum auk þess sem Dagur
Kári, Hilmar Oddsson og Friðrik
Þór Friðriksson sækja hana heim og
kynna myndir sínar. Þá verður mál-
þing um íslenska kvikmyndagerð í
Cinemateket þriðja september þar
sem leikstjórarnir þrír taka þátt.
Hátíðin er í samstarfi við íslenska
sendiráðið og Cinemataket.
Birgir Þór Möller hefur haft
veg og vanda af hátíðinni. Hann
hefur verið búsettur í Kaup-
mannahöfn síðan 1983. Birgir
skrifaði ritgerð um íslenska kvik-
myndasögu og segist alltaf hafa
haft mikinn áhuga á íslenskri
kvikmyndagerð. „Mig langaði til
að sýna þetta hérna í Danmörku.
Fólk hefur verið að spyrja um ís-
lenskar kvikmyndir og það er
gaman að geta dregið söguna sam-
an í eina hátíð,“ segir Birgir og
bætir því við að mikill áhugi sé
fyrir Íslandi. „Bæði vegna þess að
það er verið kaupa allar verslun-
arkeðjurnar en einnig vegna
dönsku kvikmyndarinnar hans
Dags Kára,“ segir hann. ■
Íslensk kvikmynda-
hátíð í Danmörku
NICELAND Friðrik Þór Friðriksson kynnir mynd sína Niceland og svarar spurningum
áhorfenda á íslenskri kvikmyndahátíð sem haldin verður í Kaupmannahöfn 1. september.
PAULA ABDUL
Stjarna Paulu reis hátt á
níunda áratugnum.
Ekkert svindl í American Idol
Barokkveisla í
Hallgrímskirkju
S ó p r a n -
söngkonan
Noémi Kiss
og tónlist-
arhópurinn
Ensemble
L’Aia flytja
tónlist frá
b a r o k k -
tímabilinu
á tónleikum
í Hallgrímskirkju í kvöld. Á efnis-
skrá verða verk eftir Johann
Joachim Quantz, Georg Philipp Tele-
mann, George Frideric Händel og
André Campra. Heiti tónleikanna er
„Yfir landamæri“ enda koma flytj-
endur að víðast hvar úr heiminum
og verkin sem þau flytja eiga það
sameiginlegt að vera eftir höfunda
sem leituðu fanga víða um lönd.
„Handel er líklega besta dæmið
um tónlistarmann sem hefur sagt
skilið við heimahagana og numið
ný lönd. Hann var Þjóðverji sem
starfaði í Lundúnum við að skapa
tónlist í ítölskum stíl,“ segir Ian
Wilson, blokkflautuleikari Ens-
emble L’Aia hópsins. Hann segir
efnisskrá kvöldsins endurspegla
þá þrá 18. aldar tónskáldanna til að
leitra fanga sem víðast utan sinna
heimaslóða til að dýpka skilninginn
á listinni. Óhætt er að fullyrða að
efnið, sem flutt verður af úrvals-
tónlistarfólki á tónleikunum í
kvöld, er fáheyrt hér á landi og því
ættu klassískir tónlistarunnendur
ekki að láta barokkveisluna fram-
hjá sér fara. Tónleikarnir eru hluti
af Kirkjulistahátíð og hefjast
klukkan 18.00. ■
NOÉMI KISS