Fréttablaðið - 23.08.2005, Síða 12
23. ágúst 2005 ÞRIÐJUDAGUR
ÍSAFJARÐAR
4.799kr.
Milli Reykjavíkur og
AKUREYRAR
4.999kr.
Verð miðast við
flug aðra leiðina.
Bara á
www.flugfelag.is
Takmarkað
sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
flugfelag.is
EGILSSTAÐA
5.699
Milli Reykjavíkur og
kr.
HORNAFJARÐAR
5.899
Milli Reykjavíkur og
kr.
GRÍMSEYJAR
3.499kr.
Milli Akureyrar og
GJÖGURS
4.999kr.
Milli Reykjavíkur og
SAUÐÁRKRÓKS
4.999kr.
Milli Reykjavíkur og
BÍLDUDALS
4.999
Milli Reykjavíkur og
VOPNAFJARÐAR/
ÞÓRSHAFNAR
4.499
Milli Akureyrar og
kr.
kr.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
F
LU
2
93
14
08
/2
00
5
flugfelag.is
4.399kr.
Milli Reykjavíkur og
VESTMANNAEYJA
24. - 30. ágúst
BANDARÍKIN Bandaríska alríkis-
lögreglan, FBI, hefur komið upp
um par í Ohio-ríki sem ætlaði að
selja fimmtán ára stúlku í skipt-
um fyrir pakka af krakki. Nota
átti stúlkuna í vændi.
Parið keyrði um hundrað
kílómetra leið frá heimili sínu
til að afhenda stúlkuna eitur-
lyfjasala í Pittsburgh í Pennsyl-
vaníu. Parið, sem er á fimm-
tugsaldri, var handtekið í bíl
sínum í Pittsburgh snemma
morguns á þriðjudag í síðustu
viku. Fórnarlambið fannst
einnig í bílnum, og auk hennar
þrettán ára stúlka. Parið hafði
þegar misnotað báðar stúlkurn-
ar kynferðislega.
Stúlkurnar höfðu báðar hlaup-
ist að heiman, önnur hafði strokið
úr unglingafangelsi í Ohio.
Skötuhjúin eiga yfir höfði sér
allt að þrjátíu ára fangavist verði
þau fundin sek um að ætla að fá
einstakling undir lögaldri til að
taka þátt í ólöglegu kynferðislegu
athæfi.
Stúlkunum hefur verið komið
fyrir á fósturheimilum en parið
mætti fyrir rétt í gær. - sda
Par í Ohio í Bandaríkjunum á yfir höfði sér þrjátíu ára dóm verði það sakfellt:
Hug›ust selja stúlku fyrir eiturlyf
UNGLINGSSTÚLKUR Í VÆNDI Í BANDARÍKJUNUM Par í Ohio í Bandaríkjunum er nú fyrir
rétti fyrir áform um að selja fimmtán ára stúlku í vændi í skiptum fyrir skammt af krakki.
NAUTAKJÖT Hægt er að flytja hingað
til lands gott ósýkt kjöt á góðu
verði frá Argentínu, fullyrðir Sig-
urður Jónsson, formaður Samtaka
verslunar og þjónustu.
Samtökin hafa fengið svar frá
Alþjóðadýraheilbrigðisstofnuninni
við fyrirspurn sinni um heilbrigð-
isástand nautgripa í Argentínu. Dr.
Karim Ben Jebara, yfirmaður upp-
lýsingadeildar stofnunarinnar seg-
ir að embætti yfirdýralæknis í
Argentínu hafi ekki tilkynnt Al-
þjóðadýraheilbrigðisstofnuninni
um neina óeðlilega sjúkdóma í
nautgripum í Argentínu á árinu
2005. Þess vegna ætti land sem vill
flytja inn nautakjöt frá Argentínu
að fara eftir þeim reglum sem sett-
ar eru í því landi eða samkvæmt
reglum alþjóðaviðskiptastofnunar-
innar, WTO. Innflutningslandinu
er alltaf frjálst að leyfa innflutn-
ing á kjöti eða kjötafurðum undir
ákveðnum skilyrðum sem eru ann-
að hvort strangari eða rýmri en
ákvæði OIE segja til um, en það
verður að gerast samkvæmt vís-
indalegu áhættumati.
„Þetta segir okkur að ekkert er
að því að flytja inn nautakjöt frá
Argentínu,“ segir Sigurður og bætir
við að þar af leiðandi séu fullyrð-
ingar Guðna Ágústssonar landbún-
aðarráðherra ekki réttar að því
leyti.
„Að því er þarna segir getur
hann sett strangari skilyrði en
hann þarf samkvæmt alþjóða-
samningum,“ segir Sigurður. „En
þá vaknar spurningin: „Af hverju
setur hann þessi skilyrði, þegar
kjötið er í lagi? Er það vegna þess
að hann vill halda ódýrasta nauta-
kjötinu í 1.400 krónum kílóinu,
eins og það er nú?“
Sigurður segir að sannanlega sé
skortur á nautakjöti í landinu. Þess
vegna hafi verðið farið hækkandi
og er nú orðið mjög hátt, hærra en
Samtök verslunar og þjónustu
telja boðlegt fyrir neytendur.
„Þegar kostur er á ódýrari vöru
sem er góð,“ bætir hann við, „þá
vill verslunin fá að flytja hana inn
með viðbótarkvóta.“
jss@frettabladid.is
Hægt a› fá gott ós‡kt
nautakjöt frá Argentínu
Samtök verslunar og fljónustu hafa fengi› svar vi› fyrirspurn um heilbrig›i naut-
gripa í Argentínu. Samkvæmt Alfljó›ad‡raheilbrig›isstofnuninni er nautakjöt
fla›an í lagi. Forma›ur samtakanna gagnr‡nir landbúna›arrá›herra.
NAUTGRIPIR Í ARGENTÍNU Þessa myndarlegu hjörð ræktunargripa er að finna á búgarði ríflega 100 kílómetra frá Buenos Aires. Þar eru
2.700 nautgripir haldnir undir beru lofti. Stofninn, sem heitir AnGus, er útbreiddur í Argentínu og þekktur fyrir að gefa af sér einstaklega
ljúffengt kjöt og vera afurðamikill.
Landbúnaðarráðherra um argentíska nautakjötið:
Höfum varú›ina a› lei›arljósi
NAUTAKJÖT Guðni Ágústsson land-
búnaðarráðherra segir að í svari
Alþjóðadýraheilbrigðisstofnunar-
innar til Samtaka verslunar og
þjónustu um heilbrigði nautakjöts
í Argentínu sé ekkert nýtt.
„Við höfum varúðina að leiðar-
ljósi og margar þjóðir sem fara
eftir WTO-samningum og SPS-
reglunum setja alls konar fyrir-
vara, vilja rannsaka lönd betur og
skoða nánar áður en þær opna
löndin,“ segir ráðherra. „Þetta er
réttur okkar, en snýr hvorki að
verði né skorti. Fyrirtæki eru að
flytja víða annars staðar að þar
sem bæði gott og ódýrt nautakjöt
er framleitt.“
Guðni sagðist ítreka að Argent-
ína væri tvískipt land. Fyrir lægi
að gin- og klaufaveiki hefði verið í
öðrum hlutanum fyrir tveimur
árum. Einnig lægi fyrir að enn
væri verið að sprauta dýrin í þeim
hluta við veikinni.
„Ég er með mestu sérfræðinga
WTO-samninganna mér við hlið
þegar ég tek þessa ákvörðun,“
sagði Guðni. Hann bætti við að
eitt stærsta mál neytandans í dag
væri það að ekki væri verið að
nota lyf í dýrin. - jss
GUÐNI ÁGÚSTSSON Segir stærsta mál neyt-
andans í dag að ekki sé verið að nota lyf í
dýrin.