Fréttablaðið - 23.08.2005, Qupperneq 19
Smáauglýsingar
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
Góðan dag!
Í dag er þriðjudagur 23. ágúst,
235. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 5.43 13.30 21.15
AKUREYRI 5.19 13.15 21.08
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Snorri Már Skúlason, verkefnisstjóri
sjónvarpsstöðvarinnar Enska boltans,
hefur ekki aðeins áhuga á fótbolta
heldur notar íþróttina til þess að
halda sér í góðu formi.
„Ég er yfirleitt frekar duglegur að hreyfa
mig en er búinn að vera afskaplega latur
við það síðan í vor. Ég hef reyndar verið að
spila fótbolta með Old Boys í Fram og reynt
að hlaupa eitthvað í kringum það. Þetta
horfir nú allt til betri vegar því ég er í
tveimur fótboltahópum í haust og vetur og
mun því spila fótbolta tvisvar sinnum í
viku. Þetta eru ákaflega skemmtilegir hóp-
ar hvor um sig, þannig að ég fæ góðan
félagsskap og spila skemmtilegan fótbolta.
Ég fæ mína brennslu úr fótboltanum því
mér leiðast langhlaup, hlaupabretti, þrek-
hjól og slík tæki,“ segir Snorri.
„Undanfarin sjö eða átta ár hef ég verið
duglegur í ræktinni og í vetur ætla ég að
taka upp þráðinn þar sem frá var horfið í
vor. Það skiptir líka máli að vera ekki bara
í góðu formi til að vera í góðu formi.
Maður er mun orkumeiri í vinnu og öllu
því sem maður tekur sér fyrir hendur.
Þetta styður mann á allan hátt og ákveðið
kikk sem maður fær út úr því að finna
endorfínið líða um kroppinn.“
Snorri segir líka að hann mætti vera
duglegri í mataræðinu en hann hefur svo
sem aldrei haft áhyggjur af því að fitna. Ég
er rosalega slappur í mataræði. Sem betur
fer er ég þannig af guði gerður að ég hef
getað borðað allt sem mig langar í í gegnum
tíðina án þess að fitna. Ég reyni samt að
borða hollt frekar en óhollt. En ef mig lang-
ar í safaríka steik eða hamborgara læt ég
það eftir mér. Ég er lítið fyrir salat og slíka
hluti,“ segir Snorri og hlær þegar blaða-
kona segir hann dæmigerðan karlmann.
„Já, ég hef fengið að heyra það í gegnum
tíðina að ég sé karl af gamla skólanum.“
lilja@frettabladid.is
Gott að finna endorfín
líða um kroppinn
tilbod@frettabladid.is
Salmonella
Umhverfissvið Reykjavíkurborg-
ar tók 9. ágúst síðastliðinn sýni
af grænum smáaspas frá
Taílandi sem Bananar ehf.
fluttu inn. Niðurstöður rann-
sókna liggja nú fyrir og greind-
ist Salmonella sp. í aspasnum. Í
ljósi þessa hefur dreifing vör-
unnar verið stöðvuð og í sam-
vinnu við innflytjanda hefur
hún verið tekin úr sölu. Varan
hefur einungis verið seld í Hag-
kaupum og Melabúðinni.
Sálfræðiþjón-
usta
Landspítali - há-
skólasjúkrahús
hefur gert samn-
inga við Heilbrigðis-
stofnun Ísafjarðabæjar, Heil-
brigðisstofnun Austurlands og
Heilsugæsluna í Reykjavík um
sálfræðiþjónustu í heilsugæsl-
unni. Heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytið styrkir verkefn-
ið með 24 milljóna króna fram-
lagi á tveggja ára samnings-
tíma. Markmið samningsins er
að efla sérhæfða sálfræðiþjón-
ustu innan heilsugæslunnar og
fjölga úrræðum fyrir sjúklinga
með geðraskanir.
Reykingar
Niðurstöður árlegra rannsókna
þar sem spurt er um reykingar
Íslendinga má sjá á vefsíðunni
www. manneldi.is. Þar
kemur í ljós að reyk-
ingar hafa farið
minnkandi frá árinu
1989 í næstum öll-
um aldursflokkum.
Það vekur hins vegar
athygli að reykingar hafa
aukist í aldursflokknum 60-69
ára, en reykingar hjá þessum
hóp náðu lágmarki 1998 þegar
aðeins 14% reyktu en nú er
talan komin upp í 22%.
Snorri fer yfir stöðuna í boltanum á Enska boltanum og fær sína brennslu í fótbolta.
LIGGUR Í LOFTINU
í tilboðum
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA BRÚÐKAUP FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl.
KRÍLIN
Af hverju
getur maður
ekki klappað
fólkinu í
sjónvarpinu?
Aðeins öðruvísi brúðargjafir
BLS. 4
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 OG Á visir.is
ÞÚ GETUR PANTAÐ
SMÁAUGLÝSINGAR
Á visir.is
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.