Fréttablaðið - 23.08.2005, Síða 20
Andleg heilsa
Góð andleg heilsa er gulls ígildi og miklu skiptir að viðhalda henni. Vertu með-
vituð/-aður um hvað gerir þig ánægða(n) og hvað ekki. Ekki stressa þig of mikið
á því sem þú ræður ekki við og reyndu að halda í jákvæðnina.[ ]
STÆRSTA
HEILSUVÖRUVERSLUN
Á LANDSBYGGÐINNI
Póstsendum um land allt
Glerártorg Akureyri S: 462-1889
heilsuhorn@simnet.is
www.simnet/heilsuhorn.is
Erum flutt að Skólavörðustíg 16 í stærra og glæsilegra
húsnæði. Margar nýjar vörur og tilboð. *tilbúnir réttir
beint í ofninn, *ekta ítalskur ís og margt fleira.
Verið velkomin á Skólavörðustíginn
Yggdrasill
Lífrænt ræktaðar vörur frá 1986 • S: 562 4082
Byggir upp eðlilega flóru
í maga og meltingarvegi
Framúrskarandi fyrir
MELTINGUNA
Fæst í apótekum, heilsubúðum
og matvöruverslunum
H
Á
G
Æ
Ð
A
A
M
E
R
ÍS
K
F
Æ
Ð
U
B
Ó
T
A
R
E
F
N
I
Opið 8-24 alla daga
í Lágmúla og Smáratorgi
Opið virka daga kl. 10-20
laugardaga kl. 10-17
Sykurlaus
jógúrt!
Hreina lífræna jógúrtin frá
Biobú er framleidd án sykurs.
A›eins er nota›ur lífrænn hrásykur í
ö›rum jógúrt tegundum frá Biobú.
Biobú ehf. • Stangarhyl 3a • Sími: 587 4500 • Netfang: biobu@biobu.is • www.biobu.is
w
w
w
.b
io
bu
.is
v
ar
k
os
in
n
be
st
i í
sl
en
sk
i b
æ
nd
av
ef
ur
in
n
Hlaupa úti á aðfangadag
Systurnar Bryndís og Martha Ernstsdætur komu, sáu og sigruðu á Reykjavíkurmaraþoninu síðustu helgi. Dagbjartur Daði sonur Mörthu
er með þeim á myndinni.
Systurnar Martha og Bryndís
Ernstsdætur slógu heldur
betur í gegn í Reykjavíkur-
maraþoninu síðustu helgi þar
sem Bryndís vann heilmara-
þonið og Martha hálfmara-
þonið. Bróðir þeirra Sveinn
hljóp einnig og var annar í
karlaflokki í hálfmaraþoninu.
Fréttablaðið sló á þráðinn til
þeirra systra.
„Þetta er fjórða heilmaraþonið
sem ég keppi í og ég er bara mjög
ánægð með árangurinn, enda
bætti ég tímann aðeins,“ segir
Bryndís Ernstsdóttir, sigurvegari
kvenna í heilmaraþoni í Reykja-
víkurmaraþoninu sem fram fór
síðastliðinn laugardag. Systir
hennar Martha hljóp hálfmaraþon
og vann með glæsibrag, og ekki í
fyrsta sinn. „Ég hef verið með í
Reykjavíkurmaraþoninu frá 1984
og kannski sleppt því fjórum sinn-
um, og ég er bara sátt miðað við
undirbúning,“ segir Martha.
Systurnar hlæja báðar þegar
þær eru spurðar hvort þær séu
með svona góð gen og segja það
eflaust hafa eitthvað að segja.
„Annars geta allir hlaupið,“ segir
Martha. Bróðir þeirra Sveinn
keppti einnig í hálfmaraþoninu og
kom annar í mark. „Við erum nú
ekki alin upp í neinu sérstöku
íþróttaumhverfi, við yngri systk-
inin höfum bara elt Mörthu. Fyrst
var hún í sundinu og þá syntum
við og svo fór hún að hlaupa og við
bara eltum, ef hún færi í ballett
þá færum við í ballett,“ segir
Bryndís og hlær.
Systurnar hlaupa mjög mikið
saman og oft ásamt bróður sínum
og jafnvel mökum og börnum.
„Fólki finnst við mjög skrítin
þegar við förum öll saman klukkan
fjögur á aðfangadag, stór hópur út
að hlaupa. En okkur finnst þetta
æðislegt,“ segir Martha. Þær segja
það mikla hvatningu að hlaupa
saman og það hafi eflaust skipt
sköpum hvað árangurinn varðar.
„Það kemur sjaldan fyrir að við
séum báðar svo latar að við förum
ekki út að hlaupa, önnur dregur út
hina sem er löt,“ segir Martha.
Þær hafa báðar hlaupið erlend-
is þótt Martha hafi sennilega
hlaupið mun oftar en Bryndís.
Ekki eru þær að baki dottnar og
svara því játandi þegar þær eru
spurðar hvort til standi að hlaupa
annað maraþon á næstunni. „Ég
er ekki alveg búin að ákveða
hvert ég fer,“ segir Bryndís og
tekur Martha í sama streng. „En
það verður eitthvað með vorinu,“
segir Martha.
Aðspurðar hvort í þeim sé
mikið keppnisskap ber þeim ekki
alveg saman. „Já ég held það sé
ansi mikið,“ segir Martha, en
Bryndís segir: „Ég er að æfa því
það er svo gaman að hreyfa sig,
því það er svo góður lífsstíll. Það
er ekki árangurinn sem teymir
mig áfram heldur leiðin,“ segir
Bryndís.
Báðar segjast þær hlaupa oft í
viku og Martha segist jafnvel
hlaupa átta sinnum í viku. „Já ég
fer stundum tvisvar á dag, ég er
líka að hlaupa með saumaklúbbn-
um, og hittumst við tvisvar í viku
og hlaupum áður en við förum í
vinnuna,“ segir Martha og lætur
augljóslega aldrei sleppa frá sér
stund til að hlaupa. „Ég horfi bara
ekki á sjónvarpið, þá hef ég tíma
til að hlaupa,“ segir Bryndís.
kristineva@frettabladid.is
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N