Fréttablaðið - 23.08.2005, Blaðsíða 41
ÞRIÐJUDAGUR 23. ágúst 2005 29
„Yfirskriftin á tónleikunum er Stríð
og friður,“ segir fiðluleikarinn Auð-
ur Hafsteinsdóttir en hún og píanó-
leikarinn Anna Guðný Guðmunds-
dóttir leiða saman hesta sína í sum-
artónleikaröð á Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar í kvöld. Yfirskrift tón-
leikanna vísar í sögulegan bak-
grunn verkanna sem tónlistakon-
urnar koma til með að flytja.
Áhorfendum gefst kostur á að
hlýða á tvær sónötur fyrir fiðlu og
píanó aðra í dúr og hina í moll eftir
þá Edward Grieg og Sergej Prokofi-
ev. „Sónata númer eitt eftir Prokofi-
ev hefur lengið verið draumasónata
hjá mér. Verkið var samin á stríðs-
árunum og eftir stríð og innihaldið
er eftir því,“ en Prokofiev samdi
sónötuna á árunum 1938-1946 og
þykir verkið undir áhrifum stríðs-
hörmunga og þeirri kúgun og von-
leysis sem gætti í Rússlandi Stalíns.
„Ég valdi því bjartsýnissónötu
Griegs sem mótvægi við verk
Prokofie,“ en sónata Griegs númer
eitt er full af æskufjöri.
Tónleikarnir og óður Auðar og
Önnu Guðnýjar til stríðs og friðar
hefst klukkan 20.30 í kvöld. ■
Don Cheadle heimsótti í fyrsta
skipti Hótel des Milles í Rúanda.
Það var gert ódauðlegt í kvikmynd-
inni Hótel Rúanda þar sem leikar-
inn fór á kostum sem hótelstjórinn
Paul Rusesabagina en hann bjarg-
aði meira en þúsund manns frá
þjóðarmorðunum þar í landi árið
1994.
Cheadle hafði aldrei séð sögu-
staðinn þar sem Hótel Rúanda var
að mestu leyti tekin upp í Suður-
Afríku. „Ég hef sogast að þessu
svæði og mig langar að beina at-
hygli umheimsins að aðstæðum
þessarar heimsálfu,“ sagði leikar-
inn en hann var tilnefndur til Ósk-
arsverðlauna fyrir leik sinn í mynd-
inni.
Cheadle hitti forseta Rúanda
Paul Kagame þegar myndin var
frumsýnd í Úganda. Hann heimsótti
einnig flóttamannabúðir í norður-
hluta Úganda en talið er að tæplega
ein og hálf milljón Úgandabúa séu á
flótta undan morðum og nauðgun-
um Uppreisnarhers Drottins. Chea-
dle ræddi enn fremur við ungar
stúlkur sem hafði verið þröngvað í
hjónaband og sagðist ekki geta
ímyndað sér hörmungarnar sem
fólkið gengi í gegnum.
Cheadle er að skrifa bók í sam-
starfi við John Prendergast um
ástandið í Afríku. Hann sagðist
vona að bókin varpaði ljósi á hvað
Bandaríkjamenn geti gert í málefn-
um Afríku. Það kom honum á óvart
hversu sterkt von lifir í hjörtum
íbúanna þrátt fyrir hrikalegar að-
stæður. „Það er hún sem heldur
þeim á lífi“. ■
Poppsöngkonan Ashlee Simpson,sem hefur um nokkurn tíma átt í
hatrömmum deilum við leikkonuna
Lindsay Lohan, hefur nú gefið út
nýtt lag sem ber nafnið I didn’t steal
your boyfriend, eða „Ég stal ekki
kærastanum þínum“. Mörgum finnst
textinn ansi persónulegur þar sem
eitt helsta deiluefnið var einmitt að
Lindsay fannst Ashlee stela af
sér kærastanum sínum,
Svona var það ‘76 leik-
aranum Wilmer Vald-
errama. Ashlee og Wil-
mer hafa sést mikið
saman undanfarið en
þrátt fyrir það neitar
hún því að nokkur
rómantík sé í loftinu.
Will & Grace-leikkonan DebraMessing stefnir nú ótrauð að
því að styrkja feril sinn sem kvik-
myndaleikkona. Það er þó eitt ljón í
veginum og það er Jennifer Ani-
ston. „Debra er meira en til-
búin að snúa sér að kvik-
myndaleik og kom sterklega
til greina fyrir tvö góð
hlutverk nýlega.
Jennifer Aniston
hreppti hins vegar bæði
hlutverki og Debra óttast
að þessi samkeppni verði
henni að falli í framtíð-
inni,“ sagði vinkona
leikkonunnar. „Debra er
samt ekki stressuð enn
og segist vona að Jenni-
fer finni sér kærasta og taki sér frí - í
eitt ár eða svo!“
Það gengur þó ekki alltsvo vel hjá Jennifer
Aniston, sem er miður
sín yfir hegðun brátt fyrr-
verandi eiginmanns
síns Brads Pitt. „Daginn
sem þau skrifuðu yfir-
lýsingu um skilnað sinn,
ákváðu þau að byrja
ekki opinberlega með
neinum í hálft ár,“
sagði vinur leikkon-
unnar. „Jen finnst Brad
hafa brotið þetta sam-
komulag með miklum
samvistum sínum við Ang-
elinu Jolie.“ Jennifer hefur
lítið tjáð sig um skilnaðinn
en lét þó hafa eftir sér í
viðtali við Vanity Fair að
hún væri afar sár og niður-
brotin yfir þessu öllu saman. „[Brad]
hlýtur að vanta nærgætnishlutann í
heilann,“ sagði hún þegar blaða-
maður tímaritsins spurði hana um
allar þær myndir sem birst hafa af
Brad og Angelinu.
American Pie-leikkonan Tara Reidhefur loks viðurkennt að hafa
farið í brjóstastækkun. Mikið hefur
verið rætt um gífurlega stækkun
barms hennar á stuttum tíma en
hingað til hefur hún neitað því að
hafa farið í aðgerð. „Já, ég fór í
brjóstastækkun! Ég meina, allir gera
það. Ég skil ekki af hverju ég fæ
svona mikla athygli út á það?“ Tara
sem undanfarið hefur verið þekktari
fyrir að
skemmta sér
á börum en
nokkuð ann-
að vakti mikla
athygli fyrr á
þessu ári þeg-
ar hún missti
niður hlýra á
kjól sínum og
beraði annað
brjóstið en þá
sáust augljós
ör eftir inn-
grip skurðað-
gerðar.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Cheadle í Rúanda
HÓTEL RÚANDA Paul Rusesabagina
bjargaði þúsund íbúum Rúanda frá þjóðar-
morðunum í landinu. Don Cheadle, sem
túlkaði hótelstjórann í kvikmyndinni, heim-
sótti hótelið fræga og kynnti sér aðstæður
flóttafólks í Úganda.
Strí› og fri›ur í Sigurjónssafni
TÓNLEIKAR Anna Guðný Guðmundsdótt-
ir og Auður Hafsteinsdóttir leika sónötur
eftir Grieg og Prokofief í kvöld.