Fréttablaðið - 27.08.2005, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
BJARTVIÐRI ÁFRAM SYÐRA en
skúraveður norðan- og austanlands.
Fremur svalt í veðri norðanlands.
VEÐUR 4
LAUGARDAGUR
27. ágúst 2005 - 230. tölublað – 5. árgangur
Tekur Teitur við KR-liðinu?
KR-ingar hafa talað við Teit Þórðarson
um að þjálfa liðið í
Landsbankadeildinni í
knattspyrnu næsta
sumar. Sigursteinn
Gíslason tók við liði
KR eftir að Magnús
Gylfason var rekinn
en nú gæti lærðasti
íslenski þjálfarinn ver-
ið á leiðinni í Vestur-
bæinn.
Sanngjarn en ákveðinn
Geir Jón Þórisson
þykir traustvekj-
andi og mikill
öðlingur, ímynd
lögreglunnar ef út
í það er farið og
ljóst að það er alls
ekki slæm ímynd.
MAÐUR VIKUNNAR 16
Í MIÐJU BLAÐSINS
● bílar ● ferðir ● tíska
▲
GUÐMUNDUR ÞÓR ÁRMANNSSON
Bíll sem á engan
sinn líka
Flottasti áratugur
kvikmyndalistarinnar
KVIKMYNDAGERÐ Í BLÓMA
▲
KVIKMYNDIR 28
KYNSLÓÐASKIPTI OG MAGNAÐAR PERSÓNUR
ÍÞRÓTTIR 38
LÖGREGLUMÁL Varnarliðsmaðurinn
sem grunaður er um að hafa orðið
konu að bana á Keflavíkurflug-
velli sunnudaginn 14. ágúst hefur
verið fluttur frá Keflavíkurflug-
velli til Þýskalands. Þar er hann í
haldi í herbúðum varnarliðsins.
Hann neitar staðfastlega sök,
samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins.
Í ljós hefur komið að engin
vitni voru að því þegar banda-
rísku varnarliðskonunni, sem var
tvítug, voru veittir áverkar sem
síðan drógu hana til dauða. At-
burðurinn átti sér stað í húsnæði
einhleypra varnarliðsmanna.
Varnarliðskonan var með lífs-
marki þegar hún fannst á sunnu-
dagskvöldið, en lést skömmu síðar
á hersjúkrahúsi á Keflavíkurflug-
velli af völdum stungusára. Ís-
lensk kona sem var gestkomandi í
íbúðinni reyndist hafa verið í
svefnherbergi hins grunaða
meðan verknaðurinn var framinn
annars staðar í íbúðinni.
Varnarliðsmaðurinn hafði átt í
deilum við hina látnu vegna þess
að hann hafði, í félagi við annan
varnarliðsmann, stolið umtals-
verðum fjárhæðum af greiðslu-
korti hennar. Það mál komst upp.
Vitorðsmanninum var vikið úr
hernum, en enn átti eftir að rétta í
máli hins grunaða.
Rannsóknardeild sjóhersins og
lögreglan á Keflavíkurflugvelli
hafa haft samvinnu um rannsókn
málsins. Ekki liggur fyrir hvort
réttað verður í því hér á landi eða
í Þýskalandi. - jss
Grunaður banamaður varnarliðskonu fluttur til Þýskalands:
Varnarli›sma›ur neitar sök
Ekki hljóðfæraleikarar
fyrir fimm aura
Sigur Rós er í stuttu stoppi hér á landi
eftir tónleikaferð um Evrópu sem hófst
í júlí. Tilefni er
fjórða plata
sveitarinnar,
Takk, sem
kemur út 12.
september.
TÓNLIST 34
VEÐRIÐ Í DAG
FLÓÐ Íslenskur piltur er innlyksa á
svissnesku hóteli ásamt enskum
föður sínum og vinkonu hans. Flóð
sem tugir Evrópubúa hafa farist í
hafa lokað hótelið af og verður að
senda þyrlu eftir fólkinu í dag svo
það komist leiðar sinnar.
Matthías Þór Ingason hefur
dvalið á hóteli í svissneska bænum
Engelberg í viku. Eftir þriggja
daga stanslaust úrhelli lét vegur-
inn út úr bænum undan vatnselgn-
um og ruddist með flóðinu yfir
nærliggjandi járnbrautarteina. Við
það rofnuðu samgöngur á jörðu
niðri til og frá bænum og ekki aðra
leið að fara en loftleiðina. Þyrlur
hafa flutt fólk út úr bænum og
borið mat til baka. Tólf kílómetra
loftleið er til næsta bæjar.
„Þetta var slæmt fyrst en
hefur batnað,“ segir Matthías Þór,
sem meðal annars horfði upp á
lítið hús verða að spýtnabraki
nærri hótelinu. Matthías dvelur á
annarri hæð og hefur ekki verið í
hættu en vatnið hefur náð upp að
gluggum fyrstu hæðarinnar.
Matthías Þór segist aldrei hafa
óttast um líf sitt en viðurkennir að
upplifunin sé sérstök. “Ég hef
ekkert orðið hræddur og það er
bara gaman að upplifa þetta.“
Í dag verða Matthías Þór, faðir
hans og vinkona flutt með herþyrlu
frá Engelberg til næsta bæjar, það-
an sem þau taka lest til Luzern og
heldur Matthías af stað flugleiðina
til Íslands á morgun.
„Það hefur verið mjög erfitt að
fylgjast með þessu héðan frá Ís-
landi,“ segir Þóra Birgitta Garðars-
dóttir, móðir Matthíasar. Hún segir
óvissuna hafa verið erfiðasta enda
hafi hún aldrei vitað hvað myndi
gerast næst. „Ég verð mjög fegin
að fá hann heim,“ segir hún og
bætir við að ættingjar og vinir hafi
einnig haft þungar áhyggjur.
Matthías býr í Njarðvík og átti
eins og önnur íslensk börn að
byrja í skóla í vikunni. Hann mæt-
ir á mánudag og hefur eflaust frá
ýmsu að segja þegar hann hittir
vini sína og skólasystkini. - bþs
Íslenskur piltur fluttur
me› flyrlu af fló›asvæ›i
Matthías fiór Ingason, tólf ára Njar›víkingur, hefur veri› innlyksa á hóteli í
bænum Engelberg í Sviss í nokkra daga. Grí›arleg fló› hafa veri› ví›a í
Evrópu undanfari› og hafa tugir manna farist.
ÞORSTEINN OG PYSJAN Þúsundir lundapara verpa í eyjunum á Sundunum og er algengt að pysjur sæki í ljósin í bænum á haustkvöldum.
STJÓRNARSKRÁNNI MÓTMÆLT Þessi kona
hélt á mynd af Saddam Hussein þegar
hún mótmælti drögum að stjórnarskrá
Íraks.
Stjórnarskrá Íraks:
Leggja drögin
fyrir flingi›
ÍRAK, AP „Samkomulag hefur náðst
um deilumál, þar á meðal hug-
myndina um sambandsríki,“ sagði
Humam Hammoudi, formaður
stjórnarskrárnefndarinnar, þegar
hann tilkynnti að drög að nýrri
stjórnarskrá yrðu lögð fyrir
stjórnarskrárþing Íraks í dag eða
á morgun.
Hammoudi sagði samkomulag-
ið fela í sér tryggingar fyrir
súnnía um að hagsmunum þeirra
yrði borgið. Fulltrúar súnnía
höfnuðu hins vegar drögunum og
hvöttu landsmenn til að fella þau.
Sjá síðu 10
Lundapysja spókar sig í Örfirisey:
Mögur og villt
NÁTTÚRAN Lundapysja spókaði sig
á athafnasvæði Lýsis í Örfirisey
í Reykjavík í gærmorgun. Þor-
steinn Waagfjörð, starfsmaður
fyrirtækisins, gekk fram á pysj-
una eftir tíukaffið og átti ekki í
vandræðum með að handsama
hana, enda Eyjamaður að upp-
lagi.
„Hún var ráðvillt enda hafði hún
líklega aldrei séð svona furðu-
lega skepnu áður,“ segir Þor-
steinn og á þar við sjálfan sig.
Pysjan var talsvert magurri en
þær sem Þorsteinn þekkir úr
Vestmannaeyjum en hress að
öðru leyti.
Þorsteinn geymdi pysjuna í
kassa í gær og sleppti henni á
haf út í gærkvöldi.
Líklegt er að pysjan hafi
komið úr Akurey, Andríðsey eða
Lundey á Kollafirði en líflegt
lundavarp er í þessum eyjum.
Að sögn Ólafs Nielsen, starfs-
manns Náttúrufræðistofnunar
Íslands, finnast lundapysjur á
hverju hausti í Reykjavík. - bþs
Ver›ur kafteinn
á Ástarfleyinu
VALDIMAR ÖRN FLYGENRING
▲
FÓLK 50
ÁST VIÐ STRENDUR TYRKLANDS
MATTHÍAS ÞÓR INGASON Hann hefur ekki
fundið til hræðslu en segir upplifunina
merkilega.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
Gísli Marteinn Baldursson:
Sækist eftir
fyrsta sæti
STJÓRNMÁL Gísli Marteinn Baldurs-
son mun tilkynna stuðningsmönn-
um sínum á sunnudag að hann hygg-
ist sækjast eftir fyrsta sæti á lista
sjálfstæðismanna fyrir næstu borg-
arstjórnarkosningar.
Byrjað er að kynna fund sem
stuðningsmenn Gísla Marteins
halda í Iðnó kl. 14 á morgun og
hefur Fréttablaðið traustar heimild-
ir fyrir því að þá muni hann kynna
framboð sitt. Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson hefur áður tilkynnt að
hann sækist eftir fyrsta sætinu. - ss