Fréttablaðið - 27.08.2005, Page 2

Fréttablaðið - 27.08.2005, Page 2
LÖGREGLUMÁL Tuttugu kærur vegna nauðgunar hafa borist til lögreglunnar í Reykjavík það sem af er þessu ári, að sögn Harðar Jó- hannessonar yfirlögregluþjóns. Rannsókn fimm þessara mála er lokið hjá lögreglu og þau farin til saksóknara. Fimmtán eru enn til rannsóknar. Fjöldi slíkra kæra undanfarin ár hefur verið á bil- inu 20-40. „Af þessum tuttugu kærum eru tvær sem við tókum við utan af landi,“ segir Hörður. „Að minnsta kosti í tveimur tilvikum er ekki vitað um geranda. Í þeim málum kæra stúlkur nauðgun inni á veitinga- stað og það er engin lýsing á því hver gerandinn er. Í flestum hinna málanna er gerandinn þekktur. Áður fyrr áttu svona at- vik sér yfirleitt stað í heimahús- um eða annars staðar þar sem fólk var saman komið. En á undanförnum árum hafa alltaf komið nokkur mál þar sem nauðg- un er sögð hafa átt sér stað inni á salernum á veitingastað.“ Hann segir allan gang á því hvernig þessi mál fari af stað. Sá sem verði fyrir nauðgun geti leit- að til neyðarmóttöku vegna nauðgunarmála í Fossvogi og fengið aðstoð þar. Þaðan sé svo haft samband við lögreglu. Þá geti viðkomandi hringt beint í lögregluna. Fyrstu viðbrögð hennar séu að koma manneskj- unni í neyðarmóttökuna, eftir að hafa tekið niður upplýsingar í því skyni að tryggja sönnunar- gögn og að viðkomandi fái þá að- stoð sem í boði sé. „Svo eru hin dæmin, þar sem tilkynnt er um nauðgun nokkru eftir að hún hefur átt sér stað,“ segir Hörður. „Þá er hugsanlegt að viðkomandi hafi farið á neyðar- móttökuna á sínum tíma. Reglan er nokkurn veginn sú að ekki er kallað í lögreglu nema viðkom- andi ætli að kæra.“ Eyrún Jónsdóttir, umsjónar- hjúkrunarfræðingur neyðarmót- töku Landspítala - háskólasjúkra- húss í Fossvogi, segir að þangað hafi verið leitað vegna 81 kyn- ferðisbrotamáls það sem af sé ár- inu. 34 þeirra hafi verið kærð til lögreglu, auk þess sem lögregla hafi haft afskipti af þremur sem ekki hafi enn verið kærð. jss@frettabladid.is 2 27. ágúst 2005 LAUGARDAGUR Héraðsdómur Vestfjarða dæmir þremur húseigendum í vil: Fá 57 milljónir í sta› 40 DÓMSMÁL Héraðsdómur Vest- fjarða dæmdi í gær Bolungar- víkurkaupstað til að greiða eig- endum þriggja húsa við Dísar- land í Bolungarvík rúmar 57 milljónir auk vaxta í eignar- námsbætur. Olgeir Hávarðar- son, eigandi eins hússins, segir þetta í það minnsta einn áfanga og fagnar því, þótt óljóst sé hvort kaupstaðurinn áfrýi dómn- um til Hæstaréttar. Húsin við Dísarland og Traðar- land voru öll metin á snjóflóða- hættusvæði og var ákveðið árið 2001 að reisa snjóflóðavarnargarð þar sem húsin standa nú. Ákvað þá kaupstaðurinn að taka húsin eignarnámi og var óskað eftir mati matsnefndar eignarnáms- bóta. Matið hljómaði upp á rúmar 57 milljónir fyrir þessi þrjú hús. Bolungarvíkurkaupstaður vildi síðar að mati nefnarinnar yrði hnekkt og markaðsvirði greitt fyrir húsin, um 40 milljónir. Héraðsdómur staðfesti að greiða ætti samkvæmt mati matsnefndar, en ekki mark- aðsvirði, fyrir eignarnám auk dráttarvaxta. Þá ber Bolungar- víkurkaupstað að greiða tvær milljónir í málskostnað. Ofan- flóðasjóður greiðir níutíu pró- sent af markaðsvirði fasteign- anna, um 36 milljónir. Kaupstað- urinn mun því þurfa að greiða 21 milljón auk vaxta og málkostn- aðar. - ss PERÚ, AP Hundruð björgunarsveit- armanna hafa síðustu daga grandskoðað hvern krók og kima í flaki Boeing 737-þotunnar sem fórst í Perú á þriðjudagskvöld. Leitað er í farangri, kringum raf- leiðslur og í braki að hverri þeirri vísbendingu sem varpað gæti frekara ljósi á orsakir flugslyss- ins, sem varð 37 manns að bana. Þrátt fyrir að opinber rannsókn sé einungis nýhafin hafa sumir sér- fræðingar viljað varpa sökinni á flugstjórann. Hann var áður her- flugmaður og er sagður hafa tekið áhættu sem að öllu jöfnu eigi ekki að taka. Forsvarsmenn flug- félagsins kenna vondu veðri um. ■ Tuttugu nau›ganir kær›ar til lögreglu 81 kynfer›isbrotamál hefur borist ney›armóttöku vegna nau›gana fla› sem af er flessu ári. fiar af hafa 34 veri› kær› til lögreglu. Kærur vegna nau›gunar sem lögreglan í Reykjavík hefur fengi› til me›fer›ar eru tuttugu talsins. MÓTMÆLT Á ÞAKI STJÓRNARRÁÐSINS Mótmælendur skiptu þjóðfánanum út fyrir mótmælaborða gegn álverum. Mótmælendur við Stjórnarráðið: Tóku íslenska fánann ni›ur LÖGREGLUMÁL Tveir mótmælendur voru handteknir laust eftir hádegi í gær eftir að þeir fóru upp á þak Stjórnarráðsins í Lækjargötu og drógu þar að húni mótmælaborða í stað þjóðfánans sem þar blaktir venjulega. Vel gekk að ná mönnunum niður og veittu þeir engan mótþróa við handtökurnar en einhverjar skemmdir urðu á þaki hússins. Á borða þeim er mennirnir drógu að húni stóð „Engin helvítis álver“. - aöe SPURNING DAGSINS Edda, gengur ekkert a› skilja? „Nei, það gengur ekkert að skilja - við sýninguna Alveg brilljant skilnaður. Guði sé lof, það er svo gaman að leika í henni.“ Edda Björgvinsdóttir snýr aftur á sviðið með sýn- inguna Alveg brilljant skilnaður, sem hún sýndi sextíu sinnum síðasta vetur. Ekkert lát virðist á vinsældum verksins. FÓRNARLÖMB Fjöldi fórnarlamba í kynferðisbrotamálum hleypur á tugum á hverju ári. 34 slík mál hafa verið kærð til lögreglunnar það sem af er þessu ári, þar af tuttugu nauðgun- armál. Myndin er sviðsett. KÆRÐAR NAUÐGANIR 2004 - 24 2003 - 33 2002- 41 2001 - 30 2000 - 22 1999 - 30 KÆRUR EFTIR MÁNUÐUM 2005 janúar 3 febrúar 3 mars 2 apríl 4 maí 2 júní 3 júlí 0 ágúst 3 Breytingar í Garðasókn: fiarf a› svara bréfi biskups KIRKJAN Biskup Íslands hefur óskað eftir því við Björn Bjarnason, ráð- herra dóms- og kirkjumála, að Birg- ir Ásgeirsson verði settur sóknar- prestur í Garðabæ til þriggja mán- aða. Áætlað er að auglýsa starf sóknarprests í Garðasókn laust til umsóknar frá 1. desember. Séra Hans Markús Hafsteinsson, sóknarprestur í Garðabæ, hefur fengið viku frest til að svara því hvort hann sæti tilflutningi í starfi og taki við nýju embætti héraðs- prests í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra eða láti af störfum. Lögmað- ur Hans Markúsar segir flutninginn jafngilda uppsögn þar sem störfin séu ekki sambærileg. - óká Kosningar í Noregi: Stoltenberg sækir enn á NOREGUR Verkamannaflokkur Jens Stoltenberg eykur enn á forskot sitt í aðdraganda norsku þing- kosninganna sem fram fara 12. september. Stuðningur flokksins mælist nú nær 35 prósent at- kvæða. Næststærsti flokkur Noregs virðist vera Framfaraflokk- ur Carl Hagen, sem fengi ríflega tuttugu prósent atkvæða ef gengið yrði til kosninga nú. Kristilegi þjóðar- f l o k k u r i n n , flokkur forsætis- ráðherrans, Kjell Magne Bondevik, tapar hins vegar enn fylgi og mælist nú með rétt rúm fimm prósent atkvæða en fékk ríflega tólf prósent í síðustu þingkosningum. - oá Nýr sparkvöllur á Vopnafirði: Mei›sli eru tí› SLYS Nokkur ungmenni hafa meiðst á nýjum sparkvelli með gervigrasi á Vopnafirði en hann var tekinn í notkun fyrir um tíu dögum. Þorsteinn Steinsson sveit- arstjóri segir að meðal annars hafi tveir drengir brotnað en hann vill þó ekki kenna sparkvellinum um. „Meiðsli eru alltaf leiðinleg en þau fylgja knattspyrnuiðkun,“ segir Þorsteinn. Eyjólfur Sverrisson er verk- efnisstjóri sparkvallaátaks Knatt- spyrnusambands Íslands og segir hann að 63 sparkvellir séu hring- inn í kringum landið. „Ég hef ekki fyrr frétt af meiðslum á þessum völlum,“ segir Eyjólfur. - kk Skipulagning Menningarnætur: Flestir ánæg›ir me› hátí›ina BORGARMÁL Engin ákvörðun var tekin um hugsanlegar breytingar á fyrirkomulagi Menningarnætur í Reykjavík á fundi aðstandenda sem fram fór í gær. Skipuleggjendur og starfsmenn hátíðarinnar mættu á fundinn og báru saman bækur sín- ar. Samkvæmt heimildum voru allflestir á því að afar vel hefði tekist til í meginatriðum. Ýmsar hugmyndir voru þó ræddar um skipulagningu Menningarnætur að ári. - aöe LEITAÐ Í BRAKINU Leitað er að vísbendingum sem varpað gætu ljósi á orsakir flugslyssins. M YN D /A P SNJÓFLÓÐAHÆTTA AF BOLAFJALLI Bolung- arvíkurkaupstaður þarf að greiða eigend- um þriggja húsa í bænum hærra verð en markaðsvirði segir til um. Norsku ÞINGKOSNINGARNAR JENS STOLTENBERG Rannsókn hafin á tildrögum flugslyssins í Perú: Varpa sök á flugstjóra GEKK ALMENNT VEL Menningarnótt tókst vel að mati þeirra sem sáu um skipulagn- ingu. Grunnskóli Blönduóss: Börnin send á veitingahús SKÓLAMÁL Gangi allir samningar eftir munu flestir nemendur grunnskólans á Blönduósi fara út að borða í hádeginu í allan vetur en bæjarráð hefur falið bæjarstjóra að semja við veitingahús um skóla- máltíðir barnanna í vetur. Helgi Arnarsson skólastjóri segir þetta ekki jafn slæmt fyrir- komulag og virðist við fyrstu sýn enda sé umrætt veitingahús á skólalóðinni sjálfri. „Það má segja að um nokkurs konar reddingu sé að ræða enda gafst sá upp er hafði samninga um skólamáltíðir til næstu tveggja ára. Ekkert mötu- neyti er í skólanum og því er þetta ein besta lendingin í málinu.“ - aöe

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.