Fréttablaðið - 27.08.2005, Síða 6

Fréttablaðið - 27.08.2005, Síða 6
6 27. ágúst 2005 LAUGARDAGUR Hundruð trassa mánuðum saman að borga bifreiðatryggingar: Tvö flúsund ótrygg›ir bílar á götunum UMFERÐARÖRYGGI Ríflega 2.200 bílar voru í gær á skrá Umferð- arstofu yfir ótryggða bíla, þar af voru um 800 sem hafa verið á listanum frá því fyrir áramót. Gera má því ráð fyrir að yfir þriðjungur þeirra sem á annað borð skulda tryggingar trassi það mánuðum saman að borga. Kristján V. Rúriksson, verk- efnisstjóri hugbúnaðarþróunar hjá Umferðarstofu, segir mikla hreyfingu á listanum, enda séu stöðugt einhverjir að greiða upp tryggingar sínar og aðrir bílar að bætast á listann. Hann sagði skrána ná yfir bíla sem væru í umferð og á götunni. „Þeir sem reyna að sleppa við að borga tryggingarnar beita náttúrlega ýmsum leiðum, leggja til dæmis ekki við heimili sitt, heldur í næstu götu og svo framvegis,“ segir Kristján en vill ekki skjóta á hversu margir bifreiðaeigend- ur á listanum séu svo kræfir. Hann segir lögregluna fá viku- lega lista yfir ótryggða bíla og að auðvelt sé hægt að raða þeim upp þannig að það sjáist hverjir hafi trassað lengst að borga. - óká Auralitlir farþegar með Norrænu: Fóru fram á pólitískt hæli FERÐAMENN Fjögurra manna fjöl- skylda frá Búlgaríu, sem kom með Norrænu til Seyðisfjarðar síðastliðinn fimmtudag, hefur óskað eftir pólitísku hæli á Ís- landi. Lárus Bjarnason, sýslumaður á Seyðisfirði, segir að við reglulegt eftirlit hafi komið í ljós að fólkið hefði ekki nægileg fjárráð til framfærslu á Íslandi. „Því var fólkinu gerð grein fyrir því að lík- lega yrði því vísað úr landi en þá fór það fram á pólitískt hæli. Fólkið er nú í höndum Rauða krossins á Egilsstöðum en við munum senda Útlendingastofnun skýrslu,“ segir Lárus. - kk Fjórtán börn t‡ndu lífi í eldsvo›anum Eldur kom upp í anna› sinn á stuttum tíma í húsi afrískra innflytjenda í París og í fletta sinn brunnu sautján manns inni. A›stæ›ur flessa fljó›félagshóps eru afar bágbornar. FRAKKLAND Sautján afrískir inn- flytjendur fórust í eldsvoða í hrörlegu fjölbýlishúsi París í fyrrinótt. Þar af voru fjórtán börn. Harmleikurinn hefur beint kastljósinu að bágum aðbúnaði innflytjenda í landinu. Eldurinn kom upp í húsi í 13. hverfinu en þar bjuggu afrískir innflytjendur frá Senegal og Malí, hundrað börn og þrjátíu fullorðnir. Talið er að eldurinn hafi kviknað á jarðhæð hússins undir miðnætti og næstu þrjár klukkustundirnar teygðu logarn- ir sig upp bygginguna svo að íbú- arnir, sem flestir voru í fasta svefni, áttu sér enga undan- komuleið. Fjórtán börn voru á meðal þeirra sautján sem létust en 23 voru fluttir á sjúkrahús. Serge Blisko hverfisstjóri sagði að svo virtist sem flestir hefðu andast í svefni vegna reykeitrunar en slökkviliðsmenn telja að ein- hverjir hafi látist af sárum sín- um. „Ég heyrði börn gráta og full- orðna öskra,“ sagði Oumar Cisse, íbúi í húsinu, sem komst naum- lega úr eldhafinu. „Mörg börn kölluðu í angist sinni á foreldra sína og fólk stökk ofan úr glugg- um.“ Cisse bætti því við að húsið hefði verið í mjög slæmu ástandi og þar hefði verið krökkt af rott- um, músum og öðrum mein- dýrum. Fólkið hefði beðið eftir betra húsnæði síðan 1991 en ekk- ert hefði gerst. Eldsupptök eru ókunn og vinnur lögregla að rannsókn á þeim. Þó er talið ólíklegt að raf- magn hafi valdið brunanum. Þetta er í annað sinn á stuttum tíma sem mannskæður eldsvoði kemur upp í híbýlum innflytj- enda í París en í apríl fórust 24 þegar hótel brann til kaldra kola. Mikil reiði ríkir í Frakklandi vegna slæms kosts sem Afríku- búar virðast þurfa að sætta sig við. „Í París eru engin hús fyrir barnmargar fjölskyldur,“ sagði Dogad Dogoui, formaður sam- taka afrískra innflytjenda í Frakklandi, í samtali við BBC. „Þessi börn eru frönsk börn. Þau eru þeldökk en engu að síður frönsk. Það er á ábyrgð ríkis- stjórnarinnar og borgaryfir- valda að finna þeim mannsæm- andi bústað.“ Jacques Chirac Frakklands- forseti lýsti yfir hryggð sinni og Nicolas Sarkozy innanríkisráð- herra fór á vettvang og skoðaði verksummerki. Honum var að sögn CNN mjög brugðið. sveinng@frettabladid.is Á Sjónvarpið að einbeita sér að innlendri dagskrárgerð? SPURNING DAGSINS Í DAG: Á Reykjavíkurborg að leigja Blind Pavilion til tveggja ára? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 39,8% 60,1% Nei Já Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun KJÖRKASSINN BORGARUMFERÐIN Í GÆR Umferðarstofa sendir lögreglu vikulega skrá yfir ótryggða bíla í hverju umdæmi, en vörubíll sem lenti nýverið í alvarlegum árekstri við strætisvagn var ótryggður og hefði átt að vera búið að klippa af honum númerin. Lögreglan í Reykjavík: Vill hjálp trygg- ingafélaga BIFREIÐATRYGGINGAR Geir Jón Þóris- son, yfirlögregluþjónn í Reykjavík, segir lögregluna í stöðugri vinnu við að klippa númer af ótryggðum öku- tækjum. Sökum umfangs segir hann lögregluna þó gjarnan vilja sjá breytingar á vinnulagi við starfann. „Til dæmis hvort tryggingafélögin geti ekki tekið meiri þátt, til dæmis með starfsfólki sem tæki að sér að leita uppi þessi ökutæki og það fengi síðan heimild til að taka númerin af bílunum. Það er alveg ljóst að þetta er óskaplega mikil vinna, sérstak- lega við leit að ökutækjunum,“ segir hann, en á hverjum tíma eru um 1.100 ökutæki án lögboðinna trygg- inga í Reykjavík einni. - óká Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 67.100 kr./2 = 33.500 kr. á mann + flugvallarskattar* Innifalið: Flug, gisting í 7 nætur á Alagoamar, flugvallarskattar og ísl. fararstjórn. 37.950* á mann m.v. að 2 ferðist saman. Portúgal 29. ágú. og 5., 12., 19. sept. 60.900 kr./2 = 33.550 kr. á mann + flugvallarskattar* Innifalið: Flug, gisting í 7 nætur á Los Gemelos XXII, flugvallarsk. og ísl. fararstjórn. 34.280* á mann m.v. að 2 ferðist saman. Benidorm 31. ágúst 88.700 kr./2 = 44.350 kr. á mann + flugvallarskattar* Innifalið: Flug, gisting í 21 nótt á Halley, flugvallarskattar og ísl. fararstjórn. 48.180* á mann m.v. að 2 ferðist saman. Benidorm 5. okt. *Verðdæmi til VISA-korthafa og miðast við að 2 ferðist saman. Innifalið er flug, gisting, fararstjórn erlendis og flugvallarskattar. 200 sæti í boði til VISA-korthafa. Má vísa þér á lægsta verðið? Sértilboð til VISA-korthafa: 2 fyrir 1 tilboð í sólina NORRÆNA Sýslumaðurinn á Seyðisfirði segir að líklega muni Útlendingastofnun vísa fólkinu úr landi. Kosningar í Srí Lanka: Tamílar eru hæstánæg›ir SRÍ LANKA, AP Hæstiréttur Srí Lanka úrskurðaði í gær að halda skyldi forsetakosningar á þessu ári. Tíðindin þykja sigur fyrir stjórnarandstöðu Tamíla en að sama skapi áfall fyrir forsetann Chandrika Kumaratunga og stuðningsmenn hennar. Að henn- ar mati átti kjörtímabilið að vara ári lengur, en dómstóllinn komst að annarri niðurstöðu. Vonast er til þess að úrskurð- urinn og kosningarnar verði til þess að skriður komist á friðar- ferlið í landinu en þar hefur verið vopnahlé milli Tamíla og Singalesa síðan árið 2002. Vopna- hléið hefur oft staðið tæpt en unnið er að því að koma á varan- legum friði. ■ MANNLEGUR HARMLEIKUR Ættingjar þeirra sem týndu lífi í brunanum í París í gær voru að vonum miður sín í gær. Íbúar hússins höfðu mátt hírast þar innan um rottur og mýs síðan 1991. M YN D /A P

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.