Fréttablaðið - 27.08.2005, Síða 8

Fréttablaðið - 27.08.2005, Síða 8
8 27. ágúst 2005 LAUGARDAGUR Úsbesk stjórnvöld: Hundru› pynt- u› til játninga ÚSBEKISTAN Yfirvöld í Úsbekistan hafa hneppt hundruð manna í varð- hald og þvingað þá til að viðurkenna tengsl við íslamska öfgamenn. Sam- tökin Human Rights Watch segja stjórnvöld hafa gert þetta til að rétt- læta harkalegar aðgerðir sínar gegn mótmælendum í bænum Andizhan í maí sem kostuðu 500 mannslíf. Ríkisstjórnin hefur hafnað al- þjóðlegri rannsókn á þessum hörð- ustu aðgerðum stjórnarhers gegn borgurum síðan fjöldamorðin á Torgi hins himneska friðar í Kína árið 1989. Hún staðhæfir að aðfar- irnar hafi verið nauðsynlegar til að berja niður íslamska bókstafstrúar- menn. ■ BIOPAT NÁMIÐ! Fyrirlestrar í ágúst: Sunnudag 28. ágúst kl. 14-17 Norræna húsið, Sturlugötu 5, 101 Reykjavik Verið velkomin!! Verð kr. 1500 Fyrirlestur um Biopati fyrir þig sem langar að vita meira um náttúrulyf fyrir eigin medhöndlun, fyrir þig sem vinnur með óhefðbundnar lækningar, eða ert að hugsa um að fara i Biopat-námið, sem byrjar í Reykjavík september 2005. Stór og breið menntun innan náttúrulækninga • 18 eda 36 mán. MENNTUN, á hlutatíma • Menntun í m.a.. *Næringarefnafræði *Vítamín- og steinefnafræði *”Regulations”- og jurtameðhöndlun (urter) *Samlífsfræði, *Ónæmisfræði *Írisgreining *Svæðanudd og margt fleira…. SAMBAND ÍS.: Sigurdís Hauksdóttir – TLF 5540427 Biopatskolen, Pilegårds Vænge 44, DK 2635 Ishøj KONTAKT DK: TLF +46 702879405 FAX +45 43533432 MAIL: Biopatskolen@ishoejby.dk 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI Smáralind • sími 554 4242 • www.zink.is E N N E M M / S ÍA / N M 17 8 5 1 opnunartilbo› alla helgina! Full bú› af n‡jum vörum - komi› og geri› gó› kaup á glæsilegum skólafatna›i! fiÖKKUM FRÁBÆRAR VI‹TÖKUR! DÓMSMÁL Kröfu Björns Ólafs Hallgrímssonar, verjanda Lofts Jens Magnússonar, um að kvaddir yrðu til matsmenn til að fara yfir krufningarskýrslu Þóru Steffensen réttarmeinafræðings var vísað frá í gær. Arnfríður Einarsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn. Lofti Jens er gefið að sök að hafa með hnefahöggi banað Ragn- ari Björnssyni á veitingahúsinu Ásláki í Mosfellsbæ í byrjun des- ember á síðasta ári. Björn Ólafur kvaðst taka sér umhugsunarfrest þar til á mánu- dag um það hvort hann kærði úr- skurðinn. Öðrum kosti er málinu vísað til aðalmeðferðar þann 18. október. - oá Beiðni um krufningarskýrslu í Ásláksmáli: Kröfu verjanda hafna› BJÖRN ÓLAFUR HALLGRÍMSSON Tekur sér umhugsunarfrest fram yfir helgi um það hvort hann kærir úrskurð Héraðsdóms. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L. Fellibylurinn Katrina gekk á land á Flórída: Sjö létust í fárvi›rinu FLÓRÍDA, AP Að minnsta kosti sjö létust þegar fellibylurinn Katrina gekk á land á suðurhluta Flórída í fyrrinótt. Tré rifnuðu upp með rótum og yfir ein milljón heimila varð rafmagnslaus í fellibylnum. Vindhraði mældist yfir 40 metrar á sekúndu. Katrina heldur svo á haf út á Mexíkóflóa þar sem óttast er að hún geti valdið skemmdum á olíuborpöllum. Rigningin sem fylgdi ofviðr- inu olli einnig töluverðum vand- ræðum en 380 millimetra ofan- koma mældist á sumum mæli- stöðvum í Miami-Dade sýslu. Mestu skemmdirnar af völdum fárviðrisins urðu í húsbílagörðum þar sem heimili fólks bókstaflega þeyttust upp í loftið. Einnig urðu miklar skemmdir þegar brú yfir mislæg gatnamót hrundi niður á hraðbrautina fyrir neðan. Jeb Bush, ríkisstjóri Flórída, hvatti fólk í ljósi reynslunnar af fellibyljunum Ívan, sem gekk yfir í fyrra, og Dennis, sem blés í vor, til að fylgjast vel með ferðum Katarínu og yfirgefa heimili sín ef frekari hætta steðjaði að. - oá BRIM VIÐ FLÓRÍDA Vindhraðinn mældist yfir 40 metrar á sekúndu. M YN D /A P UPPBOÐ Margt óvenjulegra muna verður á uppboði sem sýslumanns- embættið á Keflavíkurflugvelli efnir til í dag. Þar má nefna bif- reið, tjaldvagn, pels, hljómflutn- ingstæki og mótorhjól. Byssukíkir verður einnig á uppboðinu, svo og forláta veiðistöng, fjöldinn allur af hátölurum, skartgripir, þar á meðal gullkeðjur, og tískufatnaður. Að sögn Guðmundar Kárason- ar, starfsmanns embættisins, er þessi varningur að mestu til kom- inn vegna tollamála þegar reynt var að smygla honum inn í landið, en laganna verðir sáu við þeim til- raunum og gerðu hann upptækan. Ýmist var um að ræða smygltil- raunir varnarliðsmanna, sem voru þá teknir í hliðinu, eða far- þega sem komu í gegnum Leifs- stöð. Í þeim tilvikum þar sem varnarliðsmenn voru að verki var það einkum fatnaður sem var gerður upptækur. Uppboðið hefst klukkan 13 og verður að Grænási 10 í Reykja- nesbæ. Menn þurfa að staðgreiða við hamarshögg, ávísanir verða ekki teknar gildar. - jss Sýslumannsembættið á Keflavíkurflugvelli: Mótorhjól, gullke›jur og pels á uppbo›i UPPBOÐSGÓSS Starfsmenn sýslumannsembættisins með sýnishorn af því sem hægt verður bjóða í á uppboðinu í dag. M YN D /V ÍK U R FR ÉT TI R/ AT LI M ÁR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.