Fréttablaðið - 27.08.2005, Page 10

Fréttablaðið - 27.08.2005, Page 10
Drepfyndin verðlaunabók Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2004 Eftir að kona Matti fer frá honum með fimm ára dóttur þeirra ákveður hann að grípa til aðgerða til að sameina fjölskylduna að nýju. Frábærlega vel skrifuð og skemmtileg saga sem farið hefur mikla sigurför um flest lönd Evrópu og alls staðar orðið metsölubók. Finnskur húmor eins og hann gerist bestur. „Ég hló svo mikið að ég var nærri dottinn af stólnum.“ - Lasse Pöysti KOMIN Í VERSLANIR 10 27. ágúst 2005 LAUGARDAGUR Hlé hefur verið gert á fílaflutningum í Kenía: Bifrei›in gaf sig undan fílnum KENÍA, AP Stærstu fílaflutningar í sögu Kenía standa nú yfir. Hlé hefur hins vegar verið gert á flutningunum þar sem bifreið sem flytja á fílana gaf sig undan þunganum. Kenísk yfirvöld áforma að flytja 400 fíla frá verndarsvæðinu í Shimba-hæðum til þjóðgarðsins í Austur-Tsavo 350 kílómetra í burtu. Shimba-hæðir eru heim- kynni 600 fíla í dag en aðeins er talið að svæðið geti borið 200 dýr með góðu móti. Því hafa fílarnir gert sig heimakomna í manna- byggðum í æ ríkari mæli þar sem þeir slasa fólk og spilla uppskeru. Fyrsta dýrið sem átti að flytja var 22 ára tarfur en ekki vildi betur til en svo að flutningabíllinn sem flytja átti skepnuna á fimmtudaginn gaf sig undan þunga hennar. Því hefur flutning- unum verið frestað um óákveðinn tíma og er þessi 200 milljóna króna aðgerð því í uppnámi. Hart hefur verið sótt að fílun- um undanfarna áratugi. Árið 1972 bjuggu 25.268 fílar í Austur-Tsavo en í dag eru þeir einungis 10.397. Orsök fækkunarinnar er að sjálf- sögðu veiðiþjófnaður en eftir að alþjóðlegt bann við viðskiptum með fílabein var sett á 1989 hefur mjög dregið úr slíkum drápum. - shg Bush blandast í vi›ræ›urnar Enn er pattsta›a í stjórnarskrárger› Íraks. Sjíar og Kúrdar hyggjast leggja plaggi› í dóm fljó›arinnar flrátt fyrir mikla andstö›u súnnía vi› inntak fless. Sem fyrr er valddreifing ásteytingarsteinn. George W. Bush Bandaríkjaforseti blanda›i sér í gær í vi›ræ›urnar í gær flegar hann hringdi í lei›toga heittrúa›ra sjía. ÍRAK Íraskir sjíar og Kúrdar munu að öllum líkindum leggja drög að stjórnarskrá landsins í dóm þjóðarinnar án þess að þing- ið fjalli sérstaklega um málið. George W. Bush Bandaríkjafor- seti hringdi í gær í Abdul Aziz al- Hakim, einn leiðtoga heittrúaðra sjía, og bað hann um að slá af helstu kröfum sínum. Íraska þingið fékk ekki að fjalla um drög að stjórnarskrá landsins í gærkvöldi eins og búist hafði verið við, þar sem enn ríkir sundrung á meðal sjía og Kúrda annars vegar og súnnía hins vegar um inntak plaggsins. Allt bendir því til að fyrrnefndi hóp- urinn vísi uppkastinu til þjóðar- atkvæðagreiðslu 15. október en án blessunar súnnía gæti slík ráðstöfun kynt enn frekar undir ófriðarbálinu sem þegar logar í landinu. Í gær hringdi George W. Bush Bandaríkjaforseti í Abdul Aziz al-Hakim, leiðtoga Íslamska bylt- ingarráðsins í Írak og einn af oddvitum heittrúaðra sjía, og hvatti hann til að miðla málum svo sættir næðust. Talsmaður al- Hakim sagði að sjíar væru til við- ræðu um að endurskoða sínar ítrustu kröfur um að Írak yrði sambandsríki og um hreinsun valdakerfisins af fyrrverandi fé- lögum úr Baath-flokknum. Engin viðbrögð hafa fengist frá súnní- um um tilboð sjíanna en ólíklegt þykir að þeir láti freistast af því. Sem fyrr stendur aðalágrein- ingurinn um valddreifingu í land- inu. Í núverandi drögum er gert ráð fyrir að átján héruð landsins hafi umtalsverða sjálfstjórn og engin takmörk eru sett fyrir því hversu mörg þeirra mega hópa sig saman og mynda stærri ein- ingar. Slíkt hugnast súnníum afar illa því þeir óttast að verða land- luktir í miðju Írak án nokkurra olíulinda. Sjíar og Kúrdar hugsa hins vegar með hryllingi til þeirra tíma þegar öflug einræðis- stjórn stjórnaði öllu frá Bagdad og vilja því ríkt sjálfræði. Afskipti Bush af íröskum inn- anríkismálum eru svo allrar at- hygli verð og sýna hversu mikið stjórnvöld í Washington leggja upp úr að skriður komist á stjórn- málauppbyggingu í landinu. Hann á enda í vök að verjast heima fyrir þar sem stuðningur- inn við hersetuna fer stöðugt þverrandi. sveinng@frettabladid.is CRM markaðslausnir: firír menn sæta ákæru DÓMSMÁL Þrír sæta ákæru vegna fyrirtækisins CRM markaðs- lausna ehf. sem tekið var til gjald- þrotaskipta í sumar; fram- kvæmdastjóri, stjórnarformaður og stjórnarmaður. Mönnunum er gefið að sök að hafa á árunum 2001 og 2002 látið undir höfuð leggjast að standa skil á 756 þúsund króna virðis- aukaskatti og fyrir að standa ekki skil á launatengdum gjöldum upp á rúmar 4,9 milljónir króna. Báðir stjórnarmennirnir neituðu sök, en framkvæmdastjórinn fór fram á frest til að taka afstöðu til ákærunnar. - óká Hugsanleg sameining níu sveitarfélaga við Eyjafjörð: Engum bæjarstarfsmanni sagt upp FRÉTTAB LAÐ IÐ /KR ISTJÁN TARFURINN DREGINN Á PALL Áður en reynt var að koma skepnunni upp á vörubílinn var hún svæfð og síðan bundin. Ekkert varð þó af ferðalaginu. SAMEINING Enginn núverandi starfsmaður sveitarfélaganna níu við Eyjafjörð mun missa vinnu sína þó sameining verði samþykkt í kosningunum 8. október næst- komandi. Í skýrslu vinnuhóps um stjórnsýslu í sameinuðu sveitar- félagi segir að í einhverjum byggðarkjarnanna muni störfum hugsanlega fjölga en hins vegar sé ljóst að sumir starfsmenn verði færðir til í starfi eða verksvið þeirra breytast. Miðstöð stjórn- sýslunnar verður á Akureyri en þjónustuskrifstofur verða í flest- um byggðarkjörnunum. Oktavía Jóhannesdóttir, hóp- stjóri stjórnsýsluhóps samstarfs- nefndar sveitarfélaganna níu, segir að æðstu stjórnendum sveit- arfélaganna, bæjar- og sveitar- stjórunum og einum starfandi oddvita, verði boðin störf ef þeir óski svo en væntanlega muni laun þeirra lækka. „Við getum eðlilega ekki haft fjölda manns á bæjar- stjóralaunum en hagræðing hvað varðar starfsmannamál felst fyrst og fremst í því að hugsan- lega verður ekki ráðið í störf sem losna hjá sameinuðu sveitar- félagi,“ segir Oktavía. - kk OKTAVÍA JÓHANNESDÓTTIR Bæjar- og sveitarstjórar á Eyjafjarðarsvæðinu munu lækka í launum ef sveitarfélögin samein- ast og þeir kjósa að starfa hjá nýju sveit- arfélagi. BEÐIÐ FYRIR BETRI TÍÐ Skoðanir Íraka á nýju stjórnarskránni eru mjög skiptar. Stuðnings- menn sjíaklerksins Muqtada al-Sadr héldu mótmælafund í í Kazimiyah-hverfinu í Bagdad í gær en þeir leggjast eindregið gegn því að landið verði gert að sambandsríki. M YN D /A P M YN D /A P Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 Ó borg, mín borg! Dublin m.v. að 2 fullorðnir ferðist saman. Innifalið: Flug, gisting í 2 nætur á Camden Court hótelinu, flugvallarskattar og íslensk fararstjórn. í allt haust! 39.319 kr. Netverð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.