Fréttablaðið - 27.08.2005, Side 22
ANDLÁT
Guðný Jóhannesdóttir, Einhamri, áður
Jörundarholti 26, Akranesi, lést á Sjúkra-
húsi Akraness mánudaginn 22. ágúst.
Héðinn Jónsson skipstjóri, Mýrum 14,
Patreksfirði, andaðist mánudaginn 22.
ágúst.
Nína Kristbjörg Guðmundsdóttir, Kjal-
arsíðu 14b, Akureyri, lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri mánudaginn
22.ágúst.
Bryndís Ingvarsdóttir, Sólvangi, Hafnar-
firði, áður Móabarði 22b, Hafnarfirði,
lést fimmtudaginn 25. ágúst.
JAR‹ARFARIR
11.00 Daníel Teitsson, Hátúni 12,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Hvanneyrarkirkju.
13.30 Guðrún Jóna Dagbjartsdóttir,
Brekku, Núpasveit, verður jarð-
sungin frá Snartarstaðakirkju.
14.00 Áslaug Sigurðardóttir, Hávík,
Skagafirði, verður jarðsungin frá
Sauðárkrókskirkju.
14.00 Ólafur Eiríksson, Grjóti, Þverár-
hlíð, verður jarðsunginn frá Borg-
arneskirkju.
Nanna Kaaber heilsar með hlýlegu
en þéttu handabandi. Hún er 87 ára
gömul en alveg ótrúlega ern, snör í
snúningum og snögg í tilsvörum.
Hún er einn af stofnfélögum ferða-
félagsins Útivistar, sem heldur upp
á þrjátíu ára afmæli sitt í Básum í
Þórsmörk í dag. „Þeir ætla að
dubba mig upp í mitt gamla starf,“
segir Nanna og skellihlær, en hún
starfaði sem fararstjóri allt þar til
fyrir tveimur árum.
„Útivist var nýtt félag, það þótti
afskaplega spennandi. Við fórum
ákaflega vel af stað og það safnað-
ist að okkur mikið af ungu fólki og
við höfum haldið því,“ segir Nanna
þegar hún rifjar upp fyrsta starfsár
félagsins, en Útivist varð til þegar
Ferðafélag Íslands klofnaði vegna
misklíðar. „Þeir voru voða reiðir
við okkur í upphafi yfir að fá svona
samkeppni,“ minnist hún en segir
allt í góðu milli félaganna í dag.
Það var þó ekki dans á rósum að
hrinda starfseminni úr vör. „Við
stóðum þarna eins og álfar þessar
55 manneskjur með nýtt félag í
höndunum en ekki krónu. Okkur
tókst að útvega húsnæði á efstu
hæð í Lækjargötu 6 og það voru svo
slitnir stigarnir að það lá við að
maður dytti í gegnum þrepin,“ seg-
ir Nanna og hlær að minningunni.
Hún bætir við að lengi vel hafi
gestir varla haft stól að sitja á.
Ekki var liðin nema vika frá
stofnfundi í mars 1975 þegar fyrsta
ferðin var farin. „Ferðafélagið
hafði sinn samastað austan megin á
Umferðarmiðstöðinni svo við aug-
lýstum stíft að Útivist væri vestan
megin. Svo stóðum við þarna fimm,
sex hræður og biðum í ofvæni eftir
því hvort einhver kæmi,“ segir
Nanna og sýpur á kaffinu sínu.
Áhyggjurnar voru ástæðulausar
því sjötíu manns mættu á staðinn.
„Ég mun aldrei gleyma þessari
stund,“ segir Nanna með blik í aug-
um.
Nanna á fjölmargar góðar minn-
ingar frá starfi sínu með Útivist. Því
til staðfestingar á hún fimmtán stór
myndaalbúm með myndum af ferða-
lögum sínum í þrjátíu ár. „Það veit
sá sem allt veit að ég sakna þess al-
veg óskaplega að ferðast með Úti-
vist,“ segir Nanna með trega í
röddu. Í góðu veðri horfir hún út um
gluggann á útsýnið yfir Snæfells-
jökul og óskar sér upp í fjöll. Hún er
þó langt í frá sorgmædd og hefur
nóg að gera alla daga. Til að mynda
vaknar hún hvern einasta morgun
og skellir sér í sund.
Uppáhaldsstaður Nönnu er
Básar í Þórsmörk. „Maður var svo
mikið með í þessari uppbyggingu og
það kostaði mikið erfiði að koma
þessu öllu í kring,“ segir Nanna og
greinir frá því þegar fyrsti skálinn í
Básum var byggður úr gömlum
spýtum úr tveimur húsum sem Úti-
vist fékk gefins. „Það var ægilega
gaman,“ segir Nanna og gengur að
skáp og dregur úr honum lítinn
hamar. „ Við vorum beðin um að
koma með verkfæri og ég kom með
þennan. Hann þótti ekki burðugur í
svona stórsmíðar en sjáðu bara,“
segir hún og sýnir mikið eyddan flöt
hamarsins. „Ég ætla að hafa hann
með inn eftir núna og gefa félaginu
hamarinn með rauðri slaufu,“ segir
Nanna og skellihlær. ■
22 27. ágúst 2005 LAUGARDAGUR
Saknar þess að ferðast
ÚTIVIST HELDUR UPP Á ÞRJÁTÍU ÁRA AFMÆLI SITT AÐ BÁSUM Í DAG
timamot@frettabladid.is Frændi drottningar Englands,
Louis Mountbatten lávarður, lést
þennan dag árið 1979 þegar
sprengja sprakk í báti hans.
Ásamt honum létust fjórtán ára
barnabarn hans, eldri kona og
fimmtán ára skipsdrengur.
IRA, Írski lýðveldisherinn, lýsti
ódæðinu á hendur sér en að-
eins nokkrum klukkutímum síð-
ar létust átján breskir hermenn í
sprengingu við Warranpoint, ná-
lægt landamærum írska lýðveld-
isins.
Mountbatten lávarður var 79 ára. Hann
dvaldi ásamt fjölskyldu sinni í kastala þeirra
í Sligo norðvestur af Írlandi. Bátur hans
hafði nýlagt úr höfn í fiskiþorp-
inu Mullaghmore þegar sprengj-
an sprakk. Vitni sagði að bátuinn
hefði sprungið í tætlur og far-
þegarnir sjö kastast í sjóinn.
Nokkrir sjómenn þustu að til
þess að hjálpa Mountbatten en
fætur hans voru nær klipptir af
og hann lést skömmu síðar. At-
burðurinn vakti spurningar um
öryggi Mountbatten-fjölskyld-
unnar en lávarðurinn hafði aldrei
haft lífvörð.
Thomas McMahon var síðar dæmdur fyrir
morðið á Mountbatten. Lögreglan hafði haft
af honum afskipti aðeins tveimur tímum
fyrir sprenginguna vegna gruns um bílstuld.
ÞETTA GERÐIST > 27. ÁGÚST 1979 MERKISATBURÐIR
1883 Gríðarlegt eldgos hefst á
óbyggðu eyjunni Krakatau
vestur af Súmötru í
Indónesíu. 36 þúsund
manns látast í kjölfar flóð-
bylgju sem myndast við
eldgosið.
1912 Bókin um Tarsan konung
apanna eftir Edgar Rice
Burroughs kemur út í fyrsta
sinn.
1946 Fyrsti bíllinn kemst yfir
Siglufjarðarskarð. Vinna við
veginn hafði staðið í ellefu
ár.
1952 Menntamálaráðherra legg-
ur bann við því að auglýsa
dansleiki í Ríkisútvarpinu.
1967 Brian Epstein, umboðs-
maður Bítlanna finnst lát-
inn á heimili sínu í
London. Hann lést vegna
ofneyslu svefnlyfja.
1970 Flugsveitin Rauðu örvarnar
sýnir listir sýnar í Reykajvík.
Frændi drottningar drepinn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
Guðbjörg Olsen
Dvalarheimilinu Grund,
lést á Landspítalanum við Hringbraut miðvikudaginn 24. ágúst.
Útför hennar fer fram 30. ágúst frá kirkju óháða safnaðarins við
Háteigsveg og hefst athöfnin kl. 13.00.
Hildur Jóhannsdóttir Sigríður Skúladóttir
Jón B. Skúlason Unnur Skúladóttir
Dóra Skúladóttir Elínborg Skúladóttir
Daníel H. Skúlason
makar, barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur sonur minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Sævar Tryggvason
Ásgarði 24a, Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn 26. ágúst.
Innilegar þakkir fær starfsfólk Krabbameinsdeildar 11E fyrir
góða umönnun og hlýhug. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Þórhildur Stefánsdóttir
Hildur Lind Sævarsdóttir
Anna Lilja Sævarsdóttir Unnsteinn Einar Jónsson,
Tryggvi Unnsteinsson
Rúnar Unnsteinsson
Sindri Unnsteinsson.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
Maren Níelsdóttir Kiernan
lést á Dvalarheimilinu Hrafnistu, Reykjavík, föstudaginn 26.
ágúst. Útförin auglýst síðar.
Edward, Erla, Elsa, Stella, Jóhann og Victor Pétur tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir til ykkar allra sem sýnduð okkur
samúð og hlýhug við fráfall og útför eiginmanns míns,
föður, fósturföður, tengdaföður, afa og langafa,
Jóns Sæmundssonar
bryta, Ljósheimum 8a.
Margrét Kr. Sigurpálsdóttir
Jón Veigar Ragnhildur Þórðar
Jóhanna María Smári Karlsson
Linda Valgerður Guðmundur Helgason
Ingibjörg Ls. Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Hjartans þakkir til ykkar allra sem sýnduð okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra
sonar og bróður,
Hjartar Sveinssonar
Grænatúni 6, Kópavogi.
Guð blessi ykkur öll.
Margrét Samúelsdóttir Sveinn Sveinbjörnsson
Sveinbjörn Sveinsson Grétar Már Sveinsson
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
Bryndís Ingvarsdóttir
Sólvangi, Hafnarfirði, áður Móabarði 22b, Hafnarfirði,
lést að morgni dags 25. ágúst. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Guðmundur Rúnar Guðmundsson
Valgerður Guðmundsdóttir Hjálmar Árnason
Guðmundur Rúnar Guðmundsson Vilborg Sverrisdóttir
Ingvar Guðmundsson Rut Brynjarsdóttir.
og barnabörn www.steinsmidjan.is
LOUIS MOUNT-
BATTEN LÁVARÐUR
NANNA KAABER Ein af stofnfélögum Útivistar.
VATNSBERI Nanna man vel eftir því
þegar hún var sett í að bera vatn í fötum
til að blanda í steypu við byggingu fyrsta
skálans í Básum.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/STEFÁN