Fréttablaðið - 27.08.2005, Page 26
Við bjóðum upp á glænýttrússneskt leikrit, sígildansöngleik og rómantískt gam-
anleikrit,“ segir Magnús Geir Þórð-
arson, leikhússtjóri Leikfélags Ak-
ureyrar, um dagskrá komandi leik-
árs en atburðir vetrarins á Akur-
eyri voru kunngjörðir í gær.
Magnús Geir segir fjölbreytn-
ina ráða ríkjum í verkefnavali en
auk þriggja nýrra verka verða á
fjölunum ýmsar góðar gesta-
sýningar og verk frá fyrra leikári.
„Leikárið hefst í september á
sýningum á Pakkinu á móti í leik-
stjórn Agnars Jóns Egilssonar. Við
frumsýndum leikritið í vor en það
fjallar um hryðjuverkaógnina.
Höfundurinn Henry Adams vann
Edinborgarverðlaunin fyrir Pakkið
á móti fyrir tveimur árum en síðan
í vor hafa, eins og allir vita,
sprengingar átt sér stað í London.
Þegar maður heyrir fréttir af
hörmungaratburðum sem þessum
á maður til að fjarlægja sig þeim
en persónurnar í verkinu eru svo
sterkar að við það að horfa á verkið
færist maður óhjákvæmilega
nær.“
Gamanleikrit í anda Love Actually
Auk Pakksins á móti verður gesta-
sýning Borgarleikhússins, Belgíska
Kongó, á dagskrá í september. Þeg-
ar komið er fram í miðjan október
verður gamanleikritið Fullkomið
brúðkaup frumsýnt á Akureyri.
„Þetta er eiginlega rómantískt gam-
anverk í anda Love Actually, Four
Weddings and a Funeral og allra
þessara bresku góðu gamanmynda.
Verkið er eftir Robin Hawdon, sama
höfund og gerði farsann Sex í sveit,
en það er vinsælasta leiksýning sem
Leikfélag Reykjavíkur hefur sett
upp.“
Magnús Geir segir að Fullkomið
brúðkaup sé drepfyndið verk sem
hefst þegar ungur steggur vaknar
skelþunnur á brúðkaupsdaginn með
ókunnuga nakta konu sér við hlið.
„Brúðurin er á leiðinni og allt fer á
fullt í endalausum misskilningi.
Leikritið gerist á leifturhraða og
fjallar um þessi mál sem allir eru
endalaust að velta fyrir sér.
Hvernig það er að vera ástfanginn,
að hætta að vera ástfanginn og vera
jafnvel ekki ástfanginn af þeim sem
maður hélt að maður væri ástfang-
inn af.“
Kraftmikil maríubjalla í húsinu
Nýtt leikrými, Húsið, verður svo
tekið í notkun hjá Leikfélagi Akur-
eyrar í mars. Í Húsinu var áður
diskótekið Dynheimar, menningar-
miðstöð ungs fólks, en nú þjónar
rýmið æfinga- og sýningarhaldi hjá
leikfélaginu ásamt því að hýsa bún-
inga og leikmunageymslu. „Það er
gaman að segja frá því að í Húsinu
frumsýnum við Maríubjölluna, sem
er glænýtt rússneskt leikrit. Verkið
er eftir ungt leikskáld sem stendur í
framvarðasveit rússneskra nútíma-
höfunda en leikstjórinn, Jón Páll
Eyjólfsson, er einnig i framvarða-
sveit. Jón er ungur og upprennandi
leikstjóri sem vakti verðskuldaða
athygli fyrir pólitíska sýningu hjá
Stúdentaleikhúsinu í fyrra.“
Magnús Geir segir að Maríu-
bjallan höfði til allra þeirra sem
vilji láta hreyfa við sér. „Verkið er í
anda Kæru Jelenu og Stjörnu á
morgunhimni. Maríubjallan gerist á
einu kvöldi í kveðjupartíi hjá manni
sem er að halda í herinn. Atburða-
rásin tekur óvænta stefnu og við
fáum ansi magnaða sýn inn í líf
þessa fólks. Allt litróf tilfinning-
anna er staðsett í ansi harkalegum
heimi en útkoman er kraftmikið og
fallegt leikrit.“
Rokkuð græðgisvæðing
Leikfélag Akureyrar ætlar ekki að
láta sitt eftir liggja í söngleikjaupp-
færslum næsta árs. „Í fyrra sýnd-
um við Ólíver, þar sem sinfóníu-
hljómsveit lék fyrir okkur ljúfa
tónlist. Nú ætlum við að láta rokkið
lyfta þakinu af gamla leikhúsinu,“
segir Magnús Geir en Litla Hryll-
ingsbúðin verður frumsýnd í febrú-
ar. „Þó söngleikurinn sé bara 25 ára
gamall er hann sígildur. Þetta er
verk sem höfðar til allrar fjölskyld-
unnar með litríkum persónum,
fyndinni sögu og grípandi tónlist.
Það hefur mikið verið rætt um
græðgisvæðingu á Íslandi að undan-
förnu og Litla hryllingsbúðin snýst
um græðgi og spurninguna um hvað
eigi að leggja á sig fyrir frægð og
velgengni. Söngleikurinn hefur
verið settur upp tvisvar sinnum hér
á landi í atvinnuleikhúsum en við
ætlum að fara nýja leið að Litlu
Hryllingsbúðinni,“ segir Magnús
Geir leyndardómsfullur en hann
vinnur nú að því að velja leikhópinn
til verksins.
Sigra heiminn frá Akureyri
Hluti af þeim stefnubreytingum
sem áttu sér stað hjá Leikfélagi
Akureyrar þegar Magnús Geir tók
við starfseminni var að losa upp
leikhópinn sem var til staðar til
þess að koma á því fyrirkomulagi
að lítill hópur leikara yrði fastráð-
inn í eitt ár í senn og aðrir leikarar
lausráðnir. „Nú erum við að veðja á
ungt fólk sem leggur allt undir
fyrir leiklistina. Við fastréðum
fjóra leikara, þá Guðjón Davíð
Karlsson, Jóhannes Hauk Jóhann-
esson, Álfrúnu Örnólfsdóttur og
Esther Talíu Casey,“ en þau verða
fastráðin ásamt reynsluboltanum
Þráni Karlssyni sem er að hefja
sitt fimmtugasta leikár með
Leikfélagi Akureyrar.
Þetta nýja fyrirkomulag segir
Magnús að hafi ýmsa kosti í för
með sér. „Þá er kjarni til staðar
sem fókuserað er á og ber uppi
starfsemina. En þar sem fastráðn-
ingin stendur aðeins yfir í eitt ár er
engin hætta á því að leikararnir
fari að endurtaka sig eða að áhorf-
endur fái leið á því að sjá alltaf
sömu andlitin. Hópurinn sem verð-
ur hjá okkur í ár kemur í stuttan
tíma og tekst á við bitastæðar rull-
ur svo það geti sigrað heiminn frá
Akureyri.“
Miðar á bíóverði fyrir unga fólkið
Leikfélag Akureyrar setur líka
fókusinn á ungt fólk þegar kemur
að áhorfendum. „Síðasta vetur
buðum við tvö þúsund krökkum á
aldrinum tólf til fimmtán ára að
koma í leikhúsið. Mörg þeirra
höfðu aldrei komið áður í leikhús
en þetta er gert með það í huga að
vekja leikhúsáhuga hjá ungu fólki
og ala upp áhorfendur framtíðar-
innar.“
Í fyrra margfaldaðist leikhús-
aðsókn á Akureyri og segir
Magnús það spila inn í að meðal-
aldur áhorfenda hafi lækkað
umtalsvert. Á nýju leikári verður
sérstakur afsláttur í boði fyrir
áhorfendur undir 25 ára aldri.
„Landsbankinn hefur komið til
liðs við okkur og nú bjóðum við
upp á áskriftarkort á fjórar leik-
sýningar á hálfvirði, eða á 3.450
krónur. Það er svo oft talað um að
unga fólkið fari ekki í leikhús því
það hafi ekki efni á því en með
þessu tilboði fást leikhúsmiðarnir
á bíóverði.“ ■
26 27. ágúst 2005 LAUGARDAGUR
Græ›gi, hry›juverk og gó›ur húmor
MAGNÚS GEIR Leikhússtjórinn segir Leikfélag Akureyrar veðja á unga fólkið í vetur.
Leikfélag Akureyrar hlaut tvenn Grímuver›laun fyrir
söngleikinn Ólíver á sí›asta ári. Í spjalli vi› Magnús
Geir fiór›arson leikhússtjóra kemst fióra Karítas
a› flví a› móttökur leikhúsgesta og a›sókn, sem fór
fram úr björtustu vonum, gefa leikfélaginu byr undir
bá›a vængi.
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR